Fálkinn - 22.12.1939, Page 27
F Á L K I N N
21
JP tam _
A 16. Ol.D,
Á 16. öld þóttu jólin stórum þýð-
ingarmeiri hátið, en nú á dögum.
Þau voru hin mikla hátíð vetrarins
og mesta skemtihátíð ársins og
fullorðna fólkið hlakkaði til jólanna
þá, ekki síður en börnin. Það var
sjaldan, sem fólk skemti sjer í þá
daga, en þá sjaldan það var, þá
skemti það sjer svo um munaði. Hin
trúræknislega lilið jólagleðinnar var
i því fólgin að fara nokkrum sinn-
um í kirkju og halda ýnisa setta
helgisiði.
En veislugleðin var aðalþátturinn
og þurfti langan viðbúnað. Nokkrum
vikum fyrir jól var byrjað að baka
jólabrauðið og brugga jólamjöðinn,
og var ekkert til sparað. Jólabrauðið
var smákökur, með allskonar lagi og
í mörgum myndum af öllum lnigs-
snlegu, lifandi og dauðu — hænur á
eggjum, karlar og konur, kýr og
hestar. Þessar gömlu jólasmákökur eru
fyrirmyndin að myndabrauðinu, sem
enn fæst í búðum og kexgerðirnar
spúa úr sjer i stórum stíl.
Á 16. öld var ekki sá siður til, að
dansa kringum jólatrje, því að þá
var yfirleitt ekki farið að nota jóla-
trje, og ýms jólatákn, sem nú eru
í tísku, t. d. jólasveinarnir, þektust
ekki þá. En það eru talsverðar líkur
til, að bæði jólatrje og jólasveinar
hafi verið til löngu áður, sem sje i
heiðni, og hafi síðan skotið upp úr
hafi gleymskunnar. En * sannað er
það ekki.
Hinsvegar voru á 16. öld ýmsir
jólasiðir og sumir skemtilegir, sem
nú eru fallnir í gleymsku. Og sumir
af þessum siðum voru einnig i tisku
hjer á landi i þá daga.
Heiðnin lifði enn í munnmælum
og sumpart í hugsun manna líka,
og fólk vissi, að þegar kristinn sið-
ur komst á, höfðu prestarnir valið
hina fornheiðnu jólaliátíð til þess að
verða fæðingarhátíð frelsarans um
leið. Þessvegna hlutu óhjákvæmilega
ýmsir gamlir siðir úr heiðni að loða
við jólin. Jafnvel er það svo enn
þann dag í dag, að þegar frá er
skilin hin trúarlega hlið jólanna, eru
flestir helstu jólasiðirnir ævagamlir.
Jólagjafirnar og jólakertin tíðkaðist
hvorttveggja í heiðnum sið. Maður-
inn er lengi að breytast, og sumt
það gamla hefir undraverðan lífs-
þrótt.
Jólahátíð hinna heiðnu forfeðra
vorra var þakkarhátíð fyrir sólina
og birtuna, sem nú færðist aftur i
vöxt, eftir að hafa farið þverrandi
mánuð eftir mánuð. Þessvegna kveikti
fólk ljós i hverjum kima og kveikti
hál úti á víðavangi. Jólagjafirnar
voru táknrænar fórnir og áttu um
leið að sýna velvildarhug gefandanS
til þess, sein við gjöfinni tók, og
vera ytra tákn um góðar óskir á
nýja árinu.
HJÁTRÚIN YAR RÍK.
Sextánda öldin var rammasta hjá-
trúaröld og báru ýmsir jólasiðir skilj-
anlega merki þessa — og gera sums-
slaðar enn í dag. Fólk varð að haga
sjer eftir ákveðnum reglum um flesta
hluti, ef það vildi eiga náð guðs
yfir sjer og koma sjer vel við máttar-
völdin.
Á jólunum átti fólk að halda frið
við alla, ekki aðeins mennina, held-
ur skepnurnar líka; eins þótt manni
væri meinilla við þær. Á norður-
löndum átti fólk ýmsa skæða óvini
meðal dýranna, t. d. úlfinn, björn-
inn, rottur og mýs. En um jólaleytið
mátti enginn nefna þessar skepnur
rjettu nafni, því að það var trú
manna, að um það skeið breyttust
ýmsir menn í líki þessara kvikinda,
og væri þeim gert ilt í orði eða verki,
þá mætti húast við að þau hefndu
sín, annaðhvort meðan þau væri
í dýrshamnum eða eftir að þau væru
orðin að mönnum aftur.
Væri maður tilneyddur að nefna
einhverja af þessum skepnum, sem
Jólin eru eldri en kristnin. Þau hafa verið haldin hátíð-
leg í mörg þúsund ár — og voru í heiðni merkasta hátið
ársins — í minningu þess, að daginn var farið að lengja.
Þau voru Ijóssins hátíð þá eins og nú, þó í öðrum skiln-
ingi væri. Og lengi hefir ýmisleg heiðin forneskja hald-
ist í sambandi við jólin, eins og sjá má af eftirfarandi
lýsingu á jólahátíðinni í Danmörku frá 16. öld. —
altaf gat komið fyrir, varð maður
að finna eitthvert gerfinafn á þeim,
sem þær sjálfar gátu ekki skilið.
Úlfinn kallaði fólk grábein (og ger-
ir enn í dag bæði i Noregi og Sví-
þjóð), björninn hjet á jólamáli sá
gamli í loðnunni, músin litlagrána
eða ótætið og rottan rófulöng. Það
kvað meira að segja svo ramt að
þessu, að prestur og ráðsmaður, sem
báðir hjetu nafninu Muus, urðu að
sætta sig við að lieita síra Litligráni
og herra Ótæti um jólin, svo að
músin skyldi ekki halda, að fólk væri
að tala um sig.
En það var ekki nóg, að fólk hjeldi
frið við fjórfætta eða ósýnilega
fjendur sína um jólin. Fyrst og
frernst átti mannfólkið að halda frið
innbyrðis og lifa í sótt. Víg og blóðs-
úthe!lingar voru bannaðar um jólin,
en bæri eigi að síður út af, var refs-
ingin miklu þyngri en ella. Og dóm-
stólarnir störfuðu aldrei meðan jóla-
lieigin stóð — líklega lielst til þess
að málaflutningsmennirnir skyldu
ekki meiðyrða liver annan, en það
þótti kurteisi í þá daga.
í borgunum reyndist erfitt að fá
fólkið til að vera skikkanlegt um
jólin. Þessvegna var „vaktaraliðið“
jafnan aukið fyrir jólin, og það þótti
heiður að því, að vera jólavaktari
og heldri manna synir sóttust eftir
þeim metorðum. En þessara vaktara
jiótti verða furðu lítið vart á göt-
Efst t. h.: Rúg-
brauðsdeig í
allskonar mynd-
um: — Hæna,
karl, svín, kerl-
ing, hani. —
Að ofan t. h.:
Gömnl teikning
af fólki, sem
var dæmt til að
dansa alt Arið,
vegna þess að
það hafði dans-
að á jólanóttina.
Til vinstri:
Jólastofa i Dan-
mörku á 16. öld.
Inst i stofunni
sitja karlmenn-
irnir við öl-
drykkju, en tveir
hafa sest í hálm-
inn á gólfinu, og
þreyta aflraunir
á kefli.
unum og það var skrafað, að jóla-
vaktararnir sæktust mest eftir stöð-
unum til þess, að geta losnað að
heiman og fá að líta inn til vina og
kunningja, og fá sjer neðan í því.
Það voru oftast aðrir en vaktararnir,
sem hjálpuðu þeim heim til sín, er
þess þurftu með.
Annars ótti fólk að gera eins lítið
og unt var, og aldrei nema það, sem
ekki var liægt að fresta, t. d. að gefa
skepnunum og mjólka kýrnar. Það
var mesta goðgá, ef maður vann
verk með tæki, sem snerist í hring,
svo sem að spinna, vinda af liespu-
trje, hora eða því um líkt, því að
fóllc trúði því, að sólin livíldi sig um
stund um sólstöðurnar (þaðan er
nafnið) og þá mátti ekki trufla hana
með þvi, að láta nokkurn lilut snú-
ast. Þessvegna sagði kerlingin, þegar
vinnukonunni hennar varð ó, að
hreyfa rokkinn fyrir þrettándann:
„í guðs bænum spinn þú ekki núna.
Jeg á ekki nema eina kú, og hana má
jeg ekki missa!“
Það var ágætt vopn gegn kvillum
og slysum á aðventu og jólum, að
gera krossmark eins víða og við
i