Fálkinn - 22.03.1946, Qupperneq 3
F Á L K 1 N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar .Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSpre/R
SKRADDARAÞANKAR
Það er svo oft talað um það' um
þessar mundir, að nú sé einangrun
íslands rofin, og þar fyrst og fremst
átt við, að ísland er orðið áfanga-
staður á flugleiðinni milli hins
gamla og nýja lieims. Samt sem
áður er dýrðin nú ekki meiri en
svo ennþá, að póstbréf milli ís-
lands og Norðurlanda eru oft Upp-
undir mánuð á leiðinni, að maður
tali ekki um, að farþegar verða
að bíða vikum saman eftir því
nð komast frá útlöndum til Islands.
Og fargjaldið er þannig, að undir
eins og gullkálfaöldinni linnir á
íslandi veröur það ekki nema fyrir
fárra buddur að nota sér loftleiðina.
Að svo stöddu er landkynningin,
sem ísland hefir fengið með flug-
inu, ekki önnur en sú, að far-
þegar milli austur- og vesturhcims
tylla sér niður í Keflavík, eins og
kría á stein, og fara þaðan úttútn-
aðir af gremju yfir viðtökunqm.
Þeir hafa fengið að koma inn í
bragga, þar sem bæði er fúlt og
kalt, liafa komist í vont skap og
þyltir landið ljótt og allt bölvað.
Þannig segist þeim frá þegar
þeir koma heim. Þær eru ekki fáar,
greinarnar um Keflavík, sem birst
hafa í Norðurlandablöðunum i
haust og vetur, frá ferðafólki,
sem komið hefir við í ICeflavik.
Svíi einn, sem kom þar við skömmu
fyrir jól og þurfti að bíða nokkra
klukkutíma að næturlagi og ætlaði
að sofa, lýsir jjví ömurlega, hve
liann hafi skolfið rnikið á hörðu
fleti undir lélegri værðarvoð, enda
skildist manni helst að brotin hafi
verið rúða í skýlinu, og þessvegna
verið dragsúgur inni, enda var
ofsarok. Þannig eru margar sög-
urnar.
Og þær gera ótrúlegan skaða.
Er fsland þá svona? segir fólkið.
Það tilheyrir engri nýskipun að
breyta náttúrufegurðinni við Kefla-
vik. En hins verður að krefjast
af þeim, sem reka flugferðirnar að
j/eir sjái fólki fyrir sæmilegum
vistarverum meðan það stendur við.
Annars væri viðfeldnast að íslend-
ingar tæki nú þegar að sér rekstur
flugvallarins sjálfir og gerðu þær
umbætur j/ar, sem þurfa þætti.
Meðal annars þarf líka að sjá fyrir
belri samgöngum við Reykjavik,
svo að ferðafólk geti skroppið
þangað þegar tími leyfir — vitan-
lega loftleiðis.
Skipasmíðastoð
Landssmiðjunnar.
Þann 20. júlí 1945 var undirrit-
aður samningur milli ríkisstjórnar-
innar og Landssmiðjunnar um smíði
á 12 vélbátum 55 tonna. Það var
þegár sýnt að til þess að bátarnir
yrðu tilbúnir á réttum tíma þurfti
nauðsynlega að byggja skála fyrir
smíði j/eirra. Strax í júni var byrj-
að að grafa fyrir slíkum skálum
inn við Elliðaárvog; snemma í
september var svo byrjað að reisa
þá og þann 1. des. voru þeir komn-
ir undir þak.
Stjórn Landssmiðjunnar, sem
skipuð er þeim Pálma Loftssyni,
Geir Zöéga og Axel Sveinssyni, bauð
blaðamönnum að skoða hina nýju
skipasmíðastöð á þriðjudaginn var.
Áður en ekið var inneftir, j/áðu
menn veitingar í samkomusal Lands-
smiðjunnar við Sölvliólsgötu og við
það tækifæri gerði Ásgeir Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri, nokkra
grein fyrir þessum framkvæmdum.
Bénti hann á ýmsa örðugleika í
sambandi við J/ær og nefndi sem
dæmi, að kostnaðurinn við flutn-
ing á efnivið í bátana væri næst-
um eins mikill og sjálft verð
efniviðarins. Hinsvegar mætti J/að
teljast mikil bót að öll smíði, sem
að kostnaði nemur nálægt helmingi
af lieildarverði bátanna, væri nú
framkvæmd með innlendu vinnu-
afli. Kvaðst Ásgeir þess fullviss, að
stofnun ltessarar skipasmíðastöðv-
ar væri stórt skref í áttina til auk-
innar hagsældar fyrir sjávarútveg-
inn og allt íslenskt þjóðlíf í heild.
Hin nýja skipasmíðastöð er hin
fyrsta hér á landi, þar sem unnið
er að smíði liinna stærri báta inn-
anhúss. Skálarnir, sem bátarnir eru
smíðaðir í, eru 55x22 m. að stærð,
en fyrir ofan aðalskálana er véla-
og smiðahús, sem er 25x31 m. að
stærð. Fjórir bátar eru smíðaðir í
senn og hófst smíði þeirra fyrstu
2. des. s.l. Samkvæmt samningi
eiga Jæssir fyrstu 4 bátar að vera
búnir 1. okl n.k., en J/ar eð verk-
ið gengur mjög vel má gera ráð
fyrir að tveir J/eirra, að minsta
kosti, verði tilbúnir nógu snemma
lil að fara á síld á sumri komanda.
Ætli ekkert að verða því til fyrir-
stöðu svo frantarlega sem vélarnar,
en Jiær verða keyptar i Englandi,
berast hingað i tæka tið, Verð livers
báts er áætlað um 435 þús. krón-
ur en þar með er ekki talið verð
á aðalvélinni.
Bátarnir eru byggðir eftir teikn-
ingum Þorsteins Daníelssonar, en
Páll Pálsson, skipasmíðameistari,
hefir haft yfirumsjón með öllu, sem
bálasmíðina snertir. Hafliði J. Haf-
liðason annast clla verkstjórn. Að
smíði bátanna vinna nú 11 smiðir,
10 nemendur og 10 aðstoðarmenn.
Tito marskálkur fékk, eins og kiinn-
ugt er, einróma traustsyfirlgsingu
frá báöum cleildum júgóslavneska
f>ingsins. Fyrir skömmu var hann
í Varsjá, þar sem hann undirritaði
20 ára vináttusamning milli Pól-
verja og Júgóslava.
Felix Gouin, Frakklandsforseti. —
Pétur Denediktsson, sendiherra,
gekk á fund hans s.l. laugardag og
afhenti honum embættisskilríki sín.
Andrej Visjinski.
Erich ,Maria Remarque. — Allir
kannast við sögurnar „Tíðindalaust
á Veslurvigstöðvunum“ og „Vér
héldum lieim“. Mynd þessi er af
hinum þýska höfundi þeirra, Erich
Maria Remarque, sem nýlega skrif-
aði ávarp til yfirstjórnar ameriska
setuliðsins i Þýskalandi, þar sem
hann hvetur hana til, að leggja
meiri áherslu á að sýna Þjóðverj-
um fram á þá staðreyhd, að það var
Hitler, sem átti sök á stríðinu og
þar með öll þýska þjóðin.
Lárus Jónsson, organleikari, Hverf-
isgötu 38B, Hafnarfirði, verður 50
ára 25. mars.
Mohamed Ali Junnah, forseti ind-
verska Múhameðstrúarsambandsins.
r