Fálkinn - 22.10.1948, Page 7
FÁLKINN
7
Fuglar þvegnir. — Það kemur
oft fyrir að sjófuglar drepast,
ef þeir lenda í olíubrák á sjón-
um. Þegar olíuflutningaskip
nokkurt sökk skammt frá
strönd Englands ekki alls fyrir
löngu, lét dýraverndunarfélag í
Englandi sækja marga sjófugla,
sem voru hjálparvana í olíu-
brákinni á sjónum, og þeir voru
hreinsaðir upp úr parafíni.
Myndin er tekin við hreinsun-
Misheppnaður flótti. — Nokkrar
stálkur gerðu nýlega tilraun til
að brjótast út úr kvenfangelsi
í Englandi. Lögreglan varð
vör við flóttann og kom að
stúlkunum, þar sem þær voru
komnar upp á háan múrvegg.
Var ekki hægt að ná stúlkun-
um niður fyrr en slökkviliðs-
menn komu með stiga og sóttu
þær. Myndin sýnir slökkviliðs-
menn hjálpa einni stúlkunni
niður.
„Hannyrðadrottning“. - 1 Belgíu
þurfa stúlkurnar ekki að vera
ungar eða fagrar til þess að verða
„drottningar“ Hæfileikarnir
eru þyngri á metunum. Hér er
mynd af einni „drottningunni",
sem valin hefir verið. Hún heit-
ir Sabina Lueas og er frá
Brugge. Hún er 84 ára gömul
og þykir snjöll hannyrðakona.
Vann hún titilinn „hannyrða-
drottning“ við samkeppni i
Briígge.
Inka-gull. — Enski gimsteina-
salinn Stig Engelbert, hefir safn
að saman gullskrauti frá tímum
Inkanna í Suður-Ameriku. 'Á
myndinni sést hann með gull-
perlufesti. Ilann náði einnig í
gullbrynjur og hattnál úr gulli,
sem sennilega hefir verið í eign
Inka-drottningar fyrr á öldum.
Allir þykja gripirnir hinar
mestu gersemar og vart eiga
sinn líka.
ina.
Til vinstri:
Fasta í Israel. — Gyðingar i
Palestínu hafa haldið hina ár-
legu föstu sína til minningar
um eyðingu musterisins. Mynd-
in er af nokkrum hermönnum
við hina trúarlegu athöfn í
byrjun föstunnar.
Til Iiægri:
Eftirlætið matað. — Hin 10 ára
gamla Ellinor hefir viðbj.óð á
ormum, en þegar hún þarf að
gefa eftirlætisfuglinum sínum,
yfirvinnur hún óbeitina á orm-
unum.
Hin hættulega geislaverkun. —
Eftirlitið með vísindamönnum
þeim sem vinna við geislavirk
efni í þágu atómorkuiðnaðar-
ins, er mjög strangt, svo að þeir
„smiti“ ekki út frá sér annars
staðar. Táhettan í skóm þeirra
er máluð hvít, er þeir koma
til vinnu, svo að hægt sé að sjá,
hvort þeir hafi skipt um skó, er
þeir fara burt af hættusvæðinu.
Iðni i fangabúðum. — 1 fanga-
búðunum í Dulwich í Englandi,
þar sem hópur þýskra stríðs-
fanga hefir dvalist, hafa fang-
arnir gert sér margt til dund-
urs. Einn þeirra, fyrrverandi
steinhöggvari, hefir gert líkön
af ýmsum frægum byggingum,
og þykja þau hreinustu lista-
verk. — Hér er verið að leggja
síðustu hönd á líkan af Shake-
speare Memorial Theatre.
Járnbrautardrottning. Á hverju
ári velja enskir járnbrauta-
starfsmenn sér „drottningu",
sem ríkir í ár. Ferðast hún þá
á vegum félagsins til annarra
landa og kynnir sér félagsháttu
járnbrautastarfsmanna í öðrum
löndum. J árnbrautardrottning-
in er valin á kjötkveðjuhátíð.
Sú, sem nú ríkir, er frá Man-
chester og heitir Janet Taylor.
Hér sést hún við krýningarat-
höfnina. Borgarstjórinn í Man-
chester framkvæmir athöfnina.
An 1 beinagrind. — Það hefir
orðið verðhækkun á beinagrind
um í Englandi nýlega. Sjúkra-
húsin, rannsóknastofur og lækna
stúdentar spyrja mjög eftir
þeim. Einn stærsti seljandinn í
þessari grein er firmað Bailey
& Son í Oxford Sireet. Myndin
er af afgreiðslustörfum í versl-
uninni.