Fálkinn - 07.07.1939, Blaðsíða 7
F Á L K I N N
Frakkar hafa haldið uppi flugferð-
uin um sunnanvert Atlantshaf en
hafa nú tilraunaflug á leiðinni Ir-
land—New-Foundland og sjest hjer
fyrsta vjelin, sem smíðuð hefir ver-
ið til þessara ferða. Heilir hún „Ville
de Saint Pierre". Að neðan sjást for-
stöðumenn fjelagsins og flugmenn-
irnir, ásamt formanni írskra flug-
mála O’DriscolI (2. maður frá v.),
en myndin er tekin í írlandi.
Ensku konungshjónin heimsóttu
fíandarikin í vesturför sinni og er
það í fyrsta sinn, sem enskur kon-
nngur kemur iil U. S. A. Myndin er
tekin á hrautarstöðinni í Washing-
ioii, en þar tók Roosevelt á móti
konungi. Frá vinstri sjást Geory
konungur, Roosevelt og Watson
hershöfðingi, sem ávalt leiðir for-
setann, þegar hann er á gangi, því að
hann er máttlaus öðrumegin.
Flugvöllurinn í Fornebu við Osló er
nú svo langt kominn, að áætlunar-
flugvjelar eru farnar að lenda þar,
en hingað til hafa eingöngu sjóvjel-
ar verið notaðar til áætlunarferða
til Ósló. Var völlurinn vígður 1. júni
og þá hófust um leið beinar flug-
ferðir milli Osló og Amsterdam.
Flugvöllur þessi kostar um 25 milj-
ón krónur þegar hann er fullgerður,
og hefir orðið að sprengja burt stóra
klettahryggi til'þess að gera lending-
arbrautirnar nægilega langar. Hjer
að ofan sjest afgreiðsluskáli vall-
arins.
Myndin til vinstri er úr flugvjela-
verksmiðju í Frakklandi, þar sem
flugvjelar handa hernum eru smíð-
aðar í stórum stíl og með amerík-
önskum aðferðum, sem Ford inn-
leiddi fyrstur matina í bíliðnaði.