Fálkinn - 16.11.1951, Blaðsíða 6
6
FÁLKINN
22
HVAR ER EVA?
Framhaldssaga eftir H. COURTHS-MAHLER.
1 Las Vegas í Nevada hafa Banda-
ríkjamenn nú í fyrsta sinn reynt
atómsyrengjur við heræfingar. —
Hér sést hluti af herdeild horfa á
þegar atómsprengja springur.
Donald Olsen, 15 ára, var viður-
kenndur besti blaðasalinn í öllum
Bandaríkjunum vestanverðum, og
fyrir það fékk hann ókeypis far
kringum linöttinn, en það fylgdi
með að hann átti að afhenda ýms-
um frægum mönnum blað á leið-
inni. Hér afhendir hann borgar-
stjóranum í London blaðið.
„Eg lield að þetta sé líka heppi-
lega gert af þér, Dolly mín. Eg óska
þér hjartanlega til hamingju. Hjá
Aage verður þú i góðum höndum,
veit ég. Má ég taka í höndina á
þér Aage! En nú tölum við ekki
frekar um þetta, fyrr en viS erum
orðin ein. Þú kemur svo með okk-
ur hcim, Aage, er það ekki?“
Litlu síðar lcvöddu systkinin og
Aage Torring. Það var reynt að
fá þau til að vera eitthvað lengur,
en það tókst ekki.
Aage og Dolly sátu hlið við hlið
í bifreiðinni og héldust í hendur. Ib
horfði á þau angurblíður á svip. Nú
mundi systir hans bráðum yfirgefa
hann og liann yrði að þoka úr
fyrsta sessinum í lífi hennar. Bitr-
ar og kveljandi tilfinningar læddust
inn í huga hans.
Eva var komin til Parísar með
hinum fræga föður sínum, og nú
byrjað nýtt lif fyrir liana. Faðir
hennar lét sér mjög annt um, að
hún væri jafnan klædd sem tiginni
stúlku sæmdi, og sá um, að hún
ætti töluvert saman við tigið fólk
að sælda. Allt þetta ruglaði Evu
dálítið i ríminu fyrst í stað. í Paris
komst hún fyrst að raun um, live
faðir hennar var ciginlega þekktur
listamaður, því að hann liafði oft
haldið hljómleika i höfuðborg Frakk
lands áður fyrr og þá kynnst ýms-
um merkum mönnuin, sem dáðust
að snilli lians. Eva varð þess einnig
vör, að margar konur gáfu honum
liýrt auga, en hann varð ekki upp-
næmur út af því. Hann gaf þeim lít-
inn gaum, þvi að athygli hans
beindist öll að dótturinni. Henni
hafði hann helgað allan sinn áhuga.
Hann gladdist yfir því, hve auðvelt
henni reyndist að samlagast um-
hverfinu, og stundum fannst lion-
um, að liún yæri mjög þroskuð
stúlka. En hin miklu stakkaskipti,
sem hún hafði tekið blinduðu hon-
um sýn, og það hafði að ýmsu leyti
reynst rétt með liana eins og svo
marga aðra, að „fötin skapa mann-
inn.“
Sambandið milli föður og dóttur
var innilegt, eins og það getur best
verið milli barns og foreldra. Bæði
voru öll af vilja gerð til þess að
brúa bilið yfir hið inikla djúp for-
fortíðarinnar og fjarvistanna livort
frá öðru. Samvistirnar voru báðum
aðiluri til gleði og ráku minning
arnar frá einveruárunum út i myrkr
ið. Hversu ólíkt sem líf þeirra
hafði verið til þessa, þá komust
þau að því, að þau áttu margar
sameiginlegar skoðanir á ýmsum
málum og viðhorf þeirra til lífsins
var mjög svipað.
Eva kynntist nú lifnaðarliáttum
heldra fólkið í París, En það
breytti ekki hugarfari hennar. Hún
tók aðeins upp ýmsa siði þess og
venjur, en hún var áfram sama lát-
lausa og nægjlisama stúlkan sem
áður. Hún tamdi sér aðeins á-
kveðna og virðulega framkomu, þar
sem hún vissi, að faðir sinn óskaði
þess.
Henrik Malte fannst það vera
hlutverk sitt að reyna að vikka
hinn andlega sjóndeildarhring dótt-
ur sinnar, og honurn var það mikið
ánægjuefni live vel menntuð hún var
fyrir. Sameiginlega reyndu þau að
ausa af brunnuin fegurðar og list-
verðmæta i borginni, en af slíku
er hún auðug. Þau eyddu löngum
tima í að skoða Louvre og gerðu
sér ferð til Versala og út i skóginn.
Allt þetta minnti á forna frægð og
forna menningu. Þau hlýddu á
nokkra hljómleika, og faðirinn
styrktist i þeirri trú, að Eva byggi
yfir miklum tónlistarhæfileikum.
Þau ákváðu að þau skyldu siðan æva
sig i að leika saman, en á ferðalaginu
sjálfu léku þau oft hvert fyrir ann-
að. Þegar faðirinn lék á fiðluna,
hlustaði dóttirin með athygli og
reyndi að læra af lionum, og
þegar dóttirin lék, þá leiðbeindi
faðirinn lienni og benti henni á
það, sem betur mætti fara, en dró
ekki dul á, að hann væri hrifinn
af leik hennar.
„Þú leggur mikla alúð í leik þinn,
Eva,“ sagði hann einu sinni. „Það
má sjá, að þú leggur sál þína alla
í liann. Þó að þú eigir margt ólært
tæknilega séð, þá e* leikur jiinn
þegar gæddur þeim tilfinningum,
sem munu liræra livern þann, er á
þig hlustar.“
Hún var glöð yfir hrósi lians.
Það gat ekki verið skilið á annan
veg en þann, að hennar biði glæsi-
legur ferill á listamannabrautinni
ef hún kærði sig um. En hvers virði
voru slíkir framtíðarmögulcikar fyr-
ir liana? Gæti lnin liugsað sér að
helga líf sitt þvi starfi?
Hún horfði á föður sinn döpru
augnaráði og hristi höfuðið. Af svari
hennar mátti ráða, að lnin var ekki
metorðagjörn.
Það mun alltaf verða mér fjötur
um fót, að ég fyllist kviða í hvert
sinn, sem ég þarf að koma fram
opinberberlega. Þegar ég leik fyrir
þig einan, þá get ég lagt mig alla
fram, en kvíðinn og hræðslan mun
alltaf spilla leik mínum i viðurvist
margra. Mér fellur það ekki að
þurfa að leika, þegar fjöldi augna
beinast að mér.“
Hann kinkaði kolli. „Það þekki
ég frá sjálfum mér. Karhnenn eiga
vafalaust betra með að yfirvinna
slíka kvíðakennd en kvenfólk. Mér
tókst að vinna bug á lienni með því
að reyna að gleyma umhverfinu al-
veg eða hafa augun ekki af konu
minni, svo að mér fyndist ég að-
eins leika fyrir hana. Þegar kvíð-
inn var yfirunnin, gat ég lagt mig
miklu betur fram en áður við leik
minn.“
Þannig töluðu þau oft saman og
treystu bönd skilnings á milli sin.
Um þessar mundir hafði mynd Ibs
Oldentoft orðið nokkuð óskýrari í
Iiuga Evu. Henni fannst að hann
væri horfinn fyrir fullt og allt úr
lífi sinu. Auk þess veittu samvist-
irnar við föðurinn henni þá lífs-
gleði, að annað komst ekki að í
huga hcnnar. Hið hrcytilega um-
hverfi á ferðalaginu veitti lienni
líka alltaf ný og ný umhugsunar-
efrii. Eftir dvölina í París kom ferð
til Ítalíu. Af þeirri ferð hafði hún
liina mestu ánægju, því að bæði
höfðu þau, hún og faðir bennar,
svo þroskaðan listasmekk, að fcrð
til lands sem er eins auðugt af lista-
vcrkum, hlaut að verða þeim báð-
um til mikillar gleði. Þau dvöldust
nokkra hríð í Genua, Florens, Róin
og Neapél á suðurferðinni, cn þau
komust alla leið til Sikileyjar. Á
norðurleiðinni komu þau við í Fen-
eyjum, sem Eva hreifst mest af.
Siðan fóru þau til vatnanna á Norð-
ur-ítaliu, þar sem þau nutu hinnar
stórkostlegu náttúrufegurðar. Þaðan
fóru þau til Milano og skoðuðu liina
fögru dómkirkju og frægu óperu,
en þaðan var haldið til Riviera á
Miðjarðarhafsströnd Frakklands.
Til Riviera-strandarinnar komu
þau um það leyti, sem blómahátíð-
Elisábeth Englandsprinsessa og maður hennar, hertoginn af Edinborg hafa undanfarið verið í heim-
sókn í Kanada og Bandaríkunum. 1 Montreál var þeim tekið með kostum og kynjum. M. a. voru hin-
ir frægu fimmburar meðál þeirra, sem tóku á móti þeim þar og sjást þeir hér á myndinni og for-
eldrar þeirra. Elisábeth og hertoginn sjást fremst á myndinni. til hægri.