Fálkinn - 16.07.1943, Síða 1
16 síður.
Við upptök Skeiðarár
Þröskuldurinn, sem stigið er gfir þegar komið er inn i eina stúrfenglegustu bygð landsins, Öræfin, heitir Skeiðará, og kannast
hvert islenskt mannsbarn við nafnið. Þyí að þessi mikla elfur hefir lengi verið alræmd að því að „bantxa ferðir manna“, eins
og Hannes Hafstein kvað um Ölfusá forðum, og jökulhlaup hafa oftar í hana komið en nokkra aðra á á Islandi, og valda
því gosin í Vatnajökli. Á síðari árum er að jafnaði farið gfir ána á jökli, rjett hjá upptökunum, og er myndin af þeim slóðum.
Maðurinn með hestuna er að ríða yfir smálænu við jökulbrúnina, en í miðri liæð t. h. á myndinni beljar áin fram. / baksýn
blasir við Skaptafeltsheiðin með skógartorfum og Öræfajökull. — Ljósmynd: Vignir.