Fálkinn - 07.07.1939, Page 2
2
F Á L K I N N
GAMLA BIO
Gamla Bíó sýnir á næstunni Metro-
Goldwyn-Mayer myndina Svikahrapp-
arnir. Aðalhlutverkin leika Frank
Morgan, Florence Rice og John Bea!
Ung og falleg Ameríkustúlka er
trúlofuð syni auðugs bankastjóra.
Stúlkan hýr með móður sinni, en
faðir hennar dvelur í Evrópu og
sendir þeim mæðgunum 100 dollara
á mánuði. Brúðkaupið er fyrir hönd-
um og bankastjórafrúin, sem er mjög
gefin fyrir að láta bera mikið á sjer,
kemur tii móður stúlkunnar og til-
kynnir henni, að nú skuli verða
haidin brúðkaupsveisla, sem talandi
verði um. Móðir stúlkunnar tekur
þessu mjög dræmt, en sýnir henni
brjef frá manni sínum, þar sem
hann tekur það fram, að ef liann
hefði vitað nógu snemma, að dóttir
sín ætlaði að giftast svona skyndi-
lega, þá hefði hann kosið að brúð-
kaupið hefði farið fram í nýju og
stóru höllinni sinni. Bankastjórafrúin
verður svo hrifin af þessari hugul-
semi, að hún fær komið því til vegar,
að öil hersingin ieggur af stað til
Evrópu, svo að brúðkaupið geti farið
fram í stóru höllinni.
En sannleikurinn var sá, að faðir
stúlkunnar átti enga höll. Hann var
bláfátækur maður, sem liafði ofan af
fyrir sjer með þvi að selja auðtrúa
Ameríkönskum ferðamönnum iista-
verk, sem reyndar höfðu enga list að
geyma. — Nú byrjar gamanið fyrir
alvöru, en það er stundum grátt.
Hvernig fer nú maðurinn með „nýju
og stóru höllina" að kpma sjer úr
þeirri klýpu, sem hann með óvar-
færni hafði komið sjer i? Honum
tckst það prýðilega, því að hann
hefir ráð undir hverju rifi, en að-
ferðirnar, sem liann notar eru býsna
kynlegar. — Myndin er einskonar
ádeila á „snobbið". Kímnin og snið-
ugheitin gægjast hvarvetna fram.
Hún kemur manni í hressandi skap,
en veltur samt í aðra röndina til
íhugunar á því, hve Htilsvirði þáð
er i raun og veru að lifa fyrir það
eitt ..að táta hera á s'er.“
Þorsteinn Jónsson, járnsmiður,
Vesturg. 33, verður 75 áru 9. þ. m.
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Skúli Skúlason.
Lúðvík Kristjánsson.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Aðalskrifstofa:
Bankastr. 3, Reylcjavík. Simi 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-0.
Skrifstofa i öslo:
Anton Schjötsgade 14.
Blaðið kemur út hvern föstudag.
Áskriftarverð er kr. 1.50 á mán.,
kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millim.
HERBERTS prent.
Skraddarabankar
Loks er svo komið, að „skikk-
anlegt fólk“ er farið að þora að
tala um þegnskylduvinnu. Þeg-
ar Hermann heitinn á Þingeyr-
um bar fram þegnskylduhug-
mynd sína fyrir fjörutíu árum,
komust flestir málsmetandi
menn að þeirri niðúrstöðu, að
slikt væri þrældómur og alger-
lega ósamboðið frjálsum mönn-
um. Og það varð grýla sem hreif,
að í þegnskyldunni ættu menn
að „moka skít fyrir ekki neitt“.
En á fjörutíu árum hefir þjóð-
in þó þroskast svo, að hún sjer
annað meira í þegnskyldunni en
að moka skit fyrir ekki neitt.
Hún sjer uppeldisgildi þegn-
skykluvinnunnar og hún sjer
arðvænlega gagnsemi liennar.
Hún sjer atvinnulausa unglinga,
sem lifa lífinu sjálfum sjer til
leiðinda og öðrum máske til
byrði. Hún sjer óþrjótandi verk-
efni, sem þarf að vinna i ó-
numdasta landi álfunnar, og sem
ekki verða unnin nema með
sterku og skipulögðu átaki. Ó-
rudda vegi, mýrar arðlausar af
vatnsaga og ótæmandi land, sem
er vel fallið til ræktunar. Og
margt og margt.
Það er oft talað um þegn-
skylduvinnu í framkvæmd nú á
tímum. Fjelög hafa þegnskyldu-
vinnu er þau þurfa að vinna ýms
störf. Og það er verið að gera
tilraunir með vinnuskóla. En í
rauninni er það alls ekki þegn-
skylduvinna í upprunalegri
merkingu orðsins, sem hjer er
um að ræða. Það er sjálfboða-
liðsvinna, meira og minna ó-
skipulögð og ókerfisbundin og
er ekki ný í landinu. Bændur
hafa öldum saman Ijeð grann-
anum hjálparhönd er með þurfti
og sveitir hafa unnið að sam-
eiginlegu verkefni með sjálfvilj-
ugri hjálp íbúanna. Vinnuskól-
inn er hinsvegar nýr, en hefir
eigi fengið á sig fasta mynd.
En það er lögbundin almenn
\wgnskylda, sem íslendingar
þurfa að fá, bæði vegna ein-
staklingsins og heildarinnar. í
henni er fólgin mentun fyrir
einstaklinginn og gróði fyrir
heildina. Þrír mánuðir á ári i
tvö ár, og sje unnið annað árið
fyrir ríkið, en hitt fyrir sýslu
eða bæjarfjelag. Þegnskyldu-
vinna, sem jafnframt sje skóli,
ekki bókmentaskóli heldur skóli
í stundvísi og vinnulægni. Það
hefir verið margsannað bæði
hjer og erlendis, að tiltölulega
fáir kunna rjett lag á algengri
vinnu og að þeir fáu, sem kunna
það afkasta meira starfi en þó
með miklu minni áreynslu en
hinir. Það eru mennirnir, sem
vinnan „leikur í höndunum á“.
Hversu gífurlega mætti ekki
auka afköst þjóðarinnar með þvi
að kenna æskulýðnum rjett
vinnulag og hagsýni í starfi
sínu.
í NÆSTA BLAÐI FÁLKANS:
Grein um danskonuna frægu, Anna Pavlova. — Frá
liðnum tímum, eftir Oscar Clausen. — Grein um Kól-
umbus. — Tvær sögur. — Litli og Stóri. — Skrítlur. —
Barnadálkur o. m. fl.
Hallgrímur Benediktsson, prent- Jón Jóhannesson frá Grindavík,
ari, verður 60 ára í dag (7. júlí). nú til heimilis á Elliheimilinu
------------------ „Grund", verður 80 ára 7. júlí.
Carl Finsen, forstjóri, verður 60
ára 10. þ. m.
Diðrik Diðrilcsson, bóndi í Götu-
húsum á Egrarbakka, verður 70
ára 10. þ. m.
Ari fí. Antonsson, verkstjóri,
verður 65 ára 7. júlí.
Ólafur Jónsson, fgrv. lögreglu-
þjónn, verður 75 ára 10. þ. m,