Fálkinn - 22.03.1946, Blaðsíða 7
F Á L K I N N
7
Fyrir heimilislausa. Þúsundir Þjóðverja ráfa nú um hið eyðilagða ættland sitt í leit að húsaskjóli. 1
bænum Bielefeld hafa hjálparsveitir Lutherstrúarmanna ofnað gríðarstórar svefnstofur fyrir almenning.
Á kvöldin er þar haldin stutt guðsþjónusla, áður en menn fara í hát inn. Mynd þessi var tekin við slíkt
tækifæri.
Kol! Kol! — Öll lönd Evrópu biðja
um kol og aftur kol til þess að
koma iðnaðinum, gas og rafmagns-
stöðvunum aftur af stað. Nánui-
verkamaðurinn er því hetja dags-
ins, og við hann eru tengdar vonir
kolasnauðra.
Lögregluliðið í Palestínu. — Bretar þurfa á miklu lögregluliði að halda
lil að berja á óánægffum íbúum Palestínu. Á efri myndinni sjást lögreglu-
menn, sem breska heimsveldið notar lil afí bœla niður minniháttar upp-
reisnir gegn sér. Þessir náungar eru vopnaðir kylfum og skjöldum, sem
skýla þeim fyrir grjótkastinu sem tíðum dynur á þeim. Auðvitað eru
þarna líka vel vopnaðar lögreglusveitir, reiðubúnar til bardaga, ef á
þarf að halda. Á neðri myndinni sjást lögreglumenn með nokkra unga
Gyðinga á leið til yfirheyrslu og ef til vill fangelsisvistar
Þingi Sameinuðu þjóðanna slitið. — Visinski, hinn mikilhæfi fulltrúi
Itússa á þingi Sameinuðu þjóðanna, sést hér vera að kveðja Hafiz
Wahba, einn af fulltrúum Araba, eftir að þinginu hafði verið slitið.
Nýjubúðir enn í hættu? — Fyrir 300 árum lét Kristján fjórði byggja
þessi hús fyrir fólkið á Ilolmen. Siðan hafa margoft verið uppi radd-
ir um það, að réttast væri að rífa þau og byggja önnur ný í staðinn.
Aldrei hefir þó neitt orðið úr því enn sem komið er, en nú eru menn
aftur farnir að rifast um málið og getur svo farið, að ekki líði á
löngu, þangað til þessi gömlu hús hverfa af sjónarsviðinu.