Fálkinn - 02.10.1942, Síða 7
F Á L K I N N
7
Þessi 'mynd er sunnan úr Lybiu og sýnir þýska sprengjuflugvjel, sem skotin var niður yfir
fíeninaflugvellinum við fíenghazi. Undir vjelinni sjást þýskar sprengjur.
Myndin er tekin um borð í enska herskipinu „Warspite",
þegar það er aö búa sig í ferö. A þilfarinu liggja 15 þuml-
unga sprengikúlur, sem veriö cr aö koma fyrir. Þetta
fræga herskip er af svonefndri „Queen Elizabetli-gerÖ“ og
er 30.000 smálestir. Hefir þaö átján 15 þuml. fallbýssur,
átta 6-þumlunga byssur, átta 4-þuml. loftvarnarbyssur, auk
ýmsra smærri, og fernar rcnnibrautir til aö skjóta út
flugvjelum.
í „orustunni um Engtand“, sem hófst 8. ágúst 1940, kvaö mikið að árásum þýskra flug-
vjela á enskar borgir. Nú er þetta öfugt, því að breskar flugvjelar fara hundruðum saman
til tneginlandsins og valda miklum spjöllum i verksmiðjuhverfum þýskra borga, svo sem
í Köln, Essen, Bremen, Ltibeck og Diisseldorff. Boston-sprengjuvjelarnar, hafa mikið veriö
notaöar tit þessara stórárása aö degi til og svo Stirling-vjelarnar, sem sjást lijer á mynd-
inni. Eru þær meö fjórum hreyflum og bera 8 smál. af sprengjum.
Þessar Hurricane „orustu og sprengjuvjelar“ eru notaðar til árásanna á Frakklund bæöi
aö nóttu og degi og eins í Rússlandi og Lybíu og til skipaverndar á Atlanthafi. Ilafa þær
betri byssur, en nokkur önnur einhreyfilsflugvjel. Þegar þær eru notaðar fyrir sprengjur,
eins og hjer á myndinni, hafa þær áukageymi fyrir bensín og geta bá flogið eins langt og
meðal sprengjuflugvjel.
í „verksmiðju hinna sameinuðu þjóða“ — einhversstaöar
í Englandi, er unnið aö því, aö smiða hinar nýju Sten-
byssur, sem þykja taka fram öllum eldri hermannabyss-
um, og eru þó miklu fljótsmiðaöri en eldri tegundir. Þarna
vinna, ásamt Bretum, bandamenn þeirrá úr hernumdu
löndunum og flóttamenn úr löndum öxutveldanna
Pólverjar, Tjekkar, Ungverjar, Belgar, Frakkar, Austur-
rikismenn, Þjóðverjar, írar, Skotar og Walesbúar og Am-
eríkumenn. En verksmiðjustjórinn er Svíi, sem tengst af
hefir dvaliö i Bandarikjunum. Hjer á myndinni er ung-
ur kvenstúdent frá Austurriki við vinnu sína í verk-
smiðjunni.
i