Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1940, Blaðsíða 11

Fálkinn - 05.07.1940, Blaðsíða 11
FÁLKINN 11 Sjóferð víkingaskipsins »WOLF« Útdráttur úr samnefndri bók eftir Roy Alexander Framhald úr sfðasta blaði. Það var einkennilegt og frem- ur ömurlegt að vakna morgun- inn eftir i lestinni, sem var full af föngum. Er við fórum upp stigann komumst við að raun um, að við bæði uppgönguopin stóðu varðmenn með alvæpni. tJr lestaropinu sáum við Wairuna, sem lá við festar og vaggaði sjer á öldunum, en i bak- sýn voru jurtagarðar Sunnudags- eyjar. Eftir morgunverð, sem var kaffi og rúgbrauð, var föng- unum gefið merki um, að þeir mættu ganga upp á þilfar. Við skoðuðum skipið af miklum á- huga. Á skutnum var 5.9 þuml. fall- bj-ssa og dáðumsl við að, hve meistaralega vel hún var falin. Af þilfarinu varð meira að segja ekki annað sjeð en þetta væri bóma. Tarpalin var vafið um þessa dulbúnu bómu, en undir henni sat varðmaður, sem bafði stöðugt símasamband við stjórnpallinn. Á bátaþilfarinu voru vjelbyss- ur, og var kjöftum þeirra beint að þilfarinu, sem fangarnir böfð- ust við á. Alls var skipið búið sjö 5.9 þumlunga fallbyssum og fjór- um tundurskeytabylkjum. Þýsku hásetarnir —- áböfnin var alls um 400 — sem við sáum, virtust vera einvalalið. Þeir voru bústnir, knálega vaxnir og flestir á aldr- inum frá 25—30 ára. Þetta voru alt bestu strákar og ljetu fang- ana alveg í i'riði. Annar dagurinn minn um borð í Wolf var sunnudagur. Er hádegisverðinum var lokið, varð jeg þess var, að fangarnir lilökk- uðu til eftirmiðdagsins. Var það vegna þess, að það var siður um borð í Wolf, að gefa hverjum fanga einn bolla af kakaó á sunnudagseftirmiðdögunum, og auk þess ljek þá bljómsveit skips ins altaf i tvær klukkustundir. En þetta var ljelegasta bljóm- sveitin, sem jeg liefi nokkru sinni ldýtt á. Hún kunni aðeins fimm lög og þau ljek hún upp aftur og aftur. Umskipunin á vörunum úr Wairuna stóð í hálfan mánuð, en var iðulega trufluð af brimi og það svo miklu, að skipin gátu ekki legið lilið við lilið. Wairuna, sem var með fullfermi og auk þess 1200 tonn af kolum í box- unum, var stór ránsfengur fyrir Wolf. Það, sem var kærkomnast, voru 20 lifandi kindur, en nýtt kjöt liafði ekki verið til um borð í Wolf i marga mánuði. Þegar búið var að afferma Wairuna var farið með skipið út á rúmsjó og því sökt með kúlnaregni. Skömmu seinna rakst Wolf á nýja ln*áð, og var það ameríska seglskipið Windslow, sem var hlaðið bensíni, múrsteini og 350 tonnum af kolum. Alt þetta kom Wolf í góðar þarfir; í kolabox- unum var nóg rúm fyrir lcolin, flugvjelin þurfti bensin og það var skortur á múrsteini í hin mörgii eldstæði. Þessu skipi var sökt á sama liátt, eftir að alt nýtilegt hafði verið flutt yfir í Wolf. Það var liöfuðnauðsyn fyrir Wolf, ef vel átti að takast, að engin mannlaus og yfirgefin skip væru ofansjávar, sem gæfu til kvnna livar Wolf væri — eða yfir höfuð, að víkingaskipið væri til. Okkur föngunum var leyf t að hafast við á þilfari alt til sólar- lags. Eitt kvöldið, rjett áður en við slcyldum í'ara undir þiljur, söfnuðumst við saman aftur und- ii skut og mynduðum þar skjól- garð um tvo okkar, sem böfðu á- lcveðið að gera tilraun til að strjúka. Þeim tókst að laumast fyrir borð, og ætluðu þeir sjer að synda til næstu eyju, en senni- lega hefir þeim ekki tekist það, því að þarna er sjórinn fullur af hákörlum. Til þeirra hefir al- drei spurst. í hvert sinn, er nafna skráin var lesin upp, svaraði ein- liver i þeirra stað, og þannig komst þelta ekki upp fyr en all- miklu seinna. Von Oswald yfirfor ingi, sem bafði ýfirumsjón með föngunum, var hreinræktaður Prússi, glæsilegur og mjög virðu- legur. Hann lijelt meira að segja öllum virðuleik sínum, er liann kom niður liinn bratta stiga, sem lá niður í lestina, og var l>að vel gert. Hann var i hvítum og gyltum einkennisbúningi, og á þeim var hvorki blettur nje lirukka. Jakkakraginn var svo hár og rækilega „stífaður“, að yfirforinginn gat engan veginn breyft höfuðið — ef bann ætlaði að líla tii hliðar, þá varð hann að snúa öllum búknum. En þeg- ar slcrautklæddi maðurinn komst að raun um, að tveir fangar befðu flúið, þá umhverfðist hann allur. Hann slepti sjer alveg, virðuleiki bans fór út i veður og vind og liann fjekk mörg af þessum reiðiköstum, sem eru einkennandi fyrir þýska yfirfor- ingja. Hvernig á því stendur, að Þjóðverjar hafa fengið orð fyrir að vera værukærir, hlýtur að verða öllum, sem nokkuð bafa umgengist þá, lireinasta ráðgáta. Fúkyrði þau, sem von Oswald ljet sjer um munn fara, er liann varð hvarfsins var, líktist mest orðbragði götusala i Porl Said er vörum befir verið stolið frá honum. Ilann liljóp upp á þil- far og niður aftur, hann gargaði og öskraði, bölvaði okkur niður fyrir allar liellur bæði á þýsku og bjagaðri ensku, liann afskræmd- ist í framan, augasteinarnir stóðu sem á stiklum og ragnið vall upp úr lionum. „Þetta er í fvlsta máta óheiðarlegt“, öskraði liann að lokum. „Alt til þessa, athugið það, hafið þið ekki verið fangar — heldur gestir þýsku flota- stjórnarinnar!“ (Gestirnir, sem stóðu þarna í röðum, göplu af undrun). „Það er mjög lítilsvirð- andi, er gestir hlaupa á brott. Og framvegis“, hann ljest vera mjög móðgaður — „eruð þið ekki gestir. Þið eruð fangar!“ Hann gekk að stiganum, sótti i sig veðrið og livæsti siðan að okkur: „Þið eruð ókurtei'sir! Mjög ókurteisir! Jeg skal fram- vegis gæta þess, að þið hlaupið ekki á brott — verið vissir um það, skepnurnar ykkar!“ „Gestirnir“, sem ekki voru lengur gestir, ráku upp gleðióp, er von Oswald hvarf upp lúgu- opið. Það er gamall siður hjá þýsk- um yfirforingjum — mjög svo ólíkt breskum sið — að lýsa gremju sinni með því, að öskra og skammast ákaflega, Negrer, skipstjóri á Wolf, sem var feit- laginn, virðulegur og þögull maður að jafnaði, sýndi þetta einu sinni mjög vel. Nokkrum af hásetunum hafði verið skipað að láta kol í grindur, og einn þeirra kom til vinnunnar klæddur frakka, með pípuhatt á böfðinu og með göngustaf — þetta hafði bann fundið í einum af binum hernumdu skipum. Það vildi þannig til, að skipstjóranum varð litið út fyrir stjórnpallinn, og sá hann þá manninn vera að moka kolum, þannig klæddur. Skamm- irnar, sem skipstjórinn jós yfir yfir vesalings hásetann, voru al- veg dæmalausar. Þetta æðiskast, sem skipstjórinn kom sjálfum sjer i, stóð í nokkrar mínútur, það skemtilegasta af þessu var þó hásetinn. Han stóð þarna efst upp á kolahrúgu, kjólklæddur og með pípuhatt, og var að reyna að ná jafnvæginu til að geta staðið teinrjettur á meðan skip- stjórinn ljet skömmunum rigna yfir hann. Jafn furðulegt var að heyra skipstjórann hætta skömm unum alt í einu og sjá hann sið- an halda áfram að þramma fram og aftur eftir þilfarinu eins og ekkert hefði í skorist. Seint í júní vorum við á sveinn í Tasmanhafi, sem er út af norð- ur odda Nýja-Sjálands, og fór skipið með hálfri ferð. Við komumst á snoðir um, að ætlunin væri að leggja- tundur- duflum á þessum slóðum. Nú var föngunum aldrei, að einum degi undanskildum, lileypt upp á þiljur. Skipshöfnin var önnum kafin við að búa alt undir starf- ið næstu nótt. Við heyrðum er þeir voru að smíða grindur á þilfarið yfir liöfðum okkar, til þess að hægt væri að leggja tundurduflunum aftur af skut- inum. Milliveggurinn, sem skildi okk- ur frá þriðju lest, var úr stáli, en á honum voru nokkrar rifur, og gegnum þær gátum við sjeð tundurduflin — 200 talsins — sem Wolf liafði enn innanborðs. Þarna voru þau í löngum röðum, hvert þeirra i stálhylki, og voru þau alveg eins og svört tunnustór egg í eggjabikar. Við gátum ó- mögulega varist þeirri hugsun, hvernig fara mundi fyrir okkur, ef sprengikúla hitti lestina, sem þessar „vörur“ voru i. Margir af föngunum höfðu þyrpst saman upp í lestarkarminum til þess að sjá, hvað skipshöfnin aðhefðisl uppi á þilfarinu. Sjerbverju tundurdufli var fesl með löngum vírþræði, sem var vafinn upp á rúllu, við hylki, sem var á hjólum þannig, að liægt var að aka þvi eftir grindunum og þilfarinu. Þannig voru tund- virduflin flutt úr lestinni og aftur i skutinn, en þar voru þau látin falla í sjóinn. Málmhylkið sökk lil botns og verkaði nú sem akk- eri, en vírþráðurinn vafðist sjálf- krafa af rúllunni þar til tundur- duflið var komið á ákveðið dýpi. Dýpi þetta var venjulega ákveðið um 15 fet (frá yfirborði sjávar) til þess að aðeins allstór skip skyldu rekast á þau. Framh. Graf von Spee, frægasta víkingaskipið það sem af er þessn slríði.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.