Fálkinn


Fálkinn - 16.07.1943, Page 6

Fálkinn - 16.07.1943, Page 6
6 F Á L K I N N - LITLfi SfiBfm - G BRANDT: Flutningastúss Þegar forfeöur víkinganna sáu aS snjórinn var farinn að bráðna og þeim var orðið of heitt i loðskinns- úlpunum, fóru þeir út úr hreysinu, þefuðu af sunnanvindinum og sögðu: Nú er komið vor — nú flytjum viðl Svo töluðu þeir við krakkana, stráðu sandi á öskuhauginn og fluttu sig með konu og krakka i næsta rjóður í skóginum. Og síðan hefir fólk altaf fiutt sig á vorin, því að allir vilja komast á nýjan stað þegar liitnar i veðri. — En þó ætti maður að hugsa sig um tvisvar áður en maður dregur upp tjaldhælana. Nýja ibúðin er nfl. sjaldnast betri en sú, sem maður hafði og svo er þetta að flytja litið skárra en stríð, stjórnarbylting eða jarðskjálfti. Jeg hlýt að minast ameríkanska auglýsingastjórans, sem átti heima i gömlu, fallegu kyrlátu húsi. Konan hans hafði verið að kvarta yfir fá- menninu þarna utanbæjar og vildi komast í borgina, og loksins settist hann og skrifaði auglýsingu um, að húsið væri til sölu. Jeg man ekki gjörla hvað hann skrifaði en það var eitthvað á þessa leið: „Yndislegt, gamalt hús með öllum nýtísku þægindum, nærri skóg og baðfjöru, er til sölu ódýrt. Rjetti staðurinn fyrir 'fólk, sem vill anda að sjer ilm furuskógarins og hlusta á nið sjávarins. Yillivínviður breið- ist upp eftir framhlið liússins og garðurinn er blómstrandi Paradís. Undir háum hausthimninum er Ioft- ið tært eins og vín, og þegar heim kemur logar eldurinn á arninum.“ Jeg man ekki livað hann skrifaði meira, en svo bar hann frumvarpið undir konu sína, sem að vörmu spori fór að skæla, og spurði hvort hann „dirfðist að ætla að selja yndislega hú—hú—húsið þeirra.“ Jæja, ef þjer ætlið að Ieita nýrra húsakynna þá er betra að vera þol- inmóður, því að hús i smiðum er aldrei fullgert á tilskildum tíma. Bjartsýnni menn en húsameistarar og trjesmiðir eru ekki til. Maður rekst svo oft á holu grafna í jörðu, en hjá stendur auglýsing á spjaldi: „Nýtísku 2. og 3. herberja íbúð til leigu, eftir tvo mánuði.“ Sje maður bjartsýnn getur maður reynt að líta á húsið, sem maður á að flytja inn i, svona mánuði eftir þessa tvo mánuði. Þá vantar bæði hurðir og glugga, og niðri í stof- unni er múrari, sem horfir angist- araugum á vegginn. En hann múrar ekki. Hann segist ekki komast að fyr en trjesmiðirnir sjeu farnir. í kjallaranum er trjesmiður, sem lika horfir angistaraugum og hreyf- ir sig ekki úr stað. Þá fer maður til húseigandans og hann segir manni að tala við húsameistarann, en hann ráðlegur manni að vera þolinmóð- ur. Tveimur mánuðum síðar kemur sú gleðifregn, að maður geti flutt inn eftir viku. Maður þýtur af stað til þess að sjá hvernig liúsið lítur út. Nú er komið þak og reykliáfur og handrið á stigana, en þegar komið er inn í stofuna sljákkar í manni. Liturinn sem átti að vera þar, er á eldhúsveggjunum en stofan er emal- íublá. En hver setur slíka smámuni fyr- ir sig, þegar hugsað er til þess, að nú er hið mikla augnablik að nálg- ast? Nú fær maður flutningsmann og einn góðan veðurdag stendur maður með lífið í lúkunum meðan flutningsmennirnir eru að kútvelta hinum viðkvæmu húsgögnum. Það þarf stáltaugar til að horfa á þegar fjórum—fimm stólum er hlaðið upp á borð og krystalskál sett á hvolf, ofan á. Loks þolir maður ekki að sjá meira, en fer út i heimsókn. Þegar maður svo kemur heim aftur að kvöldi á nýja staðinn, er alt afstað- ið og maður setur nafnplötuna á dyrnar og flutningurinn er búinn í það skiftið. En, æ, þetta er ekki íbúð, sem maður er kominn í, heldur skot- grafir. Að undantekinni útihurð- inni eru engar hurðir komnar á sinn stað ennþá, og eina huggunin i því máli er sú, að þá geti krakk- arnir ekki skelt þeim. ■Þarna er hvorki gas eða rafmagn og maður verður að jeta kalda ket- snúða við tólgarkerti. Til þess að reyna að gleyma býðst maður til þess að þvo upp, meðan betri helm- ingur manns er að liengja upp gluggatjöldin. En þegar maður hell- ir þvottaskólpinu i vaskinn fær maður steypubað yfir lappirnar, því að niðurfallspípan er ekki komin ennþá. Maður fer inn til þess að kvahta en dettur þá uin þvottafötu og rekur sköflungana i brún á kassa með postulíni. Næst uppgötvar mað- ur að börnin eru að leika kafbáta- hernað með bestu vindlana á heim- ilinu. Svo rekst maður á kollustól og rennur í grænsápuklessu, gripur til stuðnings í gluggatjaldið og að vörmu spori kemur gluggatjalds- stöngin i hausinn á manni og maður lympast niður á stól í hálfgildings öngviti. Maður situr þó ekki lengi á stólnum, því að þar er heill söfnuður af teiknibólum, sem allar snúa oddunum upp. Svo reynir á hvort maður er þoi- inmóður eins og Job gamli og tekur við löðrungunum í þeirri röð sem þeir koma. Líka kemur það fyrir, að lesa má morguninn eftir í blöð- unum svolátandi frjett:Maður myrð- ir konu sína og börn og hengir sig í lampakróknum! Já, það er vitleysa að flytja í nýja ýbúð, en stundum er þó varra að flytja í íbúð, sem önnur fjöl- skylda er nýflutt úr. Jeg fluttist einu sinni í ibúð heiðursmanns sem hjet Olsen og því nafni gleymi jeg aldrei. Fyrsta morguninn sem við vökn- uðum þar stóð mjólkurflaska við dyrnar og þó við hefðum ekki pant- að neina mjólk afrjeðum við að hirða flöskuna og hita okkur kókó- bolla. En þetta reyndist þá súr- mjólk. Bragðið að kókóinu er enn í munninum á mjer. En þetta var ekki eina bölvunin, sem þessi ókunni Olsen gerði mjer. Mónuðum saman gerði jeg ekki ann- að en skýra ýmsu fólki frá því, að jeg hjeti ekki Olsen. Einn gesturinn vildi fá ábyrgðartryggingu fyrir hund, þó að við ættum ekki aðrar skepnur en gullfiska. Og annar lieimtaði að stemma hljóðfærið okk- ar, þó að við hefðum aldrei eign- ast annað hljóðfæri en útvarp. En svo var okkur hótað lögtaki sama dag, þvi að Olsen hafði keypt rit Grundtvigs upp á afborgun, og ausið yfir okkur skömmum vegna þess að við vildum ekki gerast á- skrifendur að mánaðarriti um kan- ínurækt. Þá sá jeg að nú voru góð ráð dýr. Jeg fjekk prentsmiðju til að prenta sex eintök af auglýsingu, með stærstu stöfum sem hún átti. Þar stóð: OLSEN ER FLUTTUR. Og jeg límdi þær allar á útidyrn- ar. Þá loksins fengum við frið — en jeg liugsa með skelfingu hvernig hefði farið, ef jeg hefði líka heitað Olsen. Já, það er kvöl að þurfa að flytja. En nú má jeg til að hætta. Hjerna eru nefnilega komnir tveir krafta- menn að sækja skrifborðið mitt. Jeg er nefnilega að flytja ...... /r Theodór Árnason: Operur, sem lifa. La Trauiaía (L jettúðardrósin) Efnis-ágrip. Þriggja þátta ópéra, eftir ít- alska tónskáldið Verdi (1813— 1901). Textinn saminn upp úr skáldsögu Alexander Dumas (yngri) „La Dame aux Camil- ias“ („Kamilíufrúin"), stilfærð- ur af italska rithöfundinum Piave. Frumsýningar: Teatro Fenice, Feneyjum 6. mars 1853, Her Majesty Theatre, London 24. maí 1856, Acadepiy of Music, New York 3. júni 1856, Theatre Italien, Paris 6. desember 1856. „La Traviata“ kom fram þriðja í röðinni þeirra þriggja ópera, sem vinsælastar hafa orðið af þeim 30, er Verdi samdi, og þóttu á sinni tíð meistaraverk, hvort heldur mið- að var við fyrri verk hans sjálfs, eða annara óperuhöfunda. Hitt er annað mál, að „Aida“ er talin full- komnust og sjerkennilegust allra tónsmiða Verdis, og kom fram löngu siðar (1871) (og eins er „Fal- staff“, sem er með alt öðru yfir- bragði, en allar aðrar óperur höf.). „Rigoletto" dg „II Trovatore“ var þegar í upphafi tekið forkunnar vel. En þegar „La Traviata“ var leikin í fyrsta sinn i Feneyjum, 6. mars 1853, var heldur en ekki annað uppi á teningnum. Áheyrendur hlógu að vísu, en þeir hlóu ekki af þvi, að þeim þætti óperan sjálf skemtileg, heldur af því, hvað þeim fanst liún fáránleg. „La Traviata“ þótti sem sje algerlega mishepnað verk, — ómögulegt! Verdi skrifaði vini sínum um þetta, daginn eftir frumsýninguna: „Það fór alt út um þúfur með Traviata mína, í gær- kvöldi. Eru mistökin mjer að kenna, eða leikurunum? Tíminn leiðir það í Ijós.“ Og tíminn leiddi það einnig i ljós, að leikararnir, eða öllu held- ur þeir, sem völdu leikarana i hlut- verkin, báru alla ábyrgð á mistölc- unum. Tenórinn (Graziani) var kvefaður, en söng samt, liásri rödd og óáheyrilegri. Þar með var það lilutverk eyðilagt. Barýton-söngvar- inn gat ekki hæsi um kent, en fór svo kæruleysislega með glæsilegt hlutverk, þó lítið væri, að það fór alt „í hund og kött“. Og í hlutverk aðalpersónunnar, viðkvæmrar og fingerðrar „gleði-konu“, hafði ver- ið valin einhver „stæðilegasta“ söng- konan, sem nokkurntíma hafði sjest á leiksviði (Mme. Donatelli), sem var að sama skapi „vel á sig kom- in“. Hafði áhorfendum komið þetta sjerstaklega skringilega fyrir sjón- ir i byrjun þriðja þáttar, þegar Violetta liggur fyrir dauðanum, og læknirinn lýsir því yfir, að bún sje þegar langt leidd af brjóstveiki, sem hafi tœrt hana svo, sem raun ber vitni um. Þetta stóðust áhorfend- ekki. Því að hún var ,ekki aldeilis „tærð“ þessi Violetta, sem var að stynja og kjökra á leiksviðinu. Og svo var lilegið og fussað. Ónothæft verk! Handritinu fleygt i höfund- inn. í þrjú ár heyrðist ekkert um „La Traviata“. En árið 1856 er ó- peran sýnd í • þrem höfuðborgum heíms, Lundúnum, New York og Paris, og náði þegar fádæma vin- sældum, -—- og enn nýtur hún al- þýðuhylli. I þessari óperu, eins og öðrum verkum Verdis, úir og grúir af ljúfum og ljómandi stefum, dá- samlega fögruin perlum, sem þó eru þannig fægðar, að ekki þarf „sjerfræðinga“ til að njóta þeirra, enda urðu ýms þessara stefa á hvers manns vörum um heim allan, þegar „Traviata“ var búin að fara sigurför sína. Jafnvel kom það ekki ósjaldan fyrír, að sendisveinar i Reykjavík blístruðu kalfla úr „Tra- viata“ hjer á götunum, á árunum 1910—’12. En þá var lijer ágætur fiðlari á Hótel ísland (Oscar Jo- hansen), er Ijek oft á kvöldin „syrpu“ úr þessari óperu. En dreng- irnir stóðu úti fyrir gluggum og lærðu lögin. — Óperan hefst eklu með venjulegum „forleik“, heldur einskonar „preludiu", — sem að visu er liklega „forleikur“ líka, á íslensku, en þó annað en „over- ture“. Og er þessi „preludia" út af fyrir sig einkar fögur og ljóðræn tónsmíð, tignarleg að yfirbragði. Fullorðnir Reykvíkingar kannast við Ieikritið „Kameliufrúin", sem einnig er sarnið upp úr liinni sömu skáldsögu Dumas, þar sem Stefanía heitin Guðmundsdóttir skapaði eina af sínum ógleymanlegu persónum. í óperunni er söguþræðinum fylgt á mjög svipaðan liátt og í sjónleikn- um, þótt að vísu sjeu geþð ýmis- konar liliðarstökk. En efnið er þetta, í stuttu máli: Aðalpersónan, Violetta Valery, er ein orðlagðasta ljettúðar-„dama“ Parisar-borgar, og forkunnar fögur. Alfred Germout verður ástfanginn aí lienni, „upp fyrir bæði eyru“ og Violetta finnur það, að tilfinningar hans gangvart henni eru á annan Frh. á blí. 11. t

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.