Fálkinn - 07.07.1939, Qupperneq 11
F Á L K I N N
11
brugðninguna, er prjónað 8 cni.
stykki, og er 1 1. tekin úr beggja
megin á öðrum hvorum prjónj.
Því næst skiptast boðangarnir í tvent
en bæði stykkin prjónast eins: Fell-
ið 2 1. af öðrum hvorum prjóni
hálsmálsmegin og fellið sömul. 1 1.
af á öðrum hvorum prjóni hand-
vegsmegin. Endurtakið úrtökurnar
þar til 12 1. eru eftir. Dragið þráð
í gegnum þessar lykkjur og prjónið
ekki hlírana fyrr en búið er að
sauma bolinn saman.
Bakið
er prjónað eins og framstykkið. Þeg-
ar búið er að prjórta 22 cm. frá
bclti er felt af. (Sjá punktalínuna á
mynd B).
Fleygurinn:
Fitjið 2 1. upp og aukið út um 1 J.
beggja megin á öðruin livorum
prjóni, þar til komnar eru 18 1. Þá
er 1 1. tekin úr beggja megin á
öðrum hvorum prjóni þangað til
eftir eru 2 1., sem feldar eru af.
Samsetning:
Öll stykkin eru pressuð með deigri
rýju. Þá eru þau saumuð saman og
fleygurinn saumaður í buxurnár. Svo
er best að máta sundbolinn og sjá
hvað hlírarnir þurfa að vera langir.
Buxnaskálmarnar, hálsmálið og liand
vegurinn er faldað og renningur
lagður undir til þess að ekki mynd-
ist flái.
Sundbolur.
Efni:
200 gr. biátt garn, 50 gr. rautt og
50 gr. hvítt garn. Prjónar nr. 3.
Stærð 44.
Fyrirmyndin:
fírugöning: 1 rjett og 1 brugðin.
Deplanmnstur: 1. prjónn rjettur, 2.
pr.. brugðinn, 3. prj. -f 9 rj., prjón-
ið 3 lykkjur úr 1 1. (1 rj., 1 br., 1
rj.) endurtakið frá + prjóninn út.
'i. prj. Prjónið 1 brugðna 1. úr þess
um þremur, 9 1. br., endurtakið
þannig út þennan prjón. 5. og 7. prj.
rjettir, 6. og 8. prj. brugðnir. 9. prj.:
4 1. rj. + 3 1. prjónist úr 1 1., 9 1. rj.
+ endurtakið á milli + út prjón-
inn. 10. prj. eins og 4. prj. 11. prj.
rjettur, 12. prj. brugðinn. Þessir 12
prj. mynda munstrið.
PRJÓNAAÐFERÐIN:
Framstykkið:
Byrjið neðst á vinstri skálm. Fitj-
ið 60 1. upp af bláa garninu og
prjónið 11 cm., en aukið 1 1. i á
3ja hverjum prjóni vinstra megin.
Því næst er hægri skálmin prjónuð
alveg eins, að öðru leyti en þvi, að
aukið er út hægra megin. Báðar
skáimarnar eru svo prjónaðar yfir á
einn prjón og eiga þá að vera 138 i.
á prjóninum. Prjónið 9 cm. og takið
því næst 1 1. úr beggja megin á 5.
hverjum prjóni, þangað til 120 1.
eru eftir. Þegar stykkið er orðið
34 cm. er mittinu náð og þá er prjón-
ið 4 cm. breið einföld brugðninn
(1 rj. 1 br.). Þar næst eru rándirn-
ar prjónaðar og aukið í beggja meg-
in á 5. hverjum prjóni þangað til
lykkjurnar eru orðnar 138.
Randirnar:
4 cm. með rauða garninu, 2 prj.
af þvi hvíta, 2 prj. af rauðu, 2 prj.
af hvítu, 2 prj. af rauðu, 2 prj. af
hvítu, 2 prj. af rauðu, 6 prj. af bláu,
2 prj. af rauðu, 2 prj. af bláu, 2
prj. af rauðu, 2 prj. af hvítu, haldið
áfram með 2 prj. af rauðu og 2 prj.
af hvitu þangað til komnar eru 3
livítar randir og 4 rauðar, þá er rest-
in prjónuð með bláu. Þegar búið er
að prjóna 16 cm. fyrir ofan beltis-
Hansen var að tala við klæðsker-
ann sinn:
— Hvernig stendur á þvi, að þjer
sendið mjer aldrei reikninginn?
Klæðskerinn: — Jeg rukka aldrei
gentlemenn.
— En hvað gerið þjer, ef þeir
ekki borga?
— Þá veit jeg, að þeir eru ekki
gentlemenn og þá rukka jeg þá.
FALLEG DRAGT
úr marinebláu ullarefni með blá-
dröfnóttum hornuin og vasa. Fóðrið
undir hattbarðinu er lika dröfnótt.
VORTÍSKAN,
sem stingur upp kolli við Long-
champs-veðreiðarnar er aldrei tekm
alvarlega, vegna þess hve öfgafull
hún er. Það er t. d. ómögulegt ann-
að en taka eftir þessum tveim á-
berandi liöttum. „Militær“-kápan
kemur árlega fram á sjónarsviðið,
en árangurslaust, vegna þess live o-
hentug hún er. En öðru máli gegn-
ir með þennan aðskorna frakka,
hann gæti orðið vinsæll, skinnrönd-
in er smart, en dýr.
Gulldiskar Zogu konungs.
Biaðamaðurinn Griggs, í Nya Dag-
ligt Allahanda, sem verið hefir i
Albaníu, vjefengir það, að Zogu sje
eins fátækur og af er látið. „Hvað
er t. d. orðið af öllum gulldiskun-
um, sem notaðir voru við albönsku
hirðina?“ spyr hann. Þegar konung-
urinn kvænlist voru 300 manns í
veislunni og þeir átu allir af gull-
diskum. Griggs álitur, að ef konung-
urinn hafi náð diskunum með sjer,
muni hann geta lifað lengi á þeim,
þó ekki væri annað.