Fálkinn


Fálkinn - 26.08.1949, Síða 5

Fálkinn - 26.08.1949, Síða 5
FÁLKINN 5 En nú ætla ég að segja frá því, er ég sá Gröndal hið fyrsta sinn. Og var hann þá, að sjá i besta s'kapi. Það var eitt sinn þennan vetur nokkru fyrir jól, að mér var boðið á sjónleik, sem sýndur var í Iðnó í Reykjavik. Þegar inn í anddyri hússins kom, varð mér starsýnt á tvo menn, er stóðu þar nokkuð af- síðis. Annar var fremur hár vexti, og að því skapi gildur, dálitið lot- inn í lierðum, með feitt andlit, og mikið úfið hár. Hinn var lágur vexti og fremur pervisalegur. Andlitið var nokkuð langt og dálítið slapandi, og Jiárið að framan greitt beint upp, og stóð þannig lóðrétt eins og skemmuburst. íitærðarmunur þess- ara manna var svo mikill, að hinn minni varð að lita nálega beint upp í loftið til þess að sjá framan í hinn. Og gjörði það liann enn einkenni- legri ásýndum. En andlit þessa iitla manns var eitt ljómandi bros, og leiftrandi fjör og glettni skinu úr augum hans. Hinn var lika að sjá í skinandi skapi, en nokkuð þyngra yfir honum. Samtal þeirra hlaut að vera blandað gáska og fyndni. En hverjir voru þessir menn, svona gagnólíkir ásýndum, en þó svo inni- lega samglaðir, að minnsta kosti á þessari stundu. Enginn þeirra, sem með mér voru, gat sagt mér það. En seinna um kvöldið fékk ég að vita, að sá minni var Benedikt skáld Gröndai, en Iiinn stærri Þorsteinn Gíslason skáld. Kvæði beggja þess- ara skálda hafði ég iesið með hrifn- ingu og aðdáun. Og þótti nú mikill fengur í, að hafa þá angum litið. Eg kom oft á heiniili Ögmundar utan kennslústunda, og var þar nokkuð kunnugur. Kona Ögmundar var Guðrún Sveinsdóttir, prests Skúiasonar, á Staðarbakka. Hlýleg og indæl kona, sem bar með sér góðvild og göfgi, í ásýnd og fram- komu. En kynni okkar urðu skamm- vinn, því að hún dó þennan vetur á gamiaársdag. Og fylgdi henni nálega allur Hafnarfjörður til grafar að Görðum. Tók þá við stjórn á lieimilinu frk. Margrét, systir frú Guðrúnar sálugu. Og annaðist hún heimilið og börnin með slikri snilld, að til var tekið. Frk. Margrét kom frá Ameríku þetta haust, og vorum við samskipa frá Reykjavík lil Hafnar- fjarðar. Kynntist ég frk. Margréti dálitið, þar sem ég var svo tíður gestur á heimilinu, og fannst mér hún mjög geðfelld kona. En hún átti það sameiginlegt með nokkr- um þeim geðfelldustu konum, er ég hefið kynnst um dagana, að hún var fremur ófríð. Og hin sama varð reyndin á með hana og liinar, að i augum mínum varð andlit hennar brátt frítt við kynningu hinnar fögru sálar, er það speglaði. Þennan vetur las ég mikið af skáldritum, þvi að nú gat ég fengið nóg af læss konar bókum að láni af bókasafni skólans. t Steinnesi hafði ég eignast „Þyrna“ eftir Þor- stein Erlingsson, en ekki liafði ég haft tíma til að lesa þá með at- hygli. En nú tók ég til þeirra fyrir alvöru. Og það svo rækilega, að ég lærði Þyrna utanað, nálega alla. Og enginn hafði opnað mér dýrðarheim skáldanna eins yndislega og Þor- steinn. Því hefir hann alla tíð verið uppáhalds skáldið mitt. Þannig liðu þessir vetrarmánuðir. Fyrir mér voru þeir tímabil frelsis og ánægju inn á við, en viðburða- snauðir hið ytra. En ætti ég að greina frá því, hvernig mér féll landslag Ilafnar- farðar í geð liefi ég þar liinar bestu áhrifa að minnast. Reyndar er það nú svo, að á vetrum nýtur maður lítils af fegurð og gæðum liinnar ytri náttúru landsins. En það vildi svo vel til, að á útmánuðunum um veturinn, var á tímabili mesta blíð- skaparveður, nálega sem um há- sumar væri, aðefns gröðurinn vant- aði. Það mætti nú ætla, við fyrstu kynningu Hafnarfjarðar, að hér væri um litla náttúrufegurð að ræða. þar sem landsýn virðist jiar næsta lítil, og hraunið ekki beint aðlað- andi. En við nánari kynningu verð- ur allt annað upp á teningnum. í góðu veðri er það fyrst sjórinn, svo sléttur og aðlaðandi vinalegur þarna við ströndina, sem dregur mann að sér. Og gangi maður upp á Hamar- inn, er þaðan víðáttumikið útsýni allt um kring. Og þá liggur bærinn í allri sinni friðsæld útbreiddur fyr- ir sjónum manns. Og þar nýtur maður í fullum mæli hins yndislega hafs, svo langt, sem augað eygir. Þaðan sér maður líka yfir hið víð- áttumikla liraun, hrikalegt að gerð, og í margs konar litbrigðum. Og í hrauni jjessu mátti að sögn, finna mörg óviðjafnanaleg elskenda- skjól. Þarna sem hraunveggir hylja, sól nær að ylja, en vindur ekki að blása. — En þetta síðastnefnda mætti kannski fremur telja til hinna hagkvæmu kosta Hafnarfjarðar. En það er — eða var — sæla frið- arins yfir Hafnarfirði, sem mér fannst hafa hin bestu og dýpstu áhrif á mig.“ y. s. v. Fífldirfska. — 21 árs gamall Frakki vakti mikla athygli á sér i París ný- lega. Hann klifraði upp í 30 metra háan obeliska við Concorde-torgið og sat þar með rcgnhlíf i (i klukkustund- ir samfleytt. Hann tókst þetta djarf- ræði á hendur til þess að láta kvik- mynda sig í auglýsingaskyni. Er kvik- myndatakan var búin, vildi liann ekki fara niður aftur. Lögreglan átti i miklu stauti við að ná honum, en heppnaðist j)að loks með stórum brunastiga. Hann: „Drottinn minn — lield- urðu að ég sé gerður úr peningum?“ Hún: „Eg vildi óska að þú værir það. Þá gæti ég fengið þér skipt.“ Stjörnulestur Eftir Jón Árnason prentara Nýtt lnngl 24. áf/úst 1949. A Iþjóðayfirlit. Jarðarmerkin eru yfirgnæfandi i áhrifum og bendir það á hyggindi, sem liggja á bak við framkvæmd- irnar og aðalmerkin eru einnig yf- irgnæfandi í áhrifum, svo að fram- kvæmdaþrek er mikið og áróður mikill bak við tjöldin, sem birtist í ákveðnum athöfnum. Lundúnir. — Nýja tunglið er i 1. húsi. Þetta bendir á breytingar nokkrar meðal almennings, en af- stöðurnar eru vafasamar, þvi að góð áhrif og slæm vega salt. Góð álirif munu koma frá þinginu og ályktun- um ráðandi manna. — Satúrn og Merkúr i 2. húsi. Tafir og örðugleik- ar nokkrir munu í fjármálum og bankastarfsemi. En þó er líklegt að Merkúrsafstaðan dragi eitthvað úr, þvi að liann hefir góðar af- stöður og sterkar. Hyggindi koma til greina i meðferð þessara mála. — Venus og Neptún i 3. húsi. Hafa slæmar afstöður. örðugleikum má húast við í umferðamálum og sak- næm verk gætu komið til greina. Ahrifin koma að nokkru frá aðgerð- um þingsins. — Júpiter i (i. húsi. Þetta ætti að boða góða afstöðu fyrir verkamenn og þjóna, einnig þá, sem cru að einhverju leyti i þjónustu hins opinbera, kirkjunnar manna, kennarar og fræðara. •—Plútó er við austursjóndeildarhring og bendir á óheillavænleg áhrif meðal almennings. Berlín. — Nýja tunglið er á aust- ursjóndeildarhringnum. Allt, sem telst afstöðu almennings, er mjög á dagskrá og veltur á ýmsu. Áhrif- in að sumu leyti atlnigaverð. -— Merkúr í 2. húsi. Bendir á góða af- slöðu í fjárhagsmálum. Peningaveltan eykst og mikið verður rætt um þau mál. •— Mars og Úran i 11. húsi. Afstaða þessi bendir á örðugleika i löggjöf og þingstörfum. Lögleysur munu koma i ljós í ýmsum greinum og áróður rekinn gegn ráðendum. Júpiter í 5. húsi. Skemmtanalif og leiklistarstörf munu undir fremur góðum áhrifum og fræðsla barna munu hafa fremur góða afstöðu. Moskóoa. — Nýja tunglið er i 12. húsi. Afstaða þessi bendir á örðug- leika í sambandi við vinnuhæli, betrunarhús og fangabúðir, spítala og góðgerðarstarfsemi ýmiss konar. Satúrn hefir hér einnig slæm á- hrif og saknæm verk verða kunn í því sambandi og fjárhagsörðugleik- ar sýnilegir. Venus og Neptún í 2. liúsi. Hafa slæm áhrif á fjárhagsá- slandið og bankastarfsemin háð örð- ugleikum og útgjöld vaxa og koma áhrif þessi frá ráðendunum og til- (ektum þéirra. •— Úran í 10. húsi. Þetta er alvarleg afstaða fyrir ráðendurna og óvænt atvik koma í Ijós, sem þeir eru ekki viðbúnir. — Mars í 11. luisi. Mjög slæm afstaða fyrir æðsla ráðið og starfsemi þess. Júpíter i 5. húsi. Ætti að hafa lyft- andi áhrif á leikhús, leiklist og barnafræðslu. Tokyó. — Nýja tunglið er í 9. lnisi, ásamt Plútó og Satúrn. Þetta er ekki heppileg afstaða. Utanríkis- siglingar og viðskipti munu mjög á dagskrá og eru örðugleikar sýni- legir i þeim málum, tafir og afleið- ingar fjárliagsörðugleika. — Merk- úr er i 10. liúsi. Hefir góðar afstöð- ur. Þetta tryggir afstöðu ráðendanna og gerir þá stöðugri i sessi. •— Júpít- er i öðru húsi. Þetta ætti að vera sæmileg astaða fyrir peningaversl- un og verðbréfakaup og tekjur hins opinbera ættu að vaxa fyrir atbeina ráðendanna, en utanlandssiglingar munu þó takmarka þetta að ein- hverju leyti. — Dánartala mun stíga að mun. 'Washinglon. — Nýja tunglið er i 4. húsi. — Þetta er ekki heppileg' afstaða fyrir landbúnaðinn. And- staða stjórnarinnar mun ef til vill færast í aukana. Úran er i 1. húsi. Slæm áhrif á almenning og misgerð- ir geta koinið í ljós. Mars i 2. húsi. Ekki heppileg afstaða fyrir peninga- verslun og fjárliagsmálin yfir höfuð. Útgjöld vaxa. Merkúr í 5. liúsi. Góð aðstaða fyrir leikhús og leik- listarstörf og leikara. Barnafræðsla undir góðum áhrifum. — Júpíter i 8. húsi. Bendir á dauðsföll meðal háttsettra manna. ÍSLAND. 2. hiis. — Nýja tunglið er i húsi þessu. — Það er álitamál að hve miklu leyti áhrif þessi koma til greina. Þó má búast við örðugleik- um nokkrum í fjárhagsmálunum og útgjöld munu stíga, en tekjur minnka, því að Satúrn er hér sterkur í áhrif- um, dregur úr og tefur fyrir fram- kvæmdum. 1. hús. — Plútó er i húsi þessu. — - Afstaða þessi er ekki álitleg. Sakæmir verknaðir gætu átt sér stað og vcrða heyrinkunnir, sem nú eru utan vitundar manna. 3. htis. — Satúrn er í liúsi þessu. Hefir hann takmarkandi áhrif á flutninga og ferðalög í landinu og tefur fyrir framkvæmdum. Þó liefir Merkúr hér nokkur bætandi áhrif, sem eru meðverkandi. 4. hús. — Neptún er í húsi þessu. — Hefir slæm áhrif á landhúnað- inn og afkornu bænda. Örðug afstaða gagnvart stjórninni. 5. hús. — Júpíter ræður húsi þessu. — Leikhús og leikstarfsemi ætti að vera undir sæmilegum áhrifum. Einnig barnafræðsla og skólastarf- semi. 6. hús. — Júpíter er í húsi þessu. — Afstaða verkamanna ætti að vera góð, einkum vegna góðrar og sterkr- ar afstöðu Merkúrs. En þó gæli slæm afstaða Satúrns orsakað hindranir, einkurn í sambandi við flutninga. 7. hús. — Satúrn ræður liúsi þessu. — Þetta er athugaverð afstaða í ut- anrí kismálum. Tafir og hindranir geta komið til greina i viðskiptum við aðrar þjóðir. 8. hús. — Satúrn ræður húsi þessu. — Ekki er liklegt að ríkið eignist fé að erfðum i þessu sambandi. 9. hús—Júpiter ræður liúsi jiessu. — Utanrikissiglingar ættu að vera undir góðum áhrifum og lialdasl nokkurn veginn í sæmilegu horfi. 10. hús. — Mars ræður húsi þessu. — Þetta er ekki heppileg afstaða fyrir stjórnina og á hún í miklum örðugleikum. Óvænt atvik geta kom- ið til greina. Andstaða frá verka- mönnum óliagstæð og tafir gera henni örðugt fyrir. Frh. á bts. 14.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.