Fálkinn - 05.12.1947, Side 3
FÁLKINN
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSpren/
SKRADDARAÞANKAR
Það er gott að lieyra, að eitthvað
er verið að laga húsakynnin á Kefla-
víkurflúgvellinum. Þau hafa verið til
skanunar og aðbúðin, sem gestir hafa
fengið þar liefir orðið til þess að
skapa gremju lijá þeim og fyririitn-
ingu á landinu. Vegur þetta upp á móti
mörgum vættum af iandkynningu. —
„Eg hefi verið' þrjá tíma á Islandi,
og það var þremur timum of lengi,“
segir norskur ritstjóri nýlega. „Eg
var á flugvellinum í Keflavík!“ Og
undanfarin tvö ár liefir mátt sjá
margt af liku tagi, ekki síst i sænsk-
um blöðum.
Þess er að vænta að á flugvelli
þessum verði innan skamms komin
vistleg húsakynni og að hjallarnir,
sem nú blasa við gestum og gangandi,
hverfi. En þarna þarf fleira að laga,
þvi að enn er umhverfið líkast því,
sem þar hafi verið varpað sprengjum
í stórum stíl. Það þarf að jafna og
græða landiö í kring, eftir því sem
náttúruskilyrði leyfa.
Og umfram allt þarf að bæta sam-
göngurnar milli Keflavikur og lleykja-
víkur. Þessi klukkutíma bílferð —
og stundum löng bið eftir henni -
verður að hverfa úr sögunni, og það
er vorlcunnarlaust, jjví að flugfar milli
Keflavíkur og Reykjavíkur kostar ekki
nema smáræði lijá sjálfu farinu til
útlanda. Þessvegna jjurfa að vera litl-
ar flugvélar til milliferða á jVessari
leið, fyrir alla þá, sem fara til útlanda
eða koma jrnðan. Eins og er tekur
ferðin frá Reykjavík og biðin i Kefla-
vík stundum eins langan tíma og ferð-
in frá Keflavík til Noregs.
Það má ef til vill segja að ekki liggi
á þessu fyrr en farið er að nota flug-
leiðina milli Keflavíkur og útlanda
sem skemmtiferðaleið. En þaS er mik-
ill misskilningur. Nú ])egar ferðast út-
lendir og innlendir kaupsýslumenn
mikið þessa leið, og þeim liggur oft-
ast á, og telja tímann peninga. Og
skemmtifcrðamennirnir að vestan
koma undir eins og ferðaskilyrðin
batna og þeir eru Iátnir vita að hægt
sé að taka á móti þeim. Bandaríkja-
menn eru ein af þeim fáu þjóðum,
sem geta feröast eins og stendur og
það er ástæðulaust að amast við að
þeir komi hingað og skilji eftir sem
flesta dollara.
Hinn 27. nóvember 1927 var
stofnfundur Ferðafélags íslands
haldinn. Fyrr i sama mánuði, dag-
ana 7. og 14. nóvember, höfðu
fundir verið haldnir til ])ess að
undirbúa stofnun félagsins. — Á
stofnfundi voru 63 félagar skráðir,
en síðan hefir félagatalan vaxið
géysiört. Árið 1937 var félagatalan
])annig komin yfir 2100 og nú er
hún næstum því 6200. Ber þetta ljós-
an vott um þá gróandi, sem í fé-
agsstarfinu er.
Markmið félagsins er að stuðla
að auknum ferðalögum og bættri
þekkingu þjóðarinnar á landinu.
Hefir því eðlilega verið lagt mest
kapp á að vekja athygli fólksins á
fjalllendi og öræfum landsins, sem
fram á þessa öld hafa verið nokk-
urskonar ókannaðir ævintýraheim-
ar fyrir þorra landsbúa. Til þess að
auðvelda slíkar óbyggðaferðir hefir
félagið reist 7 sæluhús, þar sem
ferðalangar geta hvílst fjarri manna-
byggðum. Fyrsta sæluhúsið var
byggt í Hvítárnesi árið 1930. Hin
sæluhúsin eru á Kerlingafjöllum,
Hveravöllum, Þjófadölum, við Haga-
vatn, Snæfellsjökul og Kaldadals-
veginn.
Skemmtiferðirnar sem Ferðafélag
fslands hefir gengist fyrir, eru orðn-
ar margar, og víða liefir verið far-
ið. Væri næsta ógjörlegt að gera
þar tæmandi upptalningu, og óðum
fækkar þeim hnjúkunum, sem ei
Kristján Skat/fjörá, framkvæmdastj.
Sælahúsið i Hvilárnesi
hefir verið gengið á í ferðalögum
féiagsins, bæði löngum og stuttum.
Snar þáttur í starfsemi félagsins
fyrir auknum kynnum ])jóðarinnar
af landinu er útgáfa árbókanna.
Árbækur Ferðafélagsins eru á land-
fræðilegan mælikvarða merkisrit og
fræðandi mjög um náttúru lands-
ins og sögu. Eru nú allflestar ófá-
anlegar með öliu. Aðeins j)ær sið-
ustu hafa fengist, en upplag þeirra
mun víst fljótlega þrjóta, þvi að liver
maður vill eiga ])ær. Fyrsta árbókin
kom út árið 1928 og var héraðslýs-
Þjórsárdals í henni. Síðan hafa þær
komið út á hverju ári með liéraðs-
lýsingu nema 1939, þegar árbókin
var fuglabók.
Fyrsti forseti félagsins var Jón
Þorláksson, borgarstjóri. Siðar hafa
þeir Björn Ólafsson, stórkaupm.,
Gunnlaugur Einarsson læknir. Jón
Eyþórsson, veðurfræðingur og Gcir
G. Zoega, vegamálastjóri, verið for-
setar félagsins. Núverandi forseti er
Geir G. Zoega. Framkvæmdastjóri fé-
lagsins er Kristján Ó. Skagfjörð. Er
hann einnig gjaldkeri ])ess. Aðrir
þeir, sem stjórn félagsins skipa, eru
þessir: Pálmi Hannesson, rektor
varaforseti, og meðstjórnendur Gísli
Gestsson, bankafulltr., Guðm. Ein-
arsson frá Miðdal, Jón Eyþórsson,
veðurfræðingur, Helgi Jónasson frá
Brennu, Jóhannes Kolbeinsson, tré-
smiðúr, Lárus Oltesen, kaupm., Hall-
grímur Jónasson, kennari, og Þor-
steinn Jósepsson, blaðamaður.
Geir G. Zoec/a, forseti Ferðafél. fsl.
Fcrðafélag; í§Iand§ tuttugu ára
Hótel Ritz tekur til starfa
Nú er Hótel Rilz tekið til starfa
suður á Reykjavíkur-flugvelli í liúsa-
kynnum þeim, sem Hótel Winston
hafði áður. Hefir hótelstjórinn, Krist
ján Sigurðsson, látið lagfæra allt
innanstokks að undanförnu og prýtt
salina á smekklegan hátt. — Her-
bergi, sem leigð verða út, eru 54
með 81 rúmi. Starfsfólk er um 30,
allt nýtt. Kristján hefir numið hótel-
rekstur í 1% ár í Sviss og % ár i
Svíþjóð. Einnig hefir hann unnið að
veitingastörfum hér. Er liann korn-
ungur maður með þekka framkomu
og salarkynnin bera Ijósan vott um
snyrtimennsku hans.
Starfræksla hótelsins er bæði mið-
uð við móttöku flugfarþega, sem leið
eiga um völlinn og þjónustu i ])águ
bæjarbúa og gesta utan af landi.
Eins og Kristján sagði, ])egar liann
bauð blaðamönnum að skoða hötel-
ið, j)á er nauðsynlegl að hafa mynd-
arbrag á rekstrinum, ])vi að 40—60
manna liópur útlendinga kemur á
hótelið tvisvar í viku, og eru það einu
kynnin, sem menn þessir eiga af
landi og' þjóð. — Auk leiguherbergja
og matstofa eru stórir og snotrir sal-
ir fyrir liótclgesti og salir, sem
leigðir verða út til veisluhalda.
*****
Starfið er margt
en velliðan, alkost
og vinnuþol er háð*
þvi að fatnaðurinn
sé hagkvæmur og
traustui
VBIR
VDfyfúaHFAHAtEŒtRtÐ ÓSQ-AútDS "A HEYKJAVlK
£lzta stoétsta og iullkomnasta vorksmi&ja smnat gioinat á lslanái