Fálkinn


Fálkinn - 20.05.1949, Page 7

Fálkinn - 20.05.1949, Page 7
FÁLKINN 7 Brúðurin labbaði til kirkjunnar og frá. — Þið sjáið hana hérna. Hún hét Bethia Burrows í ungmeyjarstandinu og er nú gift dátanum sem leiðir liana, Leslie Stevens. Frú Stevens er dóttir eins varðmannsins í Tower-kastala í London, og af því að hún átti heima aðeins fáein skref frá kastalakirkjunni fannst henni ekki ástæða til að aka þangað í vagni. Og fyrir bragðið varð auðveldara að komast að því að Ijósmynda hana í skrúðanum. Garry Davis „heimsborgari nr. 1“, sem auglýsti sig sem best á UNO-þinginu í París, hefir nú sótt um leyfi til að mega koma til Hollands til þess að tala þar fyrir hugsjónum sínum um alls- herjarríkið. ÍFtburðir. — 1 París tíðkast það ennþá að nýfædd börn eru lögð við liúsdyr eða ganga af mæðr- um sínum, í þeirri von að ein- hver miskunnsamur Samverji taki þau að sér. — Hér sést kona, sem fundið hefir eitt af þessum börnum. Stærsta dómkirkja Englands. — Fyrir 45 árum hófst bygging dómkirkjunnar í Liverpool. Byggingunni er eklci lokið ennþá, en þó svo langt komið að hægt hefir verið að opna kirkj- una. Var það gert í sambandi við heimsókn Elísabetar prinsessu og hertogans af Edinburgh til Liverpool. Hér sést 13 ára kórdrengur falla á hné meðan hann réttir prinsessunni kirkju lykilinn. Til vinstri: Hörmungin í Effingham. — Þessi mynd er af hinum hræði- lega eldsvoða í St. Anthony- spítalanum í Effingham í Illi- nois, þar sem um 50 sjúklingar brunnu inni, þar á meðal 12 nýfædd börn. Slökkviliðsmenn- irnir sjást vera að fara með eitt líkið niður stigann. Til hægri: Málari með regnhlíf. — Auðvit- að geta verið umhleypingar í Amsterdam, en málarinn þarna hefir liugsað sér að láta veðr- áttuna ekki leggja verkbann á sig og hefir því haft með sér trausta regnhlíf.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.