Fálkinn - 19.05.1944, Qupperneq 2
2
F Á L K I N N
Worm-Miiller ritar bók fyrir Islendinga um
Noreg undir oki nazismans
Gleggsta og besta yfirlit, sem við íslendingar höfum átt völ á til þessa um atburðina í Noregi frá því að nas-
istar rjeðust inn í landið og til síðustu áramóta.
Efni bókarinnar er:
Holskefla Nasismans — Innrásin og Quisling — Samningarnir við Stórþingið — Þjóðverjar kasta grímunni
Heimavígstöðvarnar myndast — Ógnaröíd — Quisling reynir að koma nýskipan á — Fangelsi og fangabúðir
Norska þjóðin gefst aldrei upp — Konungsminni 3. ágúst 1942 — Snorri Sturluson og Noregur
Þetta er stórmerkt sögulegt heimildarrit og þó svo spennandi frásögn um atburði, sem gerðust í gær og í dag, að
hún verður hverjum manni ógleymanleg. — Eignist þessa bók nú þegar, því innan skamms verður hún ófáanleg.
Bækur um Noreg.
Þessa (lagana hafa komið út þrjár
bækur, norskar að efni, í tilefni af
þjóðardegi Norðmanna.
Er þar fyrst að nefna nýja ljóða-
bók eftir Nordahl Grieg, sem hefir
eingöngu að geyma kvæði, er hann
orkti eftir innrásina í Noreg. Bók
þessi er prentuð á norsku í aðeins
200 tölusettum eintökum og útgáfan
einkar vönduð. Esmarck sendiherra
Norðmanna lijer á landi ritar for-
máia fyrir bókinni, sem mun vera
fyrsta frumútgáfa af útlendum ljóð-
um, sem gefin liefir verið út hjer á
landi. Það er’ Helgafellsútgáfan, sem
gefið hefir út bólcina.
Þá hefir Víkingsútgáfan gefið út
fallega bók eftir norskt skáld, sem
skrifar undir dulnefninu Christian
Wessel. Þetta er löng skáldsaga um
daglegt líf í Noregi undir hernám-
inu, einkar látleysislega sögð en lif-
andi lýsing á hörmungartimum
Noregs. Síra Jakob Jónsson hefir
þýtt bókina eftir frumútgáfunni,
sem er á sænsku.
Loks er komin á prent bók eftir
próf. Jac. S. Worm-Miiller, er hann
skrifaði meðan hann dvaldi lijer á
landi í hittifyrra. Þar segir hann
sögu hernámsins frá upphafi og
fyrstu tvö árin, mjög ítarlega, en
í eftirmála rekur hann söguna áfram
i sem fæstum dráttum fram til
síðustu áramóta. Þetta er eflaust hesta
heimild sem til er á íslensku um
Noreg siðustu ára. Bókin heitir
„Noregur undir oki nazismans“ og
er prýdd fjölda mynda. Blaðamanna-
fjelagið gefur bókina út og rennur
allur ágóðinn af sölu hennar til
Noregssamskotanna.
AUra þessara bóka verður nánar
getið siðar.
/*//*/ /^/ /+/ /*/
Ella: — Hann sagði að jeg væri
fallegasta og gáfaðasta stúlkan, sem
hann hefði nokkurtima hitt á æfi
sinni.
Frænkan: — Og erlu svo vitlaus
að ætla að bindast æfilangt manni,
sem lýgur svona hrapalega að þjer?
— Jeg verð að segja yður, að hún
dóttir mín getur ekki fært bónda
sínum annað í búið en fegurðina
og vitið.
— Það gerir ekkert til. Það eru
mörg ung hjón sem hafa byrjað
með litið.
Sundhöllin opin í sumar
Klukkan 7.30-10 10-12.30 12.30-2.15 2.15-8 8-10
Mánud. Bæjarb. Yfirm. Bæjarb. Innl. Erl. karl. Bæjarh. Bæjarh.
Þriðjud. Bæjarb. Yfirm. Bæjarh. Innl. Erl. karl. Bæjarb. Ilerinn.
Miðvikud. Bæjarh. Yfirm. Bæjarb. Innl. Erl. karl. 5^6 kon. Bæjarh.
Fimtud. Bæjarb. Yfirm. Bæjarh. Innl. Erl. karl. Bæjarh. Bæjarh.
Föstud. Bæjarb. Yfirm. Bæjarh. Innl. Erl. karl. Bæjarb. Bæjarh.
Laugard. Bæjarb. Yfirm. Bæjarh. Bæjarbúar Bæjarb. Herinn.
Sunnud. kl. 8-10 bæjarb. og yfirm. 10-2 Bæjarb. 2-4 Herinn.
Ath.: Miðasala hættir 45 mín. fyrir lokunartíma
Geymið auglýsinguna!
Kaupmenn og Kaupfjelög
Iiöfum í heildsölu myndaramma úr tré í 12 stærð-
um, 4 litum og munstrum. Allir með fallegum
landslagsmyndum sem fylgja ókeypis, innpakkaðir
í snotrar cellopane-umbúðir. Einnig fallegar lil-
myndir innrammaðar.
Skrifið eða símið eftir sýnishornum.
Ritfangaverslun Marino Jónsson
Yesturgötu 2.
Reykjavík.
Simar 5060 og 4787.
^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦❖♦»»♦»♦♦♦»♦♦♦♦♦»»♦» ♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦»♦♦♦♦♦»♦»♦♦♦♦<