Fálkinn - 25.10.1946, Síða 3
FÁLKINN
3
*
Klnkkan á tnrni Sjómannaskólans
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSprenf
SKRADDARAÞANKAR
Islendingar hafa löngum verið
rómaðir fyrir hjálpfýsi og samúð
við þá, sem bágt eiga. Þegar sjó-
slysin miklu svifta konur og börn
eða farlama foreldra athvarfi sínu,
er sjaldan leitað svo til almennings
að ekki berist góð hjálp og skjót.
Og þegar leitað var til þjóðarinnar
um samskot handa frændþjóðunum
og vandabundnu fólki erlendis, sem
orðið hafði fyrir barðinu á styrj-
öldinni, varð hjálp íslendinga svo
ríkuleg, að fullyrða má að engin
þjóð í heimi hefir gert betur, i
hlutfalli við getu sína.
Þessa er vert að g'eta i sambandi
við liitt, sem á skal drepið hér á
eftir. Það er ekki nóg að vera gjöf-
ull, eins og nú standa sakir. Heim-
urinn sveltur, og þó að það muni
að vísu litlu hundruð miljóna af
mögum, hvort íslendingurinn geng-
ur vel að mat sínum eða ekki, þá
verður þó að benda á að það er
siðferðisskylda hvers einstaklings
að láta nokkuð það, sem notað verð-
ur til fæðis eða klæðis fara" for-
görðum. Tvímælalaust geta íslend-
ingár lcomist af með miklu minni
innflutning matvæla og fatnað(ar
en þeir liafa nú, bæði með þvi að
iáta minna fara í súginn og nota
innlenda framleiðslu meira. Hvað
það síðarnefnda snertir er þó sá
hængur á, að innlendi maturinn —
að fiskmeti undanteknu — er dýr-
asti maturinn, sem liægt er að fá,
en enginn þarf að efast um, að
ekki verður þjóðinni lífvænlegt á
friðartímum ef landbúnað skal
stunda og afurðir hans eiga að
vera i margföldu verði við sams-
konar vörur innfluttar. Það mál
verður að leysa í sambandi við dýr-
tíðarmálin yfirleltt og' með breytt-
um búskaparliáttum.
En um hitt ræður þegnskapur
þjóðarinnar. Það er eflaust óþarfi
að flytja inn fatnað og vefnaðarvöru
fyrir svo mikið að fjórðungur
alls útflutningsins hrekkur ei fyrir
innflutta fatnaðinum. Sumar aðrar
þjóðir, sem mikið til klæðast inn-
fluttum fatnaði, gátu notast við
gamlan fatnað í 5 ár, meðan stríðið
liefti innflutninginn.
Með sparnaði vinnum við öðrum
þjóðum gagn. En þó fyrst og fremst
afstýrum ófarnaði okkar eigin þjóð-
ar.
Nú liefir stærstu klukku landsins
verið komið fyrir i turni Sjómanna-
skólans. Það var Innflutningssam-
band íslenskra úrsmiða, sem gaf
skólanum þessa risasmíði, og var
hún formlega afhent skólanum i há-
degisveislu að Hótel Borg siðastl.
fimmtudag.
Klukkan hefir fjórar skífur, og er
ein á hverri hlið turnsins. Hver
skífa er 168 cm. í þvermál, svo að
þær sjást langt að, bæði frá bænum
og höfninni. í miðjum turninum
hefir verkinu verið komið fyrir, og
er það mjög sterkbyggt og vandað.
Það er úr stáli og kopar, og út frá
því liggja stálrör til vísanna, sem
mikinn kraft þarf til að knýja á-
fram, sérstaklega þar sem þeir eru
óvarðir utan á skífunni. Þessvegna
hefir rafm’agnsmótor verið komið
fyrir til þess að annast þettá, og
dregur liann klukkuna upp með
stuttu millibili.
Ætlunin er að lýsa úrskífurnar
upp, eftir að skyggja tekur, en þó
hefir ekki verið endanlega gengið
Kennsla hafin i Melaskóianum
Laugardaginn 12. okt. liófst
kennsla i hinum nýja Melaskóla í
Reykjavík. I vetur munu sækja skól-
ann 8—900 börn og verður þeim
skipt í 28 deildir. Skólastofurnar,
sem kennt verður í i vetur, eru 14
talsins auk tveggja kennslustofa
fyrir handavinnu.
frá því, hvernig það verði hagkvæm-
ast.
Turnklukka þessi er ekki sjálf-
stæð, lieldur tengd i „móðurklukku“
sem sendir boð upp til turnklukk-
unnar auk 12 stofuklukkna víðs-
vegar um skólann. Það er þessi móð-
urklukka, sem er lífið og sálin í
allri þessari vélasamsetningu. Hún
er mjög fullkominn að allri gerð og
laus við ýmsa ágalla eldri klukkna,
sem ekki þola miklar hitabreyting-
ar, ef þær eiga að ganga rétt.
Eins og áður er getið var klukk-
an afhent formlega að Hótel Borg,
fimmtudaginn 17. þ. m. Jóhann
Ármann Jónasson, formaður inn-
flytjendasambands úrsmiða, afhenti
skólastjóra Sjómannaskólans, Friðrik
Ólafssyni, klukkuna, og kvaðst vona,
að hún ætti eftir að verða sem flest-
um til blessunar. — Hófið sátu
ýmsir tignir gestir, svo sem sam-
göngumálaráðherra, fjármálaráð-
herra, borgarstjóri o. fl.
Klukkan er smíðuð hjá Smith’s
Clocks Ltd. i London. Björn Björns-
Smíði skólans er enn ekki lokið,
en gert er ráð fyrir, að hann verði
fullgerður næsta haust. Þá er ætlað
að um 1200 börn muni sækja hann.
Kennslustofurnar verða þá 22 auk
sérstofa fyrir matrdiðslu, handa-
vinnu o. fl. Ennfremur verða í skól-
anum samkomusalur, skrifstofa,
kennarastofa, Ijósastofa og herbergi
fyrir skólalækna. I kjallara skólans
Turn Sjómcinnaskólans eftir að
klukkunni hefir verið komið fyrir.
son, stórkaupmaður, annaðist kaup
klukkunnar, og las hann á hófinu
upp bréf l'rá forstjóra fyrirtækisins.
Kvaðst forstjórinn vona, að klukk-
an yrði tákn ævarandi vináttu milli
íslands og' Bretlands. Hann sagðist
einnig hafa mikinn hug á að koma
til íslands og kynnast landi og þjóð.
Mcð klukkunni koniu hingað til
landsins tveir enskir klukkusmiðir,
sem settu hana upp í turni Sjó-
mannaskólans.
verður íbúð umsjónarmanns. Vcstan
við aðalbygginguna er stórt og gott
leikfimishús.
Kennaralið skólans verður i vet-
ur skipað 16 fastakennurum og
nokkrum tímakennurum. Sennilegt
er þó, að hækka verði nokkuð tölu
fastakennara að hausti. Skólastjóri
Melaskólans er Arngrímur Krist-
jánsson.
Ein hinna fjögurra skifa á turnklukkunni, sem blasir við bæjarbú-
búum. Stærð mannanna gefur góða hugmynd um stærð skífunnar. —