Fálkinn


Fálkinn - 27.04.1945, Blaðsíða 2

Fálkinn - 27.04.1945, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N Bronté- §^§tnrnar Eftír Augiistus flnir. Á fyrra helmingi 19. aldar var það fátítt, að konur legðu fyrir sig ritstörf, en þó var það svo, að þrjár systur á af- skektu prestsetri: Charlotte, Emily og Anne Bronte, gerð- ust allar atvinnurithöfundar og sendu frá sér fögur skáldverk. „Jane Eyre“ eftir Charlotte og „Wuthering Heights“ eftir Emily Bronté eru enn taldar með bestu skáldsögum á enska tungu. TDRONTE - systurnar Charlotte, Emily og Anne lifðu fábreyti- Iegu og einmanalegu lífi, en létu samt eftir sig rit, sem gleymast aldr- ei. Skáldgáfa þeirra var svo ótvíræð að hún hóf þær yfir hversdagsleik- ann, og braut af þeim þær viðjar, sem konum þeirra tíma voru áskap- aðar. Umhverfi þeirra mætti virðast illa fallið fyrir alla skapandi hugsun. Þær ólust upp í skuggalegu húsi, prestsetri, sem stóð í eyðilegum móajaðri í Norður-Englandi. Móðir þeirra var látin, en presturinn, fað- ir þeirra, liafði strangan aga á þcim; dætur vorrar aldar mundu vafalaust kalla liann harðstjóra. En samt var margt vel um þann mann, og stúlkurnar fengu bráðan þroska og urðu hugsandi, við uppeldi það er liann veitti þeim. Allar voru þær lingerðar, líkamlega, en þó töfrandi í framkomu; það var eins og sálin hæri likamann ofurliði. yvær elstu systur þeirra þriggja, sem hér verða nefndar, dóu innan við fermingu. Þær þrjár, sem lifðu voru einstæð- ingar, og áttu fáa kunningja, en hinsvegar kom þeim mjög vel saman, og máttu ekki hver af annari sjá. Ef til vill hefir einstæðingsháttur- inn aukið þeim hugmyndaflug og innsýn. Charlotte, sú elsta, hafði skrifað yfir tuttugu handritabækur áður en hún varð fimtán ára. Engri þeirra datt i hug, framan af, að þær gætu séð sér farborða á lífsleiðinni með því að skrifa. Þeim fannst, að ef þær giftust ekki, yrðu þær að lifa á því eina, sem þá stóð ungum stúlkum af þeirri stétt til hoða; með þvi að gerast heimilis- kennarar. Þéssu starfi gegndu þær allar þrjár á ýmsum lieimilum; en þær langaði til að vera saman, svo að þær afréðu að stofna heimavist- arskóla heima hjá sér. Nú hófst undirbúningurinn undir þetta, og Charlotte og Emily réðust i að fara til Briissel til þess að læra útlend mál. Rétt fyrir miðja öldina þótti það óviðeigandi og enda gapasþap- ur, að ungar stnlkur færi utan fylgd- ar laust, en vafalaust þroskaði þessi ferð þær mjög. En svo kom óhapp úr óvæntri átt, og kollvarpaði áform- um þeirra um skólann. Branwell bróðir þeirra hafði lent i svalli og kom nú heim, bilaður á heilsu. Varð nú ómögulegt að setja skóla á prestsetrinu. — Stúlkurnar gerðu allt sem i þeirra valdi stóð til að lijálpa bróður sínum, en liann dó eftir nokkur ár, bilaður maður. En þá voru þær farnar að semja sögur, eins og þær höfðu iðkað svo mjög sem unglingar, og nú var þetta alvara. Gætu þær haft ofan af fyrir sér með skáldsagnagerð og ljóða- gerð? Fyrsti árangurinn var kvæða- safn, sem út kom árið 1846. Safnið kom út undir dulnefni, svo að það leyndist, að konur áttu lilut að því. Fjárhagslega varð þessi út- gáfa systrunum til vonhrigða, því að ekki seldust nema nokkur eintök. Þær afréðu því að spreyta sig á ó- hundnu máli næst, og notuðu gerfi- nafn sem fyrr. Vildu ekki láta gagn- rýnendur hlífa sér vegna þess að þær væru konur. Fyrsta sagan eftir Emily nefndist „Wutliering Heights'* og er nú á dögum talin ein besta skáldsagan á enskri tungu. Þetta er ástriðufull saga, sem gerist á lieiða- roóum, eins og umhvefið var, sem sagan var skrifuð í, og lyndisein- kunnir persónanna draga dám af um- hverfinu. Anne samdi söguna „Agnes Grey“, sem að vísu er geðþekk bók, en persónurnar daufgerðari en i sögu eldri systranna. En fyrsta sag- an eftir Charlotte var „Jane Eyre“ og útkoma liennar varð bókmennlavið- burður. En jafnframt vakti hún hneyksli lijá mörgum, sem fannst lýsing sögunnar á lífi ástfanginnar konu of berorð. Og aðrir urðu ofsa- reiðir því að þeim fannst gæta í sögunni uppreisnaranda gegn heldra fólkinu. Sumir töldu hana níð um kvenfólkið. En glöggir og gáfaðir menn, eins og skáldið Thackeray viðurkenndu að hér væri uro merki- legt skáldrit að ræða. Brátt barði mótlætið að dyrum hjá systrunum á nýjan leik. Emily varð veik og mótstöðuafl hennar gat ekki unnið hug á sjúkdóminum. — Anne hafði haft þol til að skrifa aðra sögu, „The Tenant af Wildfell Hall“, en dó svo á næsta ári. Nú var Charlotte ein eftir í gamla liús- inu, ásamt föður sínum. Hún hélt áfram að skrifa, en nú var ekki til að dreifa hjálpinni, sem hún hafði notið frá systrum sínum. Samt samdi hún tvær sögur: „Shirley“ og „Vill- ette“ eftir dauða þeirra. <► <► <► <► <► <► <► <► <► <► Bronté-systurnar. Frú vinstri: Annc, ir Patrick Branwell Bronté,. bróður Gallery í Emily og Chartolte. Myndin er eft- þeirra, og er geymd ú National London. Þessar sögur lýsa báðar konum, sem eiga mátt til þess að hugsa og taka ákvarðanir af eigin ramleik. Og segja má um allar sögur Charlotte, að þær hafa mætt nokkrum mót- blæstri vegna þess að þær lýstu sjálfstæðari konum, en góðu hófi þótti gegna i þá daga. Charlotte hafði sýnt sama sjálfstæði í lífinu, er hún vísaði á hug fleiri en einum biðli, og liún var orðin yfir 37 ára er hún giftist. En tæpu ári síðar fylgdi hún systrum sínum i gröfina. Æfisaga Bronte-systranna er eink- ar heillandi. Þær liorfðust ótrauðar í augu við lífið, og þær sigruðu. Þær leituðu ekki verndar i höfn lijóna- bandsins, en trúðu á sinn eigin mátt. Lífið bakaði þeim liarma og vonhrigði, en þær notuðu reynsluna sem ívaf í hinar ágætu sögur sínar. Bronté-áystranna er ekki að'eins minst sem rithöfunda heldur og FÁNI FÆREYJA. Færeyingar hér í hæ, buðu blaða- mönnum til kaffidrykkju á Borg síð- astliðinn miðvikudag, fyrir frum- kvæði Sámals Davidsen hlaða- manns. Tilefnið var það, að þann dag, 25. apríl, voru fimm ár liðin síðan færeysk skip fóru fyrst að nota færeyska fánann á skipum sín- um. Ástæðan var sú, að Danmörk var þá hernumin og á valdi Þjóð- verja, svo að eigi þótti hlíta að fær- eysk skip sigldu undir danska fán- anum. Með samþykki Breta tóku Færeyingar þá upp fána sinn sem siglingarfána og liafa haldið þvi síðan. Það voru Færeyskir stúdentar í Kaupmannaliöfn, sem fyrstir tóku upp kröfuna um sérstakan fána fyrir Færeyjar, og má vera að fána- mál íslands hafi haft álirif í þá átt. Færeyski stúdentinn Liisberg gerði tilögur þær að gerð fánans, sem síð- ar náðu samþykki Færeyinga. sem ungra kvenna, sem sigruðu án annara hjálpar og sýndu fyrstar þá leið til frelsis og jafnréttis, sem enskar konur njóta nú. Þegar þjer notið Lux-spæni þá munið að mæla þá ná- kvæmlega. Ein sljettfull mat- skeið i 1 lítra af vatni gef- ur ágætt sápulöður. Mælið vatnið lika. Ef þjer notið meira vatn en þjer þurfið, þá verðið þjer lika að nota meira Lux. Safnið þvottinum saman. Þvoið ekki blúsur, nærföt, sokka og þessháttar hvað út af fyrir sig. Það er hag- feldara að þvo alt í sömu lotunni. Vindið blúsurnar og nærfölin upp úr sápu- löðrinu fyrst, síðan ullarföt- in og loks sokkana. Allt i sania sápulöðrinu. Þetta eru einföld ráð, en með því að fara eftir þeim sparið þjer mikið af Lux, hinu dýrmæta þvottaefni. LUX EYKUli FNDJNGU FATNAfíARINS X-LX 619-786 A LEVER PRODUCT

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.