Fálkinn - 28.03.1952, Síða 6
6
FÁLKINN
10.
LJÓS og SKUGGAR
ER HÚN GIFT EÐA EKKI?
Ameríska leikkonan Nancy Val-
cntine, sem fyri rnokkrru fór til
Indlands til þess að giftast op-
inberlega — að því er hún sagði
— maharajahinum af Cooch
Behar, er nú komin til USA
aftur. Sagðist hún hafa verið
gift þessum pótentáta á laun í
ivö ár, en nú segir hún sig vera
löglega gifta lionum. En hins
vegar er þessu neitað í Bombay.
— Ilér sést Nancy Valentine
þegar hún kom aftur til New
Y ork.
í HAFSNEYÐ.
Þýska skólaskipið „Pamir“, sem
er eitt af þeim fáu fjórmöstr-
uðu barkskipum sen enn eru
til i veröldinni lenti í fárviðri
í Ermarsundi í janúar og mun-
aði minnstu að það færist. Það
rak stjórnlaust með fram Eng-
landsströnd heila nótt með U6
farmennskunema um borð. —
Myndin er tekin úr lofti og sýnir
enskan björgunarbát, sem far-
ið hefir skipinu til aðstoðar
frá Margate og hringsólar kring
um það. En skipið reið af sér
storminn og gat lialdið áfram
ferð sinni til Suður-Ameríku.
KANN EKKI AÐ HRÆÐAST
1 Þýskalandi er maður, sem
gengur undir nafninu „Max vel-
klifrandi“, og sem oft hefir sýnt
að hann kann ekki að hræðast
og þjáist ekki af lofthræðslu.
Iiér sést hann gera það að
gamni sínu að hjóla upp á hæsta
húsinu í Frankfurth a. M. og
til þess að vekja enn meiri at-
hygli hefir liann stúlku á há-
hesti. Aumingja stúlkan.
FLÓTTA-HUNDAR.
Fjórir úrvals hundar voru með
einum flóttamannahópnum sem
kom til Vestur-Berlín nýlega frá
Austur-Þýskalandi. Þeir komu
með húsbónda sínum, 56 ára
skógarverði frá óðali, sem kom-
múnistar höfðu tekið af eigand-
anum. — Iiér sjást flóttahvolp-
arnir í bakpoka húsbónda síns,
þegar liann kom til bresku
landamæravarðanna. Eigand-
inn vildi koma hundunum í
góðra manna umsjá og auglýsti
þá. Og u m600 manns gáfu sig
fram og vildu taka hundana að
sér.
Framhaldssaga eftir
Hann hjálpaði hinum unga manni
i rúmið þetta kvöld, og Geráld Briggs
svaf svo lengi fram eftir næsta morg
un. Þegar Durning fór inn til þess
að vekja hann, var skipið, sem El-
isabet hafði tekið sér far með, farið
til Englands.
Þegar Gerald varð þess áskynja,
hve framorðið var og að Elísabet
væri farin til Englands, varð hann
daupur í bragði. Var þá oft erfitt að
tjónka við hann, og Durnig átti
ekki sjö dagana sæla. Gerald vildi
hvorki talca sér eitt né neitt fyrir
hendur, og einhvern veginn tókst
lionum alltaf að komast undir áhrif
áfengis næstu daga.
Það var ekki fyrr en Durning
talaði við hann i fullri alvöru og
tjáði honum að liann mundi láta
föður lians vita hvernig málin stæðu
að Gerald sá sitt ráð vænna að halda
áfram ferðinni eins og ráðgert liafði
verið.
Auðvitað hafði Elísabct alveg
gleymt honum. Sú hugsun livarflaði
ekki að henni, að hún kynni að
hafa komið illa og ónærgætnislega
fram við liinn óreynda og ótamda
ungling.
En minningin um liina seiðfögru
rödd og fagra útlit hennar kvaldi
Gerald Briggs ennþá. Og enn síður
gleymdi hann því, að hún hafði for-
smáð hann og hætt. Þetta olli þvi
hugarástandi hjá lionum, að til
stórra vandræða horfði með vel-
ferð hans í framtíðinni.
VII.
Ungfrú Charlbury hafði ekki verið
sólarhring í hinum nýju lieimkynn-
um, þegar hún komst að þeirri nið-
urstöðu, að hún gæti ekki setst þar
að til frambúðar. Allt var öfugt og
snúi ðvið það, sem hún hefði kosið
En auðvitað varð hún að fara var-
lega að öllu.
Ef til vill var það af því, að hún
var liyggin, eða af því, að liún fann,
að hún þurfti að hafa einhverja eins
og Hester til að gæta sín — eða þá
af því, að hún vildi gjarna kynnast
Michael Panister betur — en hún
vandi sig af því að selja upp drembi
legan svip, sem henni var svo litt
áður. Hún varð hátiðleg á svipinn
i staðinn, eins og hún beygði sig
skilyrðislust undir grimm örlög.
Með mestu varfærni og kænsku
reyndi lhin að veiða það upp úr
Hester, hvort Miss Martingate sál-
uga hefði borið til hennar nokkurn
góðvildarhug.
Þó að Hester þættist viss um, ag
gamalt ástarævintýri hinnar látnu
húsmóður eða eitthvað slíkt byggi
að baki þessu máli, þá þekkti hún
ekkert nánar til málsatvika. Hins
vegar fullvissaði hún ungfrú Charl-
bury um það, að henni hefði áreið-
anlega verið tekið vel af Miss Mart-
ingate, ef hún hefði verið á lifi.
„Fólk sagði að hún væri hörð og
kaldlynd,“ sagði Hester eitt sinn við
Elísabetu, „en það er ekki satt. Eg
segi ekki, að það hafi verið auð-
velt að umgangast hana. En hjarta
Adelaide Rowlands.
hennar var gullnáma. Enginn nema
ég vissi Iive mrgt gott hún gerði í
raun og veru. Hún vék alltaf ein-
hverjum einhverju góðu. Og hvað
hefir liún ekki gert fyrir mig!“
Elísabet leit snöggt á hana og gat
með erfiðismunum látið ógert að
koma með háðslega athugasemd.
Hún sagði aðeins:
„Já, hún hefir verið góð við yð-
ur, Hester. En þér hljótið einnig að
liafa verið góðar við liana!“
Þó að Elísabet léki hlutverk sitt
af hyggindum og þó að henni tækist
að sannfæra Hester um þakklæti
sitt, þá var hún full af kviða og ó-
róa út af framtíðinni.
Hún liafði óbeit á Hester. Það
kostaði hana mikla áreynslu að sýna
henni tilhlýðilega kurteisi. Og liún
hafði andstyggð á húsinu. Hún varð
að hafa sterkt taumhald á skapi
sinu, ef vel átti að fara. Umhverfið
var að gera út af við hana. Hún
þráði heiminn og lifið utan þess.
Hin eina sem skildi hana, var
Ethel, stofustúlkan. Hestcr liafði
ráðið fleira þjónustufólk — mat-
reiðslustúlku og aðstoðarstúlku
handa henni og svo aðra stofustúlku.
Nýja starfsfólkið dáðist mjög að
ungfrú Charlbury.
„Það er enginn vafi á því, að hún
er tigin stúlka!" sagði nýja stofu-
stúlkan.
„Og hún hefir ekki týnst aftan úr
flutningavagni!" sagði matreiðslu-
stúlkan. „Hún hefir ferðast mikið
og hefir vit á góðum mat.“
„Það vcrður enginn ríkari á 'því
að þckkja liana,“ hugsaði Ethel með
sér.
Henni þótti það sárt vegna Hest-
er. Að sumu leyti fannst henni El-
ísabet Charlbury aðlaðandi, en hún
var það lífsreynd, að liún vissi, af
hvaða sauðahúsi hún var.
„Ilún mun aldrei festa yndi hér,“
hugsaði lnin með sér. Og hvaða á-
hrif hefir það á veslings Hester, ef
Elísabet hröklast liéðan? Hún verð-
ur ómöguleg manneskja! Hvað skyldi
eiginlega verða úr þessu öllu sam-
an? Eg hefði gaman af að vita,
livað Micliael heldur.“
En i raun og sannleika vissi
Michael Panister ekki, hvað hann
átti að lialda um Elisabetu Charl-
bury.
Hún var bæði áðlaðandi og frá-
hrindandi. Hann fann það — þó að
Ethel fyndi það ef til vill betur —
að stúlkan var ekki eins og æski-
legt hefði verið. Þess vegna tók
liann það sárt að sjá, hvernig Hester
gerði allt, sem hún gat, til þess að
gera henni til hæfis.
Hann vissi ekki hvernig amma
lians hafði komist á snoðir um það,
að ungfrú Charlbury væri setst að
i Inisinu. En dag nokkurn fitjaði
hún upp á því, meðan þau voru að
drekka kaffisopa. Hann hrökk við.
„Kemur þú nokkurn tíma í gamla
húsið í Kennington?“ spurði hún.
„Eg heyri að Slayde hafi fengið
unga stúlku i húsið. Veist þú nokk-
uð um það, Michael?"
FÁLKINN - VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM - AfgreiÖsla: Bankastræti 3, Reykjavík.
Opin kl. 10-12 og 1-6. BlaCiÖ kemur út á föstudögum. Áskriftir greiðist fyrirfram.
Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested. — Herbertsprent.