Fálkinn - 25.08.1944, Side 11
F Á L K I N N
11
Stundsjá íslenska lýðveldisins.
Eftir Jðn írnason
ÓPERUR, SEM LIFA.
Framh. af bls. 6
þá birtist Vasco de Gama óvænt,
þar sem saman eru komnir ráðgjaf-
arnir á ríkisráSsfundi.
Hann lýsir fyrir þeim skýrt og
skorinort, liversu erfið og hættuleg
sjeu Iiin ókunnu höf, og lýsir skips-
tjóninu, en þar hafði enginn kom-
ist lífs af nema hann einn. Hann
leggur síðan sjókort sitt fyrir ráðið,
og leitast við að sanna, að handan
við Afríku, sje enn land sem eftir
sje að rannsaka og hernema.
Á heimleiðinni hefir Vasco de
Gama „tekið upp af götu sinnil<
mann og konu, of ókunnum lcyn-
stofni. Þessir þrælar neita þvi
hinsvegar afdráttarlaust, að segja
nafn lands síns, og lenda þeir nú
i hári saman hinn mikli rannsókn-
arböðull konungs og liinir yngri
og menntaðri þátttakendur i ráðinu,
út af því, hver afstaða skuli tekin
til máls Vasco de Gama. Að lokum
verður niðurstaðan þó sú, að of-
stækið sigraði menninguna, og i str.ð
þess, að Vasco sje fengið skip,
til þess að kanna liin ókunnu Jönd,
var honum varpað í fangelsi, dæmd-
ur trúleysingi fyrir það, að hann
hafði haldið þvi fram, að til væru
lönd, sem ekki voru nefnd í heil-
agri ritningu.
Annar þáttur gerst í klefa saka-
rannsóknar-fangelsisins, þar sem að
Vasco de Gama hefir verið við
illan kost, um mánaðartíma, ásamt
hinum ókunnu l)rælum Nelusko og
Seliku. En Seliska er orðin ást-
fangin af hinum mikla sægarpi,
sem frelsað hafði hana og fjelaga
hennar úr greipum sjóræningja.
En Vasco getur ekki um annað hugs-
að en Inez, og Nelusko, sem elskar
og tignar Seliku, reynir að ráða
Vasco bana, kristna manninum,
manninum sem liann hatar dauðlegu
hatri . Selika kemur í veg fyrir
það, og Vasco vaknar við ryskingar
som út af þessu urðu, — en hann
hafði verið að dreyma, að hann
væri að sigla skipi sinu, til hinna
ókunnu landa.
Seliika sýnir honum nú, á sjó-
korti, leiðina til eyja þeirra, þar
sem hún er uppalin, og hann kveðst
aldrei munu gleyma henni þennan
greiða. Og nú stendur svo á, að
Inez hefir tekist að fá náðun honum
til handa, og kemur með þá gleði-
fregn inn í klefann, rjett i þvi að
Vasco er að^ ljúka við að sverja
Seliku ævarandi þakklátsemi. Inez
hefir þó greitt frelsi ástvinarsíns
dýru verði, því að hún hefir orðið
að játast keppinaut hans, don Pedro
sem hefir komist yfir allar áætlan-
ir og öll sjókort Vascos, og hefir
stjórnin falið honum að leggja upp i
landkönnunnarför, sjóleiðis.
Inez hefir verið sagt, að Vasco
sje búin að gleyma lienni, vegna
ambáttarinnar, Seliku. Til þess að
sanna henni stöðuglyndi sitt, gefur
hann Inaz þrælana tvo, — en don
Pedro ákveður að nota þau, hjúin,
sjer til aðstoðar í rannsóknarferð-
inni.
Þriðji þáttur gerist á skipi don
Pedro á Indlandshafi. Donna Inez
er með manni sínum, og Nelusko
hefir verið kjörinn leiðsögumaður.
En don Alvar, sem er einn af ráð-
gjöfum konungs og vinur don Pedro
varar hann við Nelusko, — telur
að hann muni vera að brugga svik-
ráð við þá, þvi að tvö skipanna,
sem í flotanum voru, hafa þegar
týnst. En don PPedro skeytir ekki
aðvörun vinar síns. Lenda þau nú
í hvirfiLbyl, og Nelusko stefnir skip-
inu til norðurs.
Nú víkur sögunni til Vasco. Hon-
um hefir tekist að útvega sjer lítið
skip, og veitir þeim don Pedro
eftirför. Hann nær þeim, — og þar
eð hann kannast vel við sig á þess-
um slóðum, en þarna, ekki allfjarri,
hafði skip Diaz farist, leggur hann
fast að þeiin, að breyta stefnu, —
en hann er þá raunar að hugsa um
það eitt, að bjarga lífi konunnar,
sem hann elskar, donnu Inezar. En
Pedro, sem nú er í sjöunda himni
yfir því, að hafa keppinautinn á
sínu valdi, fyrirskipar að láta setja
hann í bönd og skjóta hann. Inez
heyrir þetta, kemur á vetvang og
biður Vasco vægðar. En rjett í þessu
tekur skipið niðri á skeri, og mann-
æturnar, sem byggja strandlengj-
una, ryðjast út á skipið, til þess að
frelsa Seliku, sem nú reynist að
vera drotning þeirra, — og ætla þá
jafnframt að bryðja niður alla á-
höfn skipsins. En Seliku tekst að
aftra þvi.
Næstu þættirnir gerast á eyunni
Madaga-skar, þar sem Selika er
drotning. Lýðurinn auðsýnir henni
lotningu, en prestarnir heimta líf
útlendinganna, og sje þeim fórnað
guðunum. En konurnar, sem verið
höfðu á skipinu, á að drepa á eitri,
þannig, að þær eiga að anda að
sjer ilminum af manzanillatrjenu.
Til þess að bjarga lífi Vasco, krefst
Selica þess, að hún fái liann að
eiginmanni, og sver þess eið við
Nelusko, að ef Vasco sje grandað,
þá muni hún sjálf láta lífið með
honum. Ást Neluskos til Seliku er
jafnvel sterkari en hatur hans á
Vasco, og gengst hann fýrir því,
að þau verði „gift“. Hefjast svo
von bráðar mikil hátíðarhöld i til-
efni giftingarinnar.
Vasco þýðist nú loks liina sterku
ást Seliku, heldur að Inez sje látin
og sver Seliku aftur ævarandi trygð-
um. En þá vill svo til, að liann heyr-
ir rödd ástvinu sinnar. Er þá verið
að leiða Inez til lífláts. Hann ná-
fölnar, og Selika skilur undur vel
hvað veldur.
í fimta þætti er Selika ákveðin
í, að láta taka Inez af lífi, svo að
hún losni loks við hana, sem keppi-
naut. Hún sendir eftir henni. En
er hún verður þess áskynja, hversu
mjög Inez ann Vasco, hverfur henni
afbrýðisemin, — göfuglyndi hennar
reynist sterkara hatri hennar á
hinu kristna fólki, og hún leggur
fyrir Nelusko, að flytja þau Inez
og Vasco út í skip eitt, sem er á för-
um til Portugal.
Selika, sem nú unir ekki lengur
lífinu, þegar hann er liorfinn, mað-
urinn sem hún ann, fer fram á höfð-
ann, þar sem liið eitraða manzanilla-
trje vex. Horfir hún út yfir hið
víðáttumikla haf, og sjer hvít segl
skipsins, sem er að hverfa. Hún
andar að sjer sætum, en banvænum
ilmi manzanillajblómanna, og Nelus-
ko, — sem hefir veitt henni eftir-
för, kemur að henni í andarslitr-
unum. Ósýnilegur kór huggar hana
með þeirri hugsun, að í æðri heim-
um sjeu allir jafningjar í ástinni.
ísland var lýst lýðveldi 17. júni
1944 að Þingvöllum kl. 2 sd. (lögtími
— G. M. T.) —kl. 12. 32 sd. (M.T. Rv.)
— kl. 1235.32 sd. (M.T.Þ.). Nbr.
64.15 — VI. 21.07.
Stundsjá þessi er fæðingarstund-
sjá hins íslenska lýðveldis eða
grundvallarstundsjá þess.
Það er nýtt sem sjaldan skeður,
að nýtt lýðveldi keniur í heiminn.
Það var því viðburður, sem vakti
athygli víða um lönd, er íslenska
lýðveldið var stofnsett á Þingvöll-
um 17. júní 1944, kl. 2 síð.degis
(miðtimi í Greenwich).
Það er engin nýjung þó að fæð-
ingarstundsjá sje lögð fyrir ein-
staklinga,' en hitt er fátítt, að lögð
sje fæðingarstundsjá lýðveldis. —
Flest konungsríki eiga enga fæð-
ingarstundsjá, því fæðingardagur
þeirra eða fæðingaraugnablik er
alls ekki fundið. Þó er ein undan-
tekning er konungsrikið ísland var
stofnsett fyrir 26 árum — 1. des.
1918. En öðru máli er að gegna með
lýðveldin, þau eru flest svo ung,
að vitað er hvenær þau eru stofn-
sett, og svo var um íslenska lýð-
veldið.
I fljótu bragði sjeð er stundsjáin
17. júni 1944 mjög sjerkennileg, þvi
að megnið af plánetunum er safnað
saman á tiltölulega litlu svæði og
verður því þar yfirgnæfandi þrótt-
mikið. Er það hádegismarkið. Er
sýnilegt að sambandið við Banda-
ríki Norður-Ameríku er náið, því
5 plánetur eru nálægt liádegisstað
— heimkynni stjórnarvaldanna —
og eru i tvíbura, merki Banda-
ríkjanna. Er samband þetta frekar
fræðilegs eðlis en beint hagkvæmt,
þó verður hagnýt þekking afleiðing
jiess. Sjest það á góðum afstöðum
Júpíters og Venusar til Sólar og
bendir á hagnaðarvon.
Neptún er á austursjóndeildar-
hring og liefir allar afstöður slæm-
ar. Bendir það á innanlanÖs örðug-
leika, sem koma óvænt. Hann er í
slæmri afstöðu við sól og verða
þessi verkefni því viðfangsefni
stjórnarinnar.
Haustið 1942 hóf Neptún göngu
sina i vogarmerki og verður þar í
næstu fjórtán ár. Á þeim tíma munu
utanríkismál þjóðanna taka miklum
og margvislegum breytingum. Koma
sumar þessar breytingar nálega fyr-
irvaralaust. Ein af þessum breyting-
um er að mínum dómi lýðveldismál
Islands. Hefir Neptún haft áhrif í
örðugleikaátt á Kristján Danakonung,
því áð Neptún er nú í samstæðu
við sót hans og hefir fleiri afstöður
slæniai- en góðar þegar hann fædd-
ist.
Saturn er i hádegisstað í sam-
stæðu við sól. Er hún ekki áljtleg,
en með því að bæði sól og Venus
eru í samstæðu við Saturn er lík-
legt að þau dragi úr hinum óheilla-
vænlegu áhrifuin hans.
Mars og Júpíter eru í 11. húsi,
liúsi þingsins og vina þjóðarinnar
út á við. Velvildar mætti vænta
frá Englendingum, Norðmönnum
og Dönum.
Hin nýfundna pláneta Plútó er
einnig í 11. liúsi, liúsi þingsins.
Hefir hún tvær afstöður góðar en
eina slæma. Mun því eitthvað óvænt
gerast í sambandi við þingið, sem
í leynum ætti að vera og vekur
athygli, því hann hefir slæma afstöðu
til Venusar.
Mars ræður einnig 7. liúsi, við-
skiftum við önnur riki og ættu við-
skifti þessi að vera fremur velviljuð,
jafnvel þó að afstöðurnar sjeu ekki
með öllu örðugleikalausar.
Tunglið er í 9. liúsi, húsi utan-
landssiglinga og hefir slæm áhrif.
En með þvi að tunglið er i nauti,
merki Venusar, sem ræður stund-
sjánni, er líklegt að minna beri á
áhrifunum en ella.
Eitt hið markverðasta i þessari
stundsjá er afstaða dýrahringsins til
húsanna. Þau falla þannig saman,
að álirifaríkustu punktar dýrahrings-
ins fallæ nákvæmlega saman við
sterkustu punkta húsanna. Er þetta
mjög sjaldgæft og ber að mínum
dómi vott um óvenjulega sterka
afstöðu bæði inn á við og út á við
og óvenjulegt framkvæmdarþrek. —
Má því segja að stundsjá hins is-
lenska lýðveldis sje i mörgum grein-
um mjög góð.
Þó má geta Jíess að byrjun vogar-
merkisins ber við 1. hús. Bendir það
á að Venus sje aðalráðandi stund-
sjárinnar og er nálægt hádegisstað
í samstæðu við sól og Satúrn. Venus-
ar eðlið ætti því að vera áberandi
í tífi lýðveldisins og er það góðs «
viti, því Venus er nálega ætíð góð
i áhrifum, fafnvel þó að hún liafi
slæmar afstöður. Bendir þetta á
góðan undirstöðufjárhag.
Krabbinn er i hádegisstað. Er
J>að ákveðið lýðveldismerki, því
krabbinn er merki almennings und-
ir áhrifum tunglsins og í læssari
afstöðu er almenningur kominn i
10. hús, stjórnarsessinn, en stein-
geitin, merki drottnenda og yfir-
ráðenda, er komin í 4. liús, andstöðu
hús ráðendanna.
Þegar maður ber saman við stund-
sjá konungsrikisins íslands 1918,
kemur í Ijós að sólin var J)á í skot-
manni í hádegisstað, en tvíburinn
í miðnæturstað. Nú er þessu snúið
við. Tvíburinn er rjett að eins
kominn yfir hádegismark og hefir
5 plánetur. Bendir þetta á það að
hlutve'rkunum muni'vera gersamlega
snúið við frá þvi sem áður var.
Það er mjög athyglisvert að allar
pláneturnar eru hátt á lofti og ná-
lægt hádegisstað, nema Neptún, sem
er á austursjóndeildarhring. Þetta
bendir á það, að þjóðin geti í fram-
tíð notið og notað alla krafta sina
og liæfileika, sem hún hefir í fór-
um sínum til hins ítrasta.
Eins og áður er sagt, er þessi
stundsjá grundallarstundsjá lýðveld-
isins og verður ætið notuð sem við-
miðun þegar um framtíðarathuganir
er að ræða og búast má við meiri
háttar viðburðum, sem munu gerast
i lífi lýðveldisins á næstu áratugum
og árahundruðum. Er hún nothæf
fyrir alla þá, sem fást við stjörnu-
speki í framtiðinni, sem samanburð-
Framhald á bls. 74.