Fálkinn - 16.11.1951, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Leikfélag Reykjavíkur:
„Dorothy eignast son“
ÞaÖ er tíf i tuskunum í gamanleiknum „Dorothy eignast son“, eins og
þessi mgnd ber meö sér. Ih'in er af Tong Rigi og Mgrtle.
r
Einar• Pálsson sem Tong Rige.
Erna Sigurleifsdóltir sem Mgrtle og Einar Pálsson sem Tong.
Fyrsta verkefni Leikfélags Reykja-
víkur á þessu ári er gamanleikur-
inn Dorothy eignast son. Höfundur
þess, Roger MacDougall, er skoskur
að ætt. Hefir liann samið nokkur
leikrit á undan þessu, cn frægð
hlaut hann fyrst i fyrra, þegar „Dor-
otliy“ liiaut sérstaklega góðar við-
tölcur í London. Hefir það verið sýnt
yfir 300 sinnum þar í borg siðan
í nóvcmber í fyrra. Hefir höfundin-
um nú verið skipað á bekk með
hestu gamanleikritahöfundum Breta
og leikritið komist i safn „bestu
leikrita ársins.“
„Dorothy eignast son“ er bráð-
skemmtilegt og fyndið leikrit, og
jafn stígandi er í því, þannig að
síðasti þátturinn er einna skemmti-
legastur.
Leikurinn er borinn uppi af þrem
ur hlutverkum, Tony Rigi, sem Ein-
ar Pálsson leikur, Dorothy Rigi, sem
Minna Breiðfjörð Thorberg leikur,
og Myrtlc, sem Erna Sigurleifsdóttir
leikur. Dorothy Rigi sést aldrei á
sviðinu, en þeim mun meira heyr-
ist í henni. Á öllum þessum hlut-
verkum er mjög skemmtilega haldið.
Með lítil hlutverk fara Árni
Tryggvason, Guðjón Einarsson, Gunn
ar Bjarnason og Margrét Magnús-
dóttir. Auk þess heyrast simaraddir.
— Leikurinn gerist í sveitaþorpi i
Englandi i og er i tveimur þáttum
(fimm atriðum).
Leikstjóri er Rúrik Haraldsson,
en Einar Pálsson hefir snúið leik-
ritinu á islensku.
105 ára.
Ameríska listakonan Adelaide John-
son, sem varð fræg fyrir „suffragettu"
styttuna í Capitolium í Wasliington,
varð nýlega 105 ára. Haldið var upp á
afmælið með veislu við stytluna. Á
myndinni sést Rauða kross systir
hjálpa afmælisbarninu að skera af-
mælistertuna.
Frægt skegg hverfur.
Myndin er tekin á liinu sögulega
augnabliki, þegar eitt frægasta skegg
heimsins fellur fyrir rakvélinni.
Það er kvikmyndaleikarinn Adolph
Menjou, sem hefir borið það í 40 át-,
en nú varð það að hverfa, því að leik-
arinn á að koma slcegglaus fram i
kvikmynd. Menjou þótti fyrir þessu,
en það er huggun fyrir hann, að
kvikmyndafélagið greiðir honum 10
þúsund dollara í skaðabætur og liann
fær gerviskegg til þess að ganga með
á götum úti.
Hún skrifaði kónginum.
George Bretakonungur fékk bréf frá
þessari 8 ára gömlu skólatelpu, meðan
hann lá allþungt haldinn. Hún lieitir
Jill Stebbings og sami skurðlæknirinn
og skar konunginn upp liefir einnig
tekið liluta af öðru lunganu i henni.
Bréfið var svona: Kæri konungur!
Mér þykir leiðinlegt að heyra, að þú
sért veikur. Eg vona, að þér batni
fljótlega. Pabbi liefir sagt mér, að
hcrra Prince sé einn af læknum þin-
um og þess vegna skrifa ég þér til
þess að segja þér, að þú skulir vera
hughraustur, þvi að hann hefir fram-
kvæmt mikinn lungnauppskurð á mér.
Nú er ég hraust og heilbrigð. Hann
er góður og duglcgur maður. Kær
kveðja. Jill Stebbings.