Fálkinn - 25.10.1946, Síða 6
6
FÁLKINN
I greipum Grænlandsísa
Lang-ur janúarmánuður.
Hjá mönnunum við sleðann var
janúar nauðalíkur desember, að því
fráskildu að janúar voru þeir alltaf
á sama stað, og að dagurinn fór að
lengjast eftir mánaðarlokin. Hinn
5. janúar varpaði Turner til þeirra
hernaðartilkynningu, sem gladdi þá.
Þeir fengu að vita, að Rommel
hafði beðið ósigur, og þeir lásu um
orusturnar í vetrarhörkunum í
Rússlandi og í hitunum á Salómons-
eyjum. Spencer hafði áður flogið
herflutningavélum i Suður-Ameriku
og Afríku, og það er enginn vafi
á að hann hefði langað til að lenda
í þesskonar flugi einmitt núna.
O’Hara komst furðanlega af. Nokkr
um sinnum var hann með óráði og
svo var ólag á meltingunni. Þeir
voru vanir að mata hann á súpunni,
sem sleppt var niður til þeirra, og
þegar hún var búin suðu þeir eins-
konar graut úr pemmikaninu, sem
þeir höfðu. En O’Hara þoldi ekki
þann mat. Hinn 6. jan. fleygöi Turn-
er niður smurðu brauði: sjúkling-
urinn fékk það, en liinir átu sinn
venjulega mat. O’Hara þoldi smurða
brauðiö betur.
Þeir þremenningarnir kynntust til
hlýtar, eigi aðeins af því, sem þeir
sögðu hverir öðrum af sjálfum sér,
heldur af því að þeir sáu hvað
í hverjum bjó. Þeir urðu ekki leiÖ-
ir hver á öðrum. Og þeim sem
loksins björguðust, þykir gaman að
vera saman enn þann dag í dag.
Þann 21. jan. fleygði Turner nið-
ur frétt, sem jók þeim kjark á ný.
Þar var sagt að Catalinavél væri
á ieiðinni til björgunarstöövarinn-
ar og mundi lenda þar fyrsta dag-
inn, sem gott veöur kæmi. Með
þessari tilkynningu komu sköft og
rauðar dulur til að festa á þau,
önnur í toppinn og hin niður við
snjóinn, til þess að hjálpa flug-
mönnunum að átta sig í lending-
unni.
Tilkynningunni lauk þannig: „Viö
hittumst bráðlega,“ og var undir-
skrifuð: „Strákarnir". Og utaná-
skriftin var: „MótorsleÖinn". Því
að ekki vissu björgunarmennirnir
hvaða menn voru á hvorum staðn-
um.
Spencer var æfður flugmaður;
hann valdi lendingu á sléttum og
sprungulausum stað og kannaði hann
nákvæmlega. Svo setti hann upp
flaggstengurnar.
Það varð löng bið á því að „fyrsti
góðviðrisdagurinn“ kæmi. Catalina-
vélarnar komust á björgunarstöðina,
en svo gerði illviðri og þær löskuð-
ust. Þeir urðu að lokum að taka
varahluti úr annari vélinni og setja
í hina, svo að ein vél yrði að
minnsta kosti í lagi. Þegar janúar
lauk var björguninni ekki komið
lengra en lofað var í tilkynning-
unni frá 21. jan.
1 mánaðarlokin tók Spencer eftir
að Tetley var farinn að verða þung-
búinn útaf því að 1. febrúar nálgað-
ist. Þá var afmælisdagur Tetleys.
Konan hans og hann voru fædd
sama daginn og höfðu alltaf haldið
hann hátíðlegan saman síðan þau
giftust. Þau voru fædd í sama þorp-
inu og nú fór hann að útmála fyrir
sér, hvað þau-mundu hafa gert ef
hann hafði verið heima. Og hann
var að ígrunda hvað fjölskyldan
mundi segja núna, hvað þau mundu
borða og hverjir mundu verða gest-
komandi.
Sjálfan afmælisdaginn var Tetley
daufur í dálkinn. En svo kom Spenc-
er með dálítið óvænt. Það kom á
daginn að hann hafði geymt lieilan
sígarettupakka; nú gaf hann félaga
sínum liann í afmælisgjöf. Þó að
þetta væri ekki nema smávægilegt,
þá liafði það sin álirif.
En Spencer fékk sín laun jafn
óvænt. Þennan dag kastaði Turner
pósti til þeirra, bréfum að heiman
og' peysu, sem kona Spencers hafði
prjónað handa honum í jólagjöf.
Tetley fékk ekkert. Því miður hafði
póstur lians verið sendur á aðra
stöð og komst ekki í tæka tíð. O’
Hara fékk heldur ekki neitt. En
bara þetta, að póstur kom var í
sjálfum sér lífgandi. Hópur manna
Mjög falleg frú er á gangi með
drengsnáða sínum, og maður einn
veitir þeim eftirför. Hún kaupir sér
bíómiða og fer inn með strákinn,
og maðurinn fær sér miða á næsta
bekk beint fyrir aftan. Hann þorir
varla að ávarpa konuna af hræðslu
við að strákurinn kjafti í föður sinn,
en dettur loks í liug að hvisla á
frönsku:
— Afsakið þér, frú, má ég segja
nokkur orð við yður?
Þá snýr stráksi sér við og svarar
vann- ekki aðeins að því að bjarga
þeim en fórnaði sér lika fyrir að
útvega þeim þa ðsmávægilega, sem
er svo nauðsynlegt til að gera lífið
lífvænlegt. Það var alls eng'inn hægð-
arleikur að koma pósti til manna,
þarna norður á hjara veraldar.
Með póstinum kom líka tilkynning,
undirrituð Strákarnir. Þar sagði að
Catalinavélin væri þar tilbúin til
flugs og að hún mundi lenda hjá
þeim eftir nokkra daga. „Og þá skul-
ið þið komast með, stóð á seðlinum.
Hinn 3. febrúar kastaði Turner
niður taltæki, sem sent hafði verið
sunnan frá Bandaríkjunum. Þeir
reyndu að tala i það, en trektín
fylltist af ís frá gufunni í andar-
drættinum. Þeir fóru þá inn með
tækið og þýddu það, iögðu síðan
sokkbol yfir trektina og þá gekk allt
vel. Engin lendingartilraun var gerð
þennan dag; það var of hvasst og
tveggja metra þykkur skafrenning-
ur á ísnum. En nú gátu þeir talað
við þessa ókunnu stráka á björg-
unarstöðinni.
Daginn eftir var heldur ekki flug-
færi til elndingar. En Turner sveif
á frönsku: — Ef þér viljið það, þá
skal ég túlka fyrir yður. Hún
mamma skilur nefnilega ekki
frönsku.
Frá Hollywood.
Greta Garbo hefir undirritað samn-
ing við kvikmyndafélag á ný, og
þess veröur ef til vill ekki langt
að bíða, að hún l^ti ljós sitt skína
aftur.
Jack Agar, eiginmaður Sliirley
Temple, hefir verið ráðinn kvik-
yfir þeim og talaði við Spencer
um lendingarstaðinn. Hann sagði að
mennirnir á björgunarstöðinni efuð-
ust um að hann væri nothæfur, og
að betra mundi að reyna að kasta
niður varahlutum i sleðann og koma
honum i lag. Veðrið færi batnandi
og dagurinn lengdist, svo að ekki
var fortakandi að þeir gætu komist
burt á sleðanum.
Spencer svaraði: — Sannast að
segja höfum við verið að grafa i
snjónum í margar vikur, en finnum
hvergi sleðann!
Turner sneri á burt eftir að hafa
gefið þeim von um að lendingartil-
raun mundi gerð daginn eftir, og
að ekki mundi verða liugsað til
að gera við þennan sleða, sem var
að minnsta kosti undir fimm metra
snjólagi.
O’Hara, sem hafði staðiö sig eins
og hetja þrátt fyrir kalið og kol-
brandinn, hafði lilakkað mikið til
þess að flugvélin lenti. En því
þyngri urðu vonbrigði hans við
frestunina.
myndaleikari hjá Selznick. Þau hjón-
in verða því sjaldan langt frá hvoru
öðru, þar sem þau leilca hjá sama
félagi.
Nú er farið að hljóðna um dans-
arann fræga, Cesar Romero, sem
sást um tíma i svo mörgum mynd-
um hér, bæði dansmyndum og skop-
myndum. Ástæðan er sú, að hann
var rekinn úr ameríska sjóliernum
fyrir tæpu ári, og hefir liann ekki
verið eftirsóttur leikari síðan.
Bezta tryggingin fyrlr öruggri raf
suðu er ESAB rafsuðuvír.
Ýmsar tegundir fyrirliggjandi.
Einkaumboð fyrir E.S.A.B.-verksmiðjurnar í Kaupmannahöfn.
LUDVIG STORR
Framh. í næsta blaði.