Fálkinn - 23.05.1947, Side 14
14
F Á L K I N N
Eins og mönnum er í fersku minni, strandaði hið fræga enska
orustuskip „Warspite“, sem einnig var kallað „liefðarfrú enska
flotans" (Grand old Lady of thc English Fleet), við Corwall-
skaga sunnanverðan ekki alls fyrir löngu. Verið var að draga
það til Skotlands, þar sem átti að höggva það upp, en þá hrepptu
skipin stórviðri, svo að tóin slitnuðu, og „W,arspite“ rak stjórn-
laust upp að Cidden Point á Cornwall. Hér sést skipið strandað.
Radar á flugvöllum. — Drungalegt veður og vont skyggni eru
einn höfuðóvinur flugmannanna. Staðarákvörðunin er að vísu
ekki mjög erfið, en lendingin þeim mun erfiðari, ef ekki sést til
jarðar. — Á stríðsárunum var unnið kappsamlega að því að
hæta úr þessu, og eitt hinna nýju kerfa, sem tekin voru í notk-
un, er radarkerfið G. C. A. — Ground Control Approácli —
Hefir það náð töluverðri útbreiðslu, þótt flugmennirnir sjálfir
séu ekki sem ánægðastir með það. Öll stjórntækin eru niðri á
vellinum og starfsmennirnir í stjórnturninum þar stýra lend-
ingunni alveg, en flugmaðurinn er aðeins verkfæri í þeirra
hendi. —■ Næsta spor í þróunarátt er að finna upp tæki, sem
verða í flugvélinni sjálfri og flugmaðurinn stjórnar, svo að hann
geti lent í mistri hvar sem er, án þess að fá hjálp frá jörðu.
Myndin sýnir reynslulendingu á flugvellinum í London. Á miðri
myndinni sést G. C. A.-stjórnvagninn.
Dm stjornnlestnr.
Eftir Jón Árnason, prentara
Sólmyrkvi 20. maí 1947.
Alþjóðayfirlit.
Sólmyrkvi l)essi er nálægt há-
degisstað hér á landi, en er ekki
sjáanlegur og hefir því að likindum
minni áhrif. Er hann i miðnætur-
stað um austanverða Ástralíu eða
á þeirri lengdarlinu. Mætti húast
við jarðskjálfta þar eða eldgosi. Á
austurtakmörkum írans gæti það og
átt sér stað eða nálægt vesturströnd
Bandaríkjanna eða á þeirri lengd.
Pestir eru ein af afleiðingum þessa
sólmyrkva.
Lundúnir. — Sólmyrkvinn er i 9.
lnisi. — Siglingar og viðskipti við
nýlendurnar mun mjög á dagskrá
og veitt athygli. Merkúr hefir og'
nokkur áhrif og eykur og styrkir
hin góðu áhrif. — Úran er í 10.
húsi og hefir slæmar afstöður. Ó-
væntir örðugleikar koma í Ijós fyr-
ir stjórnina og jafnvel konungs-
fjölskylduna. Koma þeir að nokkru
frá íhaldsmönnum og' þinginu. —
Nejptún er í 1. húsi. Óánægju nokk-
urri má búast við meðal almenn-
ings. — Júpíter í 3. húsi. Hefir
slæmar, afstöður. Hætt er við að
kostnaður við rekstur samgöngu-
tækja hækki. — Mars er í 8. húsi.
Slæmar afstöður með tilliti til þess
að rikið eignist fé við fráfall manna.
Berlin. — Nýja tunglið er í 9.
húsi. — Siglingar og viðskipti við
önnur lönd munu mjög á dagskrá
og vekja athygli. — Mars ræður 8.
húsi. Kunnur herforingi mun deyja.
— Neptún í 1. húsi. Baktjaldamakk
og óþægileg atvik gætu gerst, siðleysi
og svik, áróður gegn valdhöfum
og g'læþir fara í vöxt. — Júpíter
ræður 2. húsi og' hefir allar af-
stöður slæmar. Tollatekjur munu
minnka og útgjöldin vaxa að mun.
Örðugleikar jneðal bankaráðenda.
— Merkúr i 9. húsi. Umræður uni
heilbrigðismál og trúmál. — Satúrn
i 10. liúsi. Ekki heppileg afstaða fyr,-
ir ráðendurna.
Moskóva. — Myrkvinn er i 8. húsi.
Sól og Tungl ráða 10. húsi. Er því
líklegt að dauðsföll eigi sér stað
mcðal hátt settra manna og áhrifa-
manna i ýmsum greinum. Satúrn
er í 10. húsi og liefir veruleg áhrif
í þá átt að styrkja og auka örðug-
leika ráðendanna og Plútó er þar
einnig, sem bendir á ókunnar hætt-
ur er bíða þeirra. — Neptún í 12.
lnisi. Bendir í sömu átt. Siglingar og
viðskipti við önnur ríki undir at-
hugaverðum áhrifum, því Úran er
i 9. lnisi og hefir slæmar afstöður.
Misgerðir gætu komið í ljós. Mars
í 7. liúsi. Örðugleikar miklir í utan-
rikismálum. Þessi afstaða bendir i
styrjöld. Júpíter i 2. húsi og hefir
slæmar afstöður. Örðugleikar í
banka- og fjármálum.
Tokyo. — Myrkvinn er í 4. lnisi.
Er að öllum likindum slæm afstaða
fyrir landbúnaðinn og andstæðinga
stjórnarinnar. Júpítér i 10. húsi.
Bendir á örðuga aðstöðu stjórnar-
innar og ráðendanna ogg fjárhags-
örðugleika mikla. Satúrn i 7. húsi.
Miklir örðugleikar i utanríkisviðskipt
um og ódæði framin gegn börnum.
Munu örðugleikar þessir verða lang-
varandi. Úran i 5. húsi. Vandkvæði
ýms og óvænt koma i ijós i sam-
bandi við leikhús og skcmmtana-
starfsemi. Mars i 3. húsi. Hefir slæm
áhrif á samgöngur og flutninga,
póstgöngur, útgáfu blaða og bóka.
Washington. — Sólmyrkvinn er í
11. húsi. Mun hafa óheillavænleg
áhrif á gang þingmála. Má búast
við ágreiningi um fjárhagsmál, þvi
slæm áhrif frá Júpítcr benda á það.
Mars i 10. húsi. Slæm afstaða fyrir
forsetann og stjórnina. Verður að
viðhafa mikla g'ætni ef vel á að
fara. Neptún í 4. húsi. Varasöm áhrif
og bendir á áróður í sambandi við
skatta af landeignum og námum.
Júpíter i 5. húsi. Örðugleikar út af
trúarbragðafræðslu. Útgjöld í rekstri
leikþúsa hækka að mun. Satúrn í
1. liúsi. Má búast við minnkandi
vinnu og óánægju meðal almenn-
ings. Plútó i 2. húsi. Ekki heppi-
leg afstaða með tilliti til fjármál-
anna og rekstrar bankanna. Úran
í 12. húsi. íkveikja í betrunarhúsi
eða góðgerðastofnun.
Island.
Sólmyrkvinn er í 10. húsi og' er
Merkúr meðverkandi. Líklegt er að
sæmileg afstaða sé fyrir stjórnina,
því flestar afstöður eru góðar, þó
að ekki séu þær þróttmiklar. En
hver áhrif sólmyrkvinn mun hafa
er ekki víst, því að hann sést ekki
hér.
1. hús. — Merkúr ræður húsi
þessu. — Hefir góðar afstöður og
bendir á þróttmiklar framkvæmdir
og viðskiptalif. Námsáhugi mikill.
2. hús. — Neptún er í húsi þessu.
— Bendir á örðugleika í fjármál-
•um og undang'raftarstarfsemi og
skemmdarverk í þeim efnúm og
jafnvel óvæntar misgerðir gætu orð-
ið heyrinkunnar.
3. hús. — Júpíter er í liúsi þessu.
— Hefir slæmar afstöður. Ýmsir
örðugleikar munu koma í ljós í
flutningamálum og samgöngum. —
Reksturskostnaður mun hækka.
4. hús. — Júpíter ræður luisi
þessu. — Ekki beinlínis góð af-
staða fyrir bændur og landeigend-
ur. Andstaða stjórnarinnar er frem-
ur veik.
5. hús. — Satúrn ræður húsi þessu
— Ekki æskileg' afstaða fyrir leik-
húsastarfsemi og leikara.
6. hús. — Satúrn ræður einnig
luisi þessu. — Kvillasamt gæti orð-
ið og gætu hjartakvillar orðið á-
berandi. — Óróleiki og óánægja mcð-
al vinnandi stétta.
7. hús. — Júpíter ræður húsi þessu
— Hefir liann slæmar afstöður.
Hætt er við að örðugleikar i við-
skiptum við önnur ríki verði á-
framhaldandi. Ágreiningur vegna
viðskiptamála.
8. hús. — Mars ræður húsi þessu.
Bendir á misgerðir, dauða vcgna
íkveikju, sprenginga eða slysa.
.9. lms. — .Bendir á ikveikjur í
skipum, sjóskaða. Dauðsföll meðal
lögmanna, klerka og manna í utan-
ríkissiglingum. Umræður um trúmál
og lögfræðileg málefni.
11. hús. — Satúrn er í húsi þessu.
— Örðugleikar i þinginu i sam-
bandi við fjármálin og viðskiptin
við útlönd. Stjórnin á í örðugleik-
um miklum og má fara hyggilega
að ef vel á að fara.
12. lnis. — Engin pláneta var i
húsi þessu. Hefir það að líkindum
mjög lítil áhrif.
Ritað Í0. maí 19i7.
Liclitenstein - síðasta furstaveldi
Framhald af bls. 6.
En þeir vildu ekki hætta við á-
form sitt að licldur, svo að nú
urðu nokkur hundruð manns að
taka til sinna ráða. Afvopnuðu þeir
uppreisnarmennina og handtóku
Þjóðverjana í hópum. Og vélaher-
sveitir Þjóðverja, sem biðu við
landamærin, fengu engin boð frá
framvörðunum um að koma, held-
•ir fréttu þeir að skotspónum að
nazistaflokkurinn í Lichtenstein
væri ekki til framar. Sjö af leið-
togum flókksins fengu fangelsisvist
og sátu inni þangað til stríðinu
var lokið. Þó að hvað cftir annaS
kæmu kröfur frá Þjóðverjum um
að þeir yrðu látnir lausir. Má heita
furðulegt að Þjóðverjar skyldu ekki
verða harðari í kröfum við Lichten-
stcinbúa en ríiun bar vitni um.