Fálkinn - 07.01.1949, Page 7
FÁLKINN
7
Barnaheimsókn í Chaillot-
höllina.
Áður en þingi Sameinuðu þj.óð-
anna í París lauk, var hóp af
börnum frá ýmsum þjóðum
boðið að skoða Chaillot-höll-
ina. Hér sjást nokkur af börn-
unum við forsetasætið ásamt
frú Röosevelt og dr. Charles
Malik, fulltrúa Libanons, sem
skýrir þeim frá, hvernig fund-
um sé stjórnað. Lítil stúlka hef-
ir þrifið hamarinn, augsýni-
lega reiðubúin til að taka við
hinni vandasömu stöðu.
★
Philip hertogi á slysstaðnum.
Philip hertogi kom nýlega i op-
inbera heimsókn til Hull. Höfðu
veglegar veislur og mikil há-
tíðahöld verið undirbúin til
heiðurs honum. En að eigin ósk
lians var öllu þessu sleppt, því
að gífurleg sprenging hafði orð-
ið í kakaóverksmiðju i borg-
inni örstuttu áður og nokkrir
menn beðið bana. Kaus hann
heldur að horfa á starf slökkvi-
liðsins, sem stóð í stríðu vegna
bruna af völdum sprengingar-
innar, og myndin er tekin við
það tækifæri. X-ið sýnir, hvar
hertoginn stendur.
★
Hvaða stork skal velja?
Elizabetli prinsessa hefir tofað
að taka á móti skírnartertu frá
„Universal Cookery and Food
Association“, og ungar stúlkur
úr klúbbnum „The Three Wise
Monkeys“ í London eiga að búa
til „toppfígúruna“ á tertuna.
Það á að vera storlcur. Hér sjást
ungu stúlkurnar vetta vöngum
yfir því, hver storkurinn sé
heppilegastur til að prýða hina
miklu tertu.
.......... .*■