Fálkinn - 27.04.1945, Blaðsíða 4
4
F Á L K I N N
SCILLl ■ EIJAR
EFTIR W. H. OWF\S
Scilly-eyjarnar eru í Atlantshafi, um 48 km. suðvestur af Cornwall-
skaga. Alls eru þetta um 200 eyjar, en aðeins fimm eru
byggðar, og sú stærsta þeirra, St Mary’s er rúmlega 4
kílómetra löng. - Eyjarnar eru frægastar fyrir blóma-
rækt þá, sem stunduð er þar á vetrum. Á friðar-
tímum eru fluttar út miljónir blóma til
Englands og einnig til Norður-Evrópu.
Loftmynd af St. Mary’s, sem er stœrst Scilly-eyja.
CILLY-EYJAR eru með
unaðslegustu eyjunum,
sem teljast til Bret-
lands. Loftslagið er svo milt,
að með réttu má kalla eyjarnar
suðræna Paradís, enda er blóma
rækt stunduð þar undir beru
lofti allt árið, og þar þrífast
suðræn tré og blóm.
Það er fyrir áhrif Golfstraums
ins, að eyjar þesar njóta miklu
meiri sólar en Bretlandseyjar
yfirleitt. Mest er blómskrúðið
á eyjunum á vetrum og fram
eftir vori, því að þá sjást sam-
felldar breiður af gulum og
livítum narsissum, hvar sem
ræktanlegt land er að finna,
og stinga þessir litir mjög í stúf
við djúpblátt hafið og himin-
inn.
Alls eru SciIIy-eyjar nær 200
talsins, en flestar þeirra eru
ekki nema þyrnivaxnir klettar,
ýmislega lagaðir, þar sem selir
og sjófuglar bafast við. Aðeins
fimm eyjarnar eru byggðar;
sú stærsta þeirra. St. Mary’s
er rúmlega 4 km. löng en 2 á
breidd.
Þjóðsagan segir að Scilly-
eyjar séu leifar sokkins lands,
sem nefndist Lyonesse, og marg-
ar sögur eru til um. Á miðöldum
settust Benediktsmúnkar að á
Tresco, næststærstu eyjunni, og
byggðu þar veglegt klaustur. En
eftir að klausturlifnaður var
lagður niður á 16. öld, urðu
allar eyjarnar konungseign, en
lconungar gáfu ýmsum fjölskyld
um eyjarnar að léni.
Það er blómaræktin, sem
eyjarnar eru frægastar fyrir nú
á dögum. Síðan stríðið hófst
liefir vinnufólksleysi og sam-
gönguleysi vitanlega dregið all-
mikið úr framleiðslunni. En á
friðartímum hafa flestir af þeim
átján hundruðum, sem eyjarn-
ar byggja, uppeldi sitt á blóma-
rækt og frá desember til apríl
lætur nærri að um hálfönnur
miljón blóma sé flutt frá eyjun-
um á degi hverjum.
Meðan á narsissu-ræktinni
stendur siglir skip milli liafn-
arinnar á St. Mary’s og Eng'-
lands nokkrum sinnum í viku,
hlaðið eintómum blómum. í
höfninni í Penzano bíður hrað-
lest til að taka við farminum
og flytja hann til sölustaðanna.
Að Scilly-eyjarnar standa svo
vel að vígi um blómarækt er
loftslaginu að þakka. Þar verða
blómin fullþroskuð fljótar en á
Bretlandseyjum og yfirleitt í
Norður-Evrópu.
Konur og dætur blómarækt-
armannanna raða blómunum í
knippi og búa um þau í öskj-
unum. Þessar konur geta geng-
ið frá 1000 blómum á klulcku-
stund, en fara þó svo varfærn-
um höndum um þau, að varla
kemur fyrir að nokkur blóm
skemmist. Einnig þarf glöggt
auga til að velja nákvæmlega
samlit blóm saman, því að oft
er litblærinn mismunandi á
sömu tegundinni. Hvert blóm,
sem eigi hefir réttan lit er lagt
til liliðar og eins er um þau
blóm, sem hafa fölnað fyrir
tímann.
Það eru blóminn ein, sem
bafa gert Scilly-eyinga að vel-
megandi fólki, og segja má að
ekkert sveitafélag eigi jafngóða
daga og þetta. Þó er þessi at-
vinnuvegur ekki nema um 40
ára, og það er saga að segja
frá því hvernig það byrjaði.
Engum datt í hug að fara að
stunda hlómarækt þarna til út-
flutnings fyrr en Augustus
Smith lénseigandi Tresco sendi
blóm úr garði sínum á blóma-
markað í London, um 1870.
Hann bafði búið um þau í
gamalli battöskju. Fólk varð
forviða í London á því að sjá
fullþroskuð vorblóm um miðjan
vetur, og verðið, sem greitt var
fyrir þessa litlu sendingu, var
svo gott, að óðar var beðið um
meira. Og nú var farið að yrkja
jörð, sem áður hafði verið í ó-
rækt, og blómaræktin varð at-
Veriö að búa um narsi^sur, sem ,e>iga aÖ fara á marlcaöinn.
Fólk aö tína narsissur. —
I baksýn sést Itellickhöfn.