Fálkinn - 05.12.1947, Síða 2
2
FÁLKINN
Faxi og Bessastaðir eru öndvegisbækur ársins 1947
Saga heillar þjóðar á hestbaki er sérstæðasta saga mann-
kynssögunnar.
er hrífandi og mikilfengleg glæsisaga ís-
lenskra manna og íslenskra hesta. Hún lýs-
ir hlutdeild hestsins í lífi heillar þjóðar, og
tilfinningar þær er um þúsund ár hafa auðgað líf íslenskra
manna í skiptum þeirra við hesta sína.
Dr. Broddi Jóhannesson hefir unnið að samningu þess-
arar bókar undanfarin ár. Hún er 453 bls. í stóni broti auk 50
heilsíðumynda af sögulegum atburðum eftir Halldór Péturs-
son, er annast liefir skreytingu bókarinnar. Hún er bundin í
forkunnarfallegt band og allur er frágangur hennar einn
glæsilegasti, er sést hefir í íslenskri bókagerð.
íslenskir menn og hestar hafa farið saman kvikir og
dauðir. Kynslóð eftir kynslóð hafa fslendingar þreifað á
landi sínu með hófum hesta sinna.
Hesturinn hefir verið íslensk alþýðueign fram á þessa
öld. Hann hefir tekið þátt í fögnuði sérhvers barns á þessu
landi í tíu aldir.
Saga hestsins er íslensk saga, leiðir hans fslendingaleiðir.
Hesturinn gaf íslendingum ekki einungis kost á að koma
á fót skipulögðu ríki, heldur gerði hann þá einnig að land-
námsmönnum og Islendingum.
íslendingasagan FAXI er sígilt snilldarverk, sem hvert
einasta heimili oetti að eignast — og vinargjöf, sem aldrei
fyrnist.
BESSASTAÐIlt
ÞÆTTIR ÚR SÖGU HÖFUÐBÓLS
Eftir Vilhjálm Þ. Gislason
1 þessari fögru og fróðlegu bók eru raktir höfuðdrætt-
irnir í sögu eins frægasta höfuðbóls á landi hér. Fyrst er
gerð grein fyrir sögu- og menningarlífi stórbýlanna í sveit-
um landsins og sveitabýlanna yfirleitt, en síðan er rakin
saga Bessastaða sérstaklega. Þar er sögð stjórnmálasaga
staðarins, búskaparsaga og kirkjusaga og byggingasaga,
sagt frá helstu ábúendum og höfðingjum, sem þar hafa
setið, og birtar myndir margra þeirra eða myndir af stað-
arhúsum á ýmsum tímum, og sýnishorn af bréfum og grip-
um frá Bessastöðum. Frásögnin er skemmtileg og fróðleg.
Þetta er ein hin fegursta og snyrtilegasta bók, sem hér
hefir komið út og um ekkert annað höfuðból á íslandi er
til svo skrautleg bók. Allur frágangur er mjög smekklegur
og vandaður, bókin er bundin í gylt alskinn, handsaumað
með litmynd, auk mikils fjölda annarra mynda og bóka-
skrauts.
Þetta er bók, sem hvert einasta bókasafn og lestrarfé-
lag þarf að eignast og hver einstaklingur, sem á vandað
safn af bókum um íslenzk fræði og sögu, eða vill gefa vinum
sínum góða gjöf.
Fræðibók — Skemmtibók — Gjafabók
Verð Faxa:
í alskinni ............... kr. 130.00
í rexin .................. —- 105.00
Heft ....................... — 85.00
VerS Bessastaða:
í alskinni ............... kr. 85.00
FAXI og BESSASTAÐIR ezu jólabækurnar 1947
^paðkjöt
Höfum nú þessar tunnustærðir:
Áttunga 14 kg.
Kúta 32 kg.
Hálftunnur .... .... 55 kg.
Heiltunnur .... . . . . 110 kg.
Heiltunnur .... . . .. 120 kg.
Frystih. llerðubrdd
Sími 2678.
Hangikjöt
Vegna vaxandi afkasta gerum vér oss von-
ir um að geta nú fyrir jólin fullnægt pönt-
unum viðskiptamanna vorra.
Reykhús S.Í.S
Sími 4241.