Fálkinn


Fálkinn - 30.06.1944, Page 12

Fálkinn - 30.06.1944, Page 12
12 F Á L K I N N Pierre Decourelli: 7 Litlu flakkararnir Hún fjekk honum brjefið. Hann varð steinhissa. — Frú Helen de Mountlaur. .. . ? OrSin dönsuSu fyrir augum hans. — Helen de Mountlaur, endurtók haun og skyldi hvorki upp nje niSur. Carmen starSi án afláts á hann. Þau stóSu svona stundarkorn. Hún var skelfd yfir þeim hræSilega glæp, sem sprotíinn var af lágum hvötum. Hann var agndofa af undrun. Gat þetta veriS til Helenu, setn var svo mikiS dyggSaljós, engill hjer á jörS. Helena meS sakleysissvipinn. Carmen sá á augnaráSi hans. hvernig lionum var innanbrjósts. — HvaS hugsar þú um hana Helenu? spurSi hún næstum upphátt, þvi aS nú var hún orSin alveg róleg aftur. Þetta er ekki í fyrsta slcifti sem'jeg sæki hrjef fyrir hana. Þau eru víst varSandi emhverja góSgerSarstarfsemi. Hún vill heklur gera gott svo lítiS beri á . Saint-Hyrieiz horfði fast á liana, eins og hann vildi lesa leyndustu liugsanir hennar. Hún IiorfSi einarSIega á móti. ÞaS ljetti af honum þungu fargi — Gat þetta veriS? Þá hefSi þessi auS- virSilegi rógberi annaShvort logiS eSa þá veriS ,sjálfur á villigötum. Carmen var saklaus og hún mundi eftir sem áSur verSa dýrlingur í hans augum. Hann bjó sig til þess aS rjetta Carmen brjefiS. En hún var svo áköf aS ná i þaS í ofsa- fenginni gleSi sinni aS grunur vaknaSi hjá honum á ný og liann sagöi: — Ágætt, úr því aS brjefiS er til Helenu, er best aS jeg fái henni þaS sjálfur. Svo lagSi hann brjefiS í töskuna og sagSi: — Eigum viS aS vera samferða heim? V. Eldingunni Iýstur niður. — Jeg elska þig, sagSi Helena. — Jeg elska þig, svaraSi Ramon. — Jeg elska þig enn heitar en þegar þú fórst, ef þaS er hægt. — Og jeg elska þig eins heitt og þegar þú fórst, því aS enginn getur elskað heit- ar. Þannig hjöluðu hin hamingjusömu hjón, en þess á milli sátu þau þögul og nutu hamingju sinnar i enn ríkara mæli meS- an þau horfðust í augu. Helena hallaði sjer að öxl Ramons og varir þeirra mætt- ust. Svo fóru þau að segja hvort öðru hvað á daga þeirra hefði drifjið síðan þau skildu. Allt í einu heyrðu þau að vagn stað- næmdist fyrir framan húsið. Carmen og maður hennar voru að koma heim. — Þau fóru að heiman saman og þau koma aftur bæði i einu. Þetta er hamingju- samt hjónaband, það má nú segja, sagði Ramon, o,g brosti með sjálfum sjer við þá tilhugsun. Saint-Hyrieiz fór upp á herbergið sitt með skjöl sín. Ramon fletti bólc með myndum, sem hann þekkti svo vel frá því í gamla daga. Helena gekk til Carmen. — En brjefin? — Jeg fjekk aðeins eitt. — Bara eitt? — Já. — Hvernig stendur á þvi? — Hvernig stendur á því? — Jeg veit það ekki jeg hefi ekki brjefið. — Hver hefir það þá? —MaSurinn minn. Helen horfði á mágkonu sína, eins og hún tryði ekki sinum eigin augum. Hvernig átti hún að skilja það, að mágur hennar sem aldrei hafði virst vera eins hamingjusamur og áður, hafði undir hönd- um brjef, er ljóstraði upp leyndarmálinu. — Þú verður að skýra þetta nánar. Carmen stóðst ekki hið spyrjandi augna- ráð Helenu. Hún leit undan. Loks sagði hún með erfiðismunum: Fyrirgefðu mjer, elsku besta systir mín. Enn þá einu sinni þarfnast jeg umburðar- lyndis þins og fyrirgefningar. — HvaS hefir komið fyrir, sagði Helena og var orðin óróleg. — Þegar jeg hafði skilið við manninn minn, sem ætlaði i ráðuneytið, fór jeg á pósthúsið til þess að athuga, hvort brjefin væru komin. Jeg fjekk aðeins eitt lítið hrjef Jeg ætlaði þá að rífa það upp, en þá sá jeg mann standa fyrir framan mig. Það var maðurinn minn, sem hafði elt mig. — Guð minn góður það er úti um þig. Haltu áfram. — Þú skilur ekki, hvernig hann gat verið svona glaður og ánægður, þegar hann kom heim. ÞaS er einmitt þessvegna sem jeg verð að biðja þig fyrírgefningar. Jeg þarf að játa nokkuð fyrir þjer. — Hvað er það, Carmen. Þú veist að þú getur treyst mjer. Segðu mjer það sem þjer liggur á hjarta. — Já, já, sagði Carmen og leit undan, þó að Helena væri svona blið, átti hún mjög erfitt með að stynja upp játningunni. Þegar maðurinn þinn var ekki heima, datt mjer í hug að biðja d’Alboise að senda mjer brjefið. ... — Hvað svo? — Undir þínu nafni. — Mínu nafni? —Já, og þegar Saint-Hyrieiz lcomst yfir brjefið í dag, hjelt hann ..... — Að það væri til mín, að það væri jeg sem...... — Nei, nei, flýtti Carmen sjer að segja, henni fannst hvert orð sem ákæra. Nei, þú mátt ekki halda það. Jeg sagði honum að það væri varðandi góðgerðastarfsemi, sem þú 'hefir áhuga fyrir. Það er síður en svo að hann fyrirliti þig. Hann hefir enn meira álit á þjer en áður. — Þá bætist við ein lygin enn, sagði Helena beisklega. — Hvað átti jeg að gera? — Nei, þú hefir rjett fyrir þjer. — Vertu róleg kæra Helena. Þú hefir bjargað mjer úr mikilli hættu. — En hvar er brjefið núna? Hefir mað- urinn þinn það ennþá? — Já, hann hefir það og ætlar að fá þjer það sjálfri, þú verður þá einu sinni ennþá að reyna að koma ekki upp um okkur. — Já, jeg liefi þegar gengið of langt, til þess að hægt sje að snúa aftur. Og um leið greiði jeg þjer þá þakklætisskuld, sem jeg stend i við þig. Þá var hringt til hádegisverðar. — ViS skulum setjast að snæðingi, sagði Saint-Hyrieiz, um leið og hann kom inn i dagstofuna. —- Þetta er síðasta máltíðin, sem við borðum saman um lengri tíma, en við skulum ekki láta það á okliur fá. Þrátt fyrir allar tilraunir voru þau dauf í dálkinn við borðið, og þegar Ramon, í lok máltíðarinnar, drakk skál ferðafólksins og óskaði'þeim góðrar ferðþr voru augu þeirra allra tárvot. Tíminn er fljótur að líða, þegar búist er til brottferðar, en samt fannst Carmen hann óendanlega langur og hún sagði hvað eftir annað lágt við Helenu: —- Hvernfg gengur? — Ennþá hefir ekkert gerst, svaraði hún. Ramon og Helena ætluðu ekki að skilja við hjónin fyrr en þau væru komin heilu og liöldnu í hraðlestina og hún bljesi til brottferðar. Saint-Hyrieiz kom ferðaklæddur niður stigann. Mágkonurnar litu hvor á aðra. — Heyrðu Ramon, sagði Carmen til þess að leiða burt athygli hans. — Þú verður að hjálpa mjer til þess að loka ferðakistunni minni, jeg get það ekki. — Kærar þakkir, Firmen, svaraði Helena —jeg bið yður afsökunnar að jeg hefi kom- ist á snoðir um góðgerðarstarfsemi yðar. Og til þess að liljóta fyrirgefningu yðar vil jeg ganga í lið með yður og bið yður að þiggja framlag frá mjer líka. Hann rjetti henni brjefið ásamt peninga- seðli. — Kæra þakkir Firmin, svaraði Helena hrærð. — Jeg mun koma gjöf yðar áleiðis ^ til þeirra, sem á henni þurfa að lialda. —Nú verðum við að halda af stað, sagði Ramon glaðlega. — Við höfum talað allt of mikið og getum hæglega orðið af lest- inni. Þegar þau komu á stöðvarpallinn, leiddi Carmen Helenu með sjer meðfram lest- inni, eins og þær væru að athuga, hvort þær þekktu nokkurn meðal farþeganna i hinum klefunum. — Þú hefir fengið brjefið, er það ekki? spurði liún fljótt. — Jú, jeg skal láta þig hafa það. — Nei, nei, hann gæti tekið eftir því, hann er svo afbrýðissamur að það er óvíst

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.