Fálkinn - 22.03.1946, Blaðsíða 2
2
F Á L K I N N
Afmælisgjöf íslenzku þjóðarinnar til Dagsbrúnar:
IDAGSBROKll
1906
1946
í 40 ÁR
hefir VERKAMANNAFÉLAGIÐ DAGSBRÚN verið öndvegisfélag íslenskra verkalýðssamtaka. Á þessum áratugum hefir
DAGSBRtJN áunnið stórfelldar kjarabætur og réttindi handa meðlimum sínum og markað þar með leiðina fyrir allan
verkalýð landsins. DAGSBRÚN hefir auðgað þjóðina með bættum hag alþýðunnar, aukinni menningu og framförum.
EINN STÆRSTI ÁFANGINN
í menningarbaráttu DAGSBRÚNAR náðist, þegar félagið samningsbatt 12 daga orlof með fullu kaupi fyrir alla með-
limi sína þann 22. ágúst 1942, er síðan var gert að lögum fyrir allan íslenskan verkalýð.
NÆSTI ÁFANGINN
er sá að gefa orlofslögunum tvöfalt gildi með því að gera öllum launþegum og fjölskyldum þeirra sem auðveldast að
njóta orlofsins, ferðast um landið og dvelja í faðmi hinnar undurfögru íslensku náttúru.
Einnig á þessu sviði hefir DAGSBRÚN hafist handa. Vorið 1943 keypti DAGSBRÚN 30 hektara landareign í Stóra-Fljóti
við Tungufljót ásamt réttindum til hverahita. Þetta er einn fegursti staðurinn á fslandi. Hugmynd DAGSBRÚNAR var og
er sú að reisa þarna hið
FYRSTA HVÍLDARHEIMILI VERKAMANNA Á ÍSLANDI
Dagsbrúnarmenn hafa þegar innt af hendi mikið sjálfbaðaliðsstarf til undidbúnings hvíldarheimilinu. En til þess að flýta
enn meir fyrir verkinu, hefir DAGSBRÚN ráðist í
HAPPDRÆTTI MEÐ EFTIRTÖLDUM VINNINGUM:
1. Jepp-bifreið yfirbyggð 9.000.00
2. Píanó 5.000.00
3. Listamannaþing (ritsafn) 350.00
4. Jónas Hallgrímsson (ritsafn) 350.00
5. 500 krónur í peningum
6. Matarstell fyrir 12 400.00
7. Skíði með bindingum 300.00
8. 500 krónur í peningum
9. Saltkjötstunna
10. Tvö tonn af kolum 360.00
Hver miði á aðeins kr. 5,00
Á hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí verður dregið í happdrættinu
ÍSLENDIN G AR!
Með því að selja happdrættismiðana upp fyrir 1. maí getur DAGSBRÚN hafist myndarlega handa þegar í vor um að reisa
fyrsta hvíldarheimili verkamanna á fslandi.
Alþýðufólk, hljálpið til við þetta mikla átak. Kaupið öll happdrættismiða og stuðlið að sölu þeirra.
LANDSMENN!
Færum DAGSBRÚN að afmælisgjöf grundvöllinn að fyrirmyndar hvíldarheimili verkamanna, nýjum þætti í menning-
arsögu íslendinga!
Landnámsnefndin