Fálkinn - 20.05.1949, Side 7
FÁLKINN
7
Brúðurin labbaði til kirkjunnar og frá. — Þið sjáið hana hérna. Hún hét Bethia Burrows í
ungmeyjarstandinu og er nú gift dátanum sem leiðir liana, Leslie Stevens. Frú Stevens er
dóttir eins varðmannsins í Tower-kastala í London, og af því að hún átti heima aðeins fáein
skref frá kastalakirkjunni fannst henni ekki ástæða til að aka þangað í vagni. Og fyrir bragðið
varð auðveldara að komast að því að Ijósmynda hana í skrúðanum.
Garry Davis „heimsborgari nr.
1“, sem auglýsti sig sem best á
UNO-þinginu í París, hefir nú
sótt um leyfi til að mega koma
til Hollands til þess að tala þar
fyrir hugsjónum sínum um alls-
herjarríkið.
ÍFtburðir. — 1 París tíðkast það
ennþá að nýfædd börn eru lögð
við liúsdyr eða ganga af mæðr-
um sínum, í þeirri von að ein-
hver miskunnsamur Samverji
taki þau að sér. — Hér sést
kona, sem fundið hefir eitt af
þessum börnum.
Stærsta dómkirkja Englands. — Fyrir 45 árum hófst bygging dómkirkjunnar í Liverpool.
Byggingunni er eklci lokið ennþá, en þó svo langt komið að hægt hefir verið að opna kirkj-
una. Var það gert í sambandi við heimsókn Elísabetar prinsessu og hertogans af Edinburgh
til Liverpool. Hér sést 13 ára kórdrengur falla á hné meðan hann réttir prinsessunni kirkju
lykilinn.
Til vinstri:
Hörmungin í Effingham. —
Þessi mynd er af hinum hræði-
lega eldsvoða í St. Anthony-
spítalanum í Effingham í Illi-
nois, þar sem um 50 sjúklingar
brunnu inni, þar á meðal 12
nýfædd börn. Slökkviliðsmenn-
irnir sjást vera að fara með eitt
líkið niður stigann.
Til hægri:
Málari með regnhlíf. — Auðvit-
að geta verið umhleypingar í
Amsterdam, en málarinn þarna
hefir liugsað sér að láta veðr-
áttuna ekki leggja verkbann á
sig og hefir því haft með sér
trausta regnhlíf.