Fálkinn - 11.08.1944, Síða 3
F Á L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstfári: Sk&li Skúlason.
Framkvjtfóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavik. Simi 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
BlaðiC kemur út hvern föstudog
Allar áskriftir greiSis fyrirfram
HERBERTSprenf.
SKRADDARAÞANKAR
Sumarleyfalöggjöfin er komin til
framkvæmda og líklega hafa ís-
lendingar aldrei ferðast jafnmikiö
og i ár, enda hefir tíðarfarið verið
hagstæðara en vénja er til. í Reykja-
vík telja fróðir menn og langminn-
ugir, að hið fyrsta sumar lýðveldis-
ins hafi tvímælalaust verið það besta
sem komið hefir á þessari öld.
En reynslan af ltesu sumri og
sumarleyfisferðunum bendir ótví-
rætt í þá átt, að nú þurfi að hefjast
handa um endurskipun — eða öllu
fremur nýskipun ferðalaga hjer á
landi og alls þess, sem til þess þarf,
að skemtiferðirnar geti komið al-
menningi að fullu g'agni. Góð gisti-
hús þurfa að rísa upp, handa þeim
sem eigi setja fyrir sig að ferðast
dýrt, og ódýrir viðlegustaðir í
bygðum handa þeim, sem vilja fara
sparlega með fje sitt. Hvorttveggja
er liægðarleikur, ef málin eru tekin
rjettum tökum. Gistihús þessi geta
hæglega borgað sig upp á 10 - 15
árum, ef liagsýni er með en eigi
ráðleysa.
Tjaldlegur hafa stórum farið í
vöxt á siðustu tiu árum og eiga enn
eftir að aukast. Þesskonar útilegur
hæfa langbest islenskum staðhátt-
um og í óbygðum yfirleitt verður
aldrei um annan fararhátt að ræða,
fyrir þá, sem vilja sjá landið, utan
aðalleiðanna. Það er að vísu gott
að sem flest góð sæluhús rísi upp í
óbygðum. Þau er hægt að nota
sem miðstöðvar fyrir lengri og
skemri ferðir um ókunnari stigu.
En mikið mundi hverfa af ljóma
óbygðanna ef farið væri að klína
þar sæluhúsum út um hvippinn og
hvappinn. —
Eitt vantar enn tilfinnanlega. Hið
opinbera hefir sett lög um sumar-
leyfin og með því liefir það ýtt und-
ir að fólk ferðist. En það hefir eigi
látið semja handhægan ritling, sem
veitt geti almenningi greið svör
við þessari spurningu: Hvert á jeg að
ferðast? eða: Mig langar til að
ferðast um þessa ákveðnu slóð og
stað, en hve lengi er jeg að komast
þangað — kemst jeg þanga gang-
andi? og því um líkt.
Ferðamálið er í rauninni stór-
mál, sem varðar hag allrar þjóðar-
innar, bæði út á við og inn á við.
Það hefir verið vanrækt hingað til
af opinberri hálfu. En áframhaldandi
vanræksla mun svifta fjölda fólks
því yndi, sem það annars gæti liaft
af sumarleyfi sínu.
K. R. besta íþróttafjelag í frjálsum íþróttum
< >
K.R.-ingar, sem unmi Allsherjarmótið 19'Ki. — Frd vinstri: Georg L. Sveinsson, Indriði A'
Jónsson, Jón M. Jónsson, Finnbogi Guðmundsson, Haraldur Björnsson, Gunnar Huseby, Svav- < >
ar Pálsson, Brynjólfur Ingólfsson, Óskar Giiðmundsso.n, Jóhann Bernhard, Skúli Guðmunds- <»
son, Bragi Friðriksson, Páll Halldórsson, Brynjólfur Jónsson, Þór Þormar, Hjálmar Kjartans-
son, Jón Hjartar, Sigurlaugur Þorkelsson, Helgi Guðmundsson og Jens Magnússon. Á mynd-
ina vantar Svein Inyvarsson, Vilhjálm Guðmnndsson, Einar Þ. Guðjohnsen Sverri Kjartans. JJ
Dagana 10.—13. júní s. 1. fór Alls-
herjarmót í. S. í. fram í 14. sinn
síðan 1921. í fyrstu var Jiað Jiald-
ið árlega, en siðan venjulega annað
livort ár. Á Jiessu móti hafa íjrrótta-
fjelög landsins keppt sín á milli
um sæmdarheitið „Besta íþróttafjel.
íslands1-, en að Jnessu sinni hafði
þó verið bætt við orðunum „í frjáls-
um íþróttum" vegna loess að hin
síðari ár hefir eingöngu verið keppt
í frjálsum íþróttum. Áður fyrr var
einnig keppt í sundi og glimu, en
frjálsar íþróttir voru alltaf aðal-
uppistaða mótsins.
Úrslit þessa fjórtánda Allsherjar-
móts í. S. í. urðu þau, að Knatt-
spyrnufjelag Reykjavikur sigraði
glæsilega og hlaut 137 stig. Er ])að
í 9. sinn í röð, sem fjelagið vinnur
þetta mót, en hefir haldið sæmdar-
heitinu „Besta íþróttafjelag íslands“
i 17 ár samfleytt. Ármann hefir
unnið þetta mót 3svar, 1921, 1922
og 1923, en í. R. einu sinni 1926,
en 1924 var bikarinn ekki afhent-
ur. Að þessu sinni var í. R. næst
að stigatöiu með 90 stig, þá Ár-
mann með 43 stig og loks F. II.
með 42 stig. Hefir í. R. sótt sig
mjög mikið frá því á síðasta Alls-
hei'jamóti, því l)á var fjelagið i
fjórða sæti með 11 stig. Hin fjelög-
in hafa liinsvegar lækkað talsvert
í stigatölu, einkum Ármann.
Þetta Allsherjarmót liótti takast
með afbrigðum vel. í fyrsta lagi var
veður yfirteitt mjög gott. í öðru
lagi náðist ágætur árangur. í Jrriðja
tagi fór það óvenju vel fram, og
Joks í fjórða lagi voru áliorfendur
mjög margir og virtust skemta sjer
prýðilega.
Alls voru sett 4 ísl. met á mótinu
og eitt jafnað, auk 2ja drengjameta.
Gunnar Huseby (K.R.) setti met í
kúluvarpi 15.50 m. sem er jafnframt
okkar besta met í frjálsum iþrótt-
um (977 stig). Mun það einnig vera
besti kúluvarpsárangurinn í Evrópu
á þessu ári. Gunnar setti einnig met
í kúluvarpi beggja handa 26.78 m.
— Oliver Steinn (F.H.) setti nýtt
met í langstökki 6,86 m. og bætti þar
með gamla metið um 4 cm. —
Kjartan Jóhannson (Í.R.) kom mörg-
um á óvart með Jivi að setja nýlt
met í 400 m. hlaupi á 52.3 sek.,
sem er 3/10 sek. betra en gamla met-
ið og hlaupa 800 m. á 2.02,2 mín,
sem er besti tími hjerlendis.. —
Skúli Guðmundsson (K.R.) hljóp á
mettíma í 110 m. grindahlaupi 17.0
sek., en vann auk liess glæsilcga
háslökkið á 1,92 m„ sem var næst-
besta afrek mótsins (934 stig) og
þristökkið á 13.64. Auk Jiess var
hann stighæstur einstaklingur á
mótinu með 26 stig. Oliver var
næstur með 25 og Finnbjorn Þor-
valdsson (í. R.) þriðji með 24 stig,
en liann vann 200 metra með yfir-
burðum á 23,4 sek. — Óskar Jóns-
son (í. R.) setti tvö góð drengja-
met, i 800 m. 2:05,6 min. og 1500
m. 4:17,4 min. Annar efnilegur
Guðmundur Guðjónsson, bifreiðar-
stjóri verður 55. ára 17. þ. m.
drengur, Þorkell Jóhannesson (F.H.)
og bróðir Olívers Steins, vann
stangastökkið á 3.25 m. en á sjálfur
drengjametið (3.31 m). Af öðrum
góðum afrekum á mótinu má nefna
1500 m. hlaup Harðar Hafliðasonar
(Á) 4:16,6 min, spjótkast Jóels
Sigurðssonar (Í.R.) 54,29 m. og
fimtarþraut Jóns Hjartar (K.R.)
2562 stig.
Fjelag enskumælandi manna
Fyrir 26 áruin koniu 15 kunningj-
ar sanian í Martborougli Club í
Pall Mall, London. Meðal þeirra'var
sir Evelyn Wrench, fyrrum ritstjóri
hins kunna blaðs „Spectator" og
bar hann þarna fram tillögu um
að viðstaddir gerðust stofnendur að
fjelagi, sem nefndist „Samband
enskumælandi manna“. En viðstaddir
voru bæði Ameríkumenn og Bretar
úr heímalandinu og samveldislönd-
unum. í lok ársins voru fjelagarn-
ir orðnir 200. En nú eru þeir orðn-
ir yfir 10.000 í ’Bretlandi, 3000 í
samveldislöndunum og 15.000 í Banda-
ríkjunum og er samkomustaður
fjelagsins í Mayfair Mansion, en þar
var forðum bústaður jarlsins al'
Dartmouth. Hefir fjelagið gert
mikið til að greiða fyrir Bandaríkja-
mönnum í Englandi á undanförnum
styrjatdarárum.
OVERSEAS LEAGUE.
Sir Evelyn Wrench er einnig stofn-
andi að öðru frægu fjelagi, sem oft
sjest getið, en J>að er Overseas League
sem stofriað var árið 1920. Til-
gangur þessa fjelags var sá, að
stuðla að þvi, að nieðl. gætu verið
„eins og heima hjá sjer“ á sem
flestum stöðum, scm þeir kæmu á
á hnettinum. Fjelagið telur nú um
50.000 meðlimi.