Fálkinn - 26.09.1941, Blaðsíða 7
F Á L K I N N
7
Myndin er tekin um borð i enska beitiskipinu ,,Sheffield“,
þar sem það er að fytgja kaupskipaflota skamt frá Sikiley.
Óvinaskip rjeðust á þessa skipalest, en voru hrakin á
burt, án þess að tjón yrQi að á skipum Breta. í baksýn
■á myndinni sjest annað enskt beitiskip.
I Norður-írlandi hefir breskur her og floti œfingar sem
annars staðar, þar á meðal í því, að gera innrás iír bát-
um. Hjer á myndinni sjesl enskt fótgöngulið œfa slíka
innrás úr bát, á stöðuvatni einu í Ulster.
Þessi mynd er einnig frá Norður-írlandi. Þar eru her-
menn að róa yfir á og eru allir með vopn nema þeir,
sem eru nndir árum. Þetla er eitt af því, sem enskir fót-
gönynliðsmenn eiga að kunna.
Þó' að enn berjist ítalskar hersveitir í Abessiníu, hefir landið raunverulega verið á valdi
Breta í marga mánuði og Haile Selassie keisari er aftur kominn i ríki sitt. Ifjer á myndinni
sjest Afríkuhersveit, sem tekin hefir verið lil fanga af Bretum.
,,Heima-varðliðið“ eða ,,Home Guard“, sem á að mæta óvinum Englands, ef þeir ráðast inn
í lándið, hefir hin fullkomnustu vopn og er æft i inargvíslegum vopnaburði. Hjer á mynd-
inni sjást liðsmenn í heima-varðsveit vera að hlusta á liðsforingja, sem er að lýSa því fyrir
þeim, hvar skriðdrekunum sje hættast, þegar á þá er ráðist.
Hermenn þessir
fallbyssum ekið
eru að draga fallbyssu á sjálfnm sjer upp brekku. Þó að nú sje flestum
með vjelaafli, eiga hermennirnir að kunna að beita sjer fyrir þœr, ef vjel
kynni að bila.