Fálkinn - 07.01.1949, Side 4
4
FÁLKINN
ANTABUS
HIÐ NÝJA MEÐAL GEGN OFDRYKKJU
I)yr Vestra-fangelsisins opnast
liægt og út um þær iæðist tötrum
klæddur maður með fátæklegan fata-
böggul undir hcndinni. Þetta er
Jens Hansen 38 ára að aldri. Hann
var að iosna úr 3 mánaða fangels-
isvist, sem liann hafði verið dæmd-
ur í vegna hjólhestaþjófnaðar — og
fyrir brot á þvi dómsorði að neyta
áfengis.
— Um stund stóð Jens Hansen
óráðinn, með glýju i augum af sól-
arbirtunni.
Hvað á nú til bragðs að taka? Á
hann að halda raklcitt heiin og reyna
enn einu sinni á þolinmæði konu
sinnar? Mundi hún taka við hon-
um og gefa honum enn eitt tæki-
færi?
Jens Hansen verður hugsað til
barnanna sinna. Já, liversu oft hef-
ir ekki liugur lians dvalið hjá þeim
þessa þrengingarmánuði.
Hann minnist Kaj, duglega drengs-
ins sins, Karenar, sem að sumar-
fríinu ioknu á að hefja skólagöngu
sina í fyrsta sinn og kæru litlu
íngu, sem aðeins var byrjuð að
vappa um það leyti, sem faðir
hennar „átti að fara inn.“ Mundi
ekki blessað barnið fagna ])ví að
að sjá hann aftur.
Osjálfrátt þreifar hann í vasa
sinn. Jú, þær eru þarna þessar fáu
krónur, sem hann hafði sparað sam-
an í fangelsinu. Hann hafði fyrir
löngu ráðið það við sig hvað hann
ætlaði að gera við þessar krónur.
Hann ætlaði að verja þeim í gjafir
handa konu sinni og börnum, og
hann hafði einnig ákveðið hvað
hvert þeirra skyldi fá.
Hann skyldi vissulega sýna þeim
öllum að nú væri hann ákveðinn í
að hefja nýtt starfsamt liferni — án
áfengis. Því að það var einmitt á-
fengið sem var orsök ógæfu lians.
Aðeins öriitil ídreypa - en liann
gat ekki hætt. Það báj var kveikt,
sem hann gat ekki slökkt. Og það
sem ömurlegra var, að þegar hann
var kominn á vald Bacchusi greip
iiann Önnur ástríða lieljartökum, það
var stelsýkin.
Hvað eftir annað varð hann að
feta hinn þungbæra og erfiða veg,
inn fyrir fangelsismúrana, vegna
smáþjófnaðar, götuóspekta eða
brota á því dómsorði að neyta ekki
áfengis.
Bæði með þvingun og af frjálsum
viija, hafði liann reynt margvísleg-
ar læknisaðgerðir, en án árangurs.
Síðastliðið ár var honum sleppt af
drykkjumannahæli eftir 22 mánaða
dvöl þar. Þrem dögum síðar rakst
'lögreglan á hann dauðadrukkinn á
húströppum nokkrum.
Ósjálfrátt verður honum i huga
sínum litið til baka — til liðinna ævi-
stunda. Einu sinni var hann þrótt-
mikill og glaður iðnaðarsveinn, með
lífið bjart og fagurt blasandi við
sér. Þá var liann heiðarlegur, djarf-
ur og duglegúr -— eftirsóttur starfs-
maður. En svo skall ógæfan yfir,
liann byrjaði að drekka. Þó liann
sé ekki nema 38 ára gamall, er saga
lians þó vitni ömurlegs og nær lát-
lausra vonbrigða. Sorgmæddir aldr-
aðir foreldrar sjá efnilegan son
„fara í hundana" án þess að fá
rönd við reyst. Heimili hans, þar
sem áður ríkti friður og farsæld,
er í algjörri upplausn. Ástrík eigin-
kona hans er lostin örvæntingu og
sér ekkert framundan nema upp-
gjöf, og lítil saklaus barnsaugu
skynja æ betur vaxandi niðurlæging
ástkærs föður.
Aðeins 38 ára — þó svipar lion-
um meira til aldraðs manns. Augun
sem eitt sinn glömpuðu og tindr-
uðu — hafa misst fjör sitt. .Bitur •—
táldreginn með slapandi andlits-
drætli liins örþjáða drykkjumanns,
stendur hann niðurlíitur og óákveð-
inn fyrir dyrum fangelsisins. Á
hann að fara heirn til konu og
barna? Já, já — hann vill það —
auðvitað. — Það er réttast. Og það
gerir hann ákveðinn. — Þó •—• það
er nú langt síðan að hann hefir
bragðað ölsopa. Hann gæti nú lagt
leið sína fram hjá „Gyllta ljóninu“
og fengið sér einn bajer hjá Ósk-
ari! En aðeins einn — einasta —
og svo beint heim.
— Sama kvöldið finnur svo hinn
72 ára gamli faðir, son sinn ofur-
ölvi í hliðargötu fyrir utan knæpu
eina.
— Þetta sem hér hefir verið sagt,
átti sér stað fyrir hálfu ári síðan. —
Eftir öllum sólarmerkjum að dæma
— og samkvæmt fyrri reynslu hlyti
Jens Hansen að hafa verið hneppt-
ur í fangelsi á ný eða komið fyrir
á drykkjumannaheimili — en svo
<‘r ekki. Heldur liið gagnstæða. Hinn,
að því er virtist vonlausi drykkju-
maður Jens Hansen, hefir á ný öðl-
ast hið létta skaplyndi sitt og sjálfs-
traust. Hann er í raun og sannleika
snúinn aftur til lífsins. Hann hefir
fengið góða atvinnu, sem Iiann
stundar af mikilli árvekni, fjölskylda
hans er hamingjusöm og heimili
hans risið úr rústum áfengisniður-
lægingarinnar.
En hvernig mátti þetta ske? Hver
var ástæða þess að þessi króniski
drykkjumaður fær fulla bót. Hvaða
kraftaverk hafði átt sér stað Þann-
ig mun lesandinn án efa spyrja, og
vissulega á sú spurning rétt á sér.
Jens Hansen drekkur ekki lengur.
Hann hefir enga löngun i áfcnga
drykki; það eru þegar liðnir um
(i mánuðir síðan hann bragðaði á-
fengi. Ójú annars — samkvæmt
læknisráði hefir hannn reynt það
í tvö eða þrjú skipti. En hann hefir
ógeð á því.
Fyrir hálfu ári, skömmu eftir að
hann var látinn laus, varð liann svo
heppinn, að fá tækifæri lil að verða
,,lilraunadýr“ hjá dr. O. Martensen-
Larsen, geðveikralækni, sem þá í
nokkrá mánuði hafði verið að gera
tilraunir, í leyni þó, með nýtt með-
al, sem af tilviljun hafði verið upp-
götvað i rannsóknarstofu danskrar
lyfjaverksmiðju. Lyf þetta, sem var
í pilluformi — líkt og algengar
„höfuðverkjapillur“ átti sinn þátt í
að reisa Jens Hansen við aftur og
gera hann að sómakærum atorku-
manni á ný, ásamt siðferðilegri að-
stoð fjölskyldu- hans og umönnun
læknisins. Tilraunir margra ára, sem
allar höfðu farið út um þúfur, til
að hjálpa honum heppnuðust nú
fyrir kraft þessa undrameðals, á
tæpri viku. Eg vildi að sem fiestir
hefðu tækifæri til að tala við þenn-
an mann í dag’ •— tala við liann og
fjölskyldu lians, liina aldurhnignu
foreldra lians, konu lians og börn.
Hamingjusamari fjölskyldu mynd-
urðu vart fyrir hitta, því að hér er
um að ræða fjölskyldu, sem eftir
áratuga vonbrigði, hefir á næsta
undursamlegan átt, endurheimt trúna
á lífið og framtíðina.
Dr. Martensen-Larsen hefir fram að
þessum tima haft um 300 sjúklinga
þessarar tegundar, undir liöndum
— og notað við þá „Antabus“ („anti“
= gegn, „abusus" = misnotkun) og
um 70% þessara sjúklinga hafa ýmist
hlotið algjöran bata eða mjög mikla
bót.
Það væri freistandi að kynna
ýms dæmi í þessu sambandi — því
að af miklu er að taka — eu aðeins
tvö skulu nefnd.
Eiginkona kaupmanns nokkurs úti
á landi, 30 ára að aldri, móðir 2
barna, liafði komist upp á það að
verða þátttakandi í kvennamiðdög-
um, þar sem áfengið var ekki spar-
að, Þar komst kona þessi á bragð-
ið. Samkomur þessar með krásum
sinum og venjum urðu lienni, smám-
saman ekki nög, hún fór að neyta
áfengis seinni hlula dags og á kvöld-
in. Að nokkrum árum liðnum var
hún farin að neyta 10—15 vín-
staupa á dag, og auðvitað kom þessi
áfengisnautn hennar niður á heim-
ilinu, bitnaði á því, í auknu hirðu-
leysi og vanstjórn.
Maður liennar gat illa sætt sig við
þetta, eða þá liitt að kona lians fékk
livað eftir annað vinnukonunni börn
þeirra í liendur og sagði lienni að
gæta þeirra, meðan hún sjálf, ým-
ist var í kvennahófunum og undi
þar við mat og drykk, eða sat lieima
í hægindastól ofuröivi. Þannig kom
maður hennar að henni livað eftir
annað, er hann kom lieim frá vinnu.
Þegar maðurinn óskaði l)ess, að
hún reyndi hina nýju lækningaað-
ferð um meðhöndlun áfengissjúkl-
inga, var hún þvi í fyrstu mjög
andvíg. Hún gat illa sætt sig við að
verða af þeirri ánægju að neyta
„lítilsháttar“ áfengis, og þeirrar
gleði sem hún taldi því vera samfara.
En hún sér nú. þrátt fyrir það,
ekki eftir því, í dag er hún ham-
ingjusöm móðir og húsmóðir á
heimili, þar sem gleði og sæla rik-
ir. Hún lýsir því yfir nú, 9 mán-
um eftir aðgerðina, að sig þjái eng-
in minnsta löngun í áfengi. Og i
stað kvennahófanna með stríðum á-
fengisstraumi, sem áður fyrr voru
hennar aðalhugðarefni hfefir hún nú
eignast ýmiskonar önnur áhugamál,
en af áhugamálum hennar nú, ber
samt Iiæst heimili hennar og börn.
— Síðara dæmið, sem ég vil
nefna, er af 50 ára gömlum um-
boðssala. Þessi umboðssali átti við
fjárhagslega erfiðleika að etja fyrir
nokkrum árum siðan - þá tók Iiann
það ráð, sem ýnisum verður á að
grípa til þegar erfiðleikar steðja
að, að „hressa“ taugarnar við með
áfengisneýslu. En það er eins og
máltækið segir: Fyrst tekur maður-
inn eitt staup, svo tekur staupið
annað staup og loks tekur staupið
manninn. Svo íór hér. Áfengisneysla
umboðssalans jókst og varð honum
næsta óviðráðanleg ástríða. Og þegar
hann kom til dr. M. Larsen var
hann á góðri ieið með að verða
króniskur drykkjumaður.
Meðan á læknisaðgerðum stóð var
haun ekki alítaf sem ábyggilegastur.
Hann laug að lækninum. Tók ekki
pillur sinar inn reglulega, gat þess-
vegna drukkið í laumi. Þrátt fyrir
þessa erfiðleika tókst lækninum að
Ijúka nauðsynlegum aðgerðum gagn-
vart honum, svo að sex viknum
loknum var löngun hans í áfengi
horfin. Siðan eru liðnir 8 mánuðir
og hann hefir staðið sig með prýði.
Af þeirri reynslu, sem þegar er
fengin, er ekki annað sjáanlegt en
Antabus-aðgerðir gegn áfengissýk-
inni, muni fara sigurför um mann-
heim, og valda gjörbyltingu i jneð-
ferð áfengissjúklinga. En ef mað-
ur vill vera hreinskilinn -—, befir
lækning slíkra fram að þessu oftast
verið vonlítil — eða að minhsta
kosti bæði langvinn og kostnaðar-
söm fyrir sjúklingana og þjóðfélag-
ið i heild.
Uppgötvun „Antabus" skeði af
einskærri tilviljun.
Forstjórinn fyrir efnárannsóknar-
deild hinnar víðkunnu dönsku lyfja-
yerksmiðju „Medicialco" dr. med.
Erik Jákobsen, var ásamt aðstoðar-
manni sinum dr. pharm. Jens Hald
að vinna að rannsóknum á efni,
sem heitir „tetra-ælyl-Hurmadisulfið"
bversu mikilfengt það væri gegn
onnum.
Báðir þessir menn eru í hópi
hinna snjöílustu visindamanna á
sviði lifefnafræðinnár, og þeir hafa
sett fram ýmsar snjallar lífefna-
fræðilegar hugmyndir, og út frá
þeiin hugmyndum látið sér detta
í hug að nota efni ]>að er þeir voru
að rannsaka, gegn innvortis orma-
sýki, en fram að þessu hafði það ver-
ið notað útvortis, gegn kláða og út-
brotuni.
Um langan tima reyndu þeir efni
þetta á kanínum, og það kom i Ijós
að hugmynd þeirra reyiidist rétt.
Nú var aðeins eftir að reyna þetta
við menn. Innan sviga sagt, urðu
þeir fyrir vonbrigðum, ])vi gagnvart
mönnum varð þetta cfni áhrifalaust
að því er tók til innvortis ormasýki,
en slík vonbrigði sem ])essi, koma
ofl og iðulega fyrir þá, sem vinna að
rannsókn ýmissa lyfja. En áður en