Fálkinn - 25.08.1944, Síða 5
F A L K I N N
j
Fólk sœkir líka
á vetrum í þjóð-
garðana í Banda
rikjunum. Hjer
er fjórskift skiða
braut í Badger-
skarði í Yosem-
ite-dal.
Ekki er hægt að neita því, að þrátt fyrir allur þær hörmungar, er fylgja
ófriðnum, má á ýmsum sviðum sjá að menningunni þokar áfram. Einn
vottur þessa, er hið breytta viðhorf til manna er fatlast i stríðinu. Hafu
lil dæmis i Englandi verið settir upp allmargir skólar til þess að kenna
þesskonar mönnum iöngreinir, er væru við þeirra hæfi. Verða þeir sem
á þessa skóla ganga fœrir um að sjá sjer fjárhagslega farborða og fá þar
með aftur traustið á sjálfum sjer, og taka gleði sína aftur. En margir þessir
örkumlamenn falla í þunglyndi, og ættu hið ömurlegasta líf framundan,
ef þeim væri ekki veitt hjálp til þess að hefja nýtt starf. Einn af þessurn
skólum í Englandi er i höllinni í Ashridge í Hertfordshiri, þar sem
Bonar Low skólinn va rfyrir strið. Er mynd af höllinni hjer að ofan. En
myndin hjer að neðan er af nemanda og kennara i skólanum. Það eru
missiris-námskeið á þessum skóla og er kensla og vist öll ókeypis. —
varðveitti það um ókomnar
aldir, þannig að það gæti orð-
ið allri þjóðinni og óbornum
kynslóðum hennar til unaðar.
Og þetta var samþykkt.
Fyrsti og stærsti þjóðgarðurinn.
Tveimur árum síðar voru
samþykkt lög í þingmanna'deild-
inni í Washington um stofnun
Yellowstone þjóðgarðsins, og
skvldi hann taka yfir 7.938 fer-
kilómetra svæði. Var þetta fvrsti
þjóðgarður Banadaríkjanna og
er stærstur- þeirra allra. Þetta
land er friðheilagt og getur ekki
gengið kaupum og sölum og
eigi má notfæra sjer nein nátt-
úrugæði þar. Skógana má ekki
höggva, dýrin og fuglana má
ekki skjóta nje drepa á annan
hátt, og engin mannvirki má
gera þar utan vegi og gistihús
og veitinga, handa ferðafólki.
Að öðru leyti á landið að vera
í því horfi þarna, sem náttúran
sjálf ákveður.
Þegar tímar liðu fram var
sjáanlegt að liin upprunalega
fegurð landsins fór að þverra.
Skógarnir voru höggnir og
brenndir, landið var plægt og
uppblástur fór að gera vart við
sig, viltu dýrin voru drepin svo
mjög að stofnin eyddist og lá
við að ýmsar dýrategundir yrðu
aldauða. Eftir því sem fólkið
safnaðist meira og meira sam-
an i borgunum og þráði að
komast út í náttúruna í frítím-
um sínum, óx þeirri hugmynd
fylgi að koma upp sem flestum
friðlendum, þar sem fólk gæti
dvalið sjer til ánægju, er það
væri laust við skyldustörfin.
Var þá farið að fjölga þjóðgörð-
unum og ný og ný landsvæði
friðuð.
Það gekk ekki alveg hljóða-
lausl að friða þessi landsvæði.
En núlifandi kynslóð telur þau
einskonar gjöf frá þeirri síðustu
og telur skyldu sína að skila
þeim í hendur þeirrar næstu,
í ekki lakara ástandi en hún tók
við þeim.
Ef þjer viljið láta Rinso yð-
ar verða sem drýgst skuluð
þjer nota þessa aðferð. Með
henni endist hver pakki þriðj-
ungi lengur.
MINNA VATN ER
GALDURINN.
Notið helming þess vatns,
soni þjer voruð vön, og að-
cins tvo þriðju af Rinsó, móli
þvi sem þjer voruð vön. Lát-
ið hvita þvottinn fyrst liggja
í Rinsobleytinu i 12 minutur,
og siðan mislita þvottinn i
sama bleyti. Þvoið þvotlinn
siðan og skolið hann.
Þessi aðferð fer svo vel með
þvottinn að hann cndist leng-
ur.
RINSO
X-R 209-7S6
DON AMECHE KOSINN í
HJÁLPARNEFND.
Leikarinn Don Anieche er af ít-
ölskum ættum og þessvegna mun
honum hafa verið sýnd sú virðing
nýlega að kjósa hann i finim manna
nefnd, sem veitti forstöðu hjálpar-
starfsemi við ítali. Aðrir í nefnd-
inni eru Myron Taylor fulltrúi
Bandaríkjanna í Páfagarði, Arturo
Toscanini hljómsveitarstjórinn heims
frægi. Angelo Patri og John Hildr-
ing generalmajór. Ameche heitir
réttu nafni Amici og er elsti sonur
prests eins í Róm.
AFMÆLI RAUÐAHERSINS MINST.
í Hollywood-kanlinunni, þar sem
karlar og konur í herþjónustu njóta
skemtana og veitinga hjá leikfólki
kvikmyndanna var 26. afmælis
Rauða hersins minnst með sér-
stakri skemtiskrá og boðið þang-
að áhöfninni af rússnesku skipi,
sem þá lá á höfn í Los Angeles.
Það var Bette Davis, sem stjórnaði
þessari samkomu og sá um veit-
ingarnar. Tertuna stykkjaði hún í
sundur með Kósakkasverði, sem hún
átti sjálf.