Fálkinn - 12.12.1952, Síða 29
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1952 ^#^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*.^*^#.^*^ 25
NN í dag sækja listamenn efni í Biblíuna, þó að ekki
sé það eins altítt nú og fyrr meðan kirkjulistin var
í algleymingi, og kirkjan var bæði andlegt og ver-
aldlegt stórveldi. Þá helguðu listamennirnir guði
starf sitt og gáfu listina fyrir sálu sinni um leið
þeir unnu sér daglegt brauð með þvi að skreyta
kirkjur og hallir kirkjuhöfðingjanna. Það voru einkum myndir úr
lífi Krists sem þeir máluðu og ekki síst af fæðingu hans og lista-
verkin voru fram eftir miðöldum eingöngu trúarlegs efnis, enda
réð kirkjan þá ein öllu. En eftir 1400 voru furstarnir farnir að efl-
ast svo að auð og völdum að þeir gátu tekið listamenn í þjónustu
sína og látið þá gera myndir — einkum andlitsmyndir af sér og
venslafólki sinu.
Veggir og loft hinna gömlu kirkna og kapellna geyma sæg af mynd-
um frá miðöldum. Fæstar þeirra eru hreinar raunverumyndir, heldur
kemur þar fram hið yfirnáttúrulega, sem talið var tilheyra guð-
dóminum. Mikið af þessum myndum var málað á sjálfan steininn
— freskomyndir — og hafa margar þeirra eyðilagst og í siðaskipta-
löndunum var stundum málað yfir þær, því að þær þóttu ekki
hæfa lúterskunni. Nú virðist freskómyndin vera að vinna hylli á
ný, þar sem hún hafði verið gleymd öldum saman. En altaristöfl-
urnar hafa ekki fallið úr tísku síðan fyrst var farið að nota þær.
Fæðing Jesú var það efni sem flestir völdu sér, María með Jesú-
barnið, vitringarnir frá Austurlöndum og því um líkt. Mestu meist-
ara miðaldanna hafa málað fjölda slíkra mynda, og margar þeirra
hafa varðveitst, sumar í kirkjunum en aðrar í söfnum.
Hér birtast nokkur sýnishorn af þessum gömlu myndum af
fæðingu Jesú.
HUGO van der GOES. „Tilbeiðsla hirðanna" heitir myndin. Höfundur
hennar er Hollendingur og var uppi 1430—1482. Tomaso Portinari, sendi-
herra Plorenz-Medici-anna í Briigge fékk Goes til að mála þessa mynd
og þess vegna er hún oft kölluð Portinari-altaristaflan. Það sem hér
er sýnt er ekki nema nokkur hluti töflunnar, og sýnir hirðana, er þeir
koma og kasta sér á kné fyrir Jesúbarninu. Myndin er sambland raun-
sæis og raunveruleika. Myndirnar af hirðunum sjálfum eru í fyllsta máta
raunverulegar, bæði andlitin, hendurnar og fatnaðurinn, en neðst á mynd-
inni sjást lítil englaandlit af allt annarri gerð. Altaristafla þessi var í fyrstu
í kirkjunni Santa Maria Nuova í Firenze en er nú í Uffizi-myndasafninu.
BOTTICELLI. — Stóra myndin sem er hér að ofan heitir „Fæðing Krists“
er eftir Botticelli (1344—1410) einn af frægustu málurum florentiska skól-
ans svonel'nda. Hann tamdi sér sérstakan stíl er hann málaði mannlegar
verur, þær voru loftkenndar, óáþreifanlegar, langar, með gullið hár og í
víðum flögrandi skikkjum. „Fæðing Venusar" er frægasta mynd Botticellis.
Á efri árum varð hann fyrir vakningu munksins Savonarola og brenndi
þá ýmsum þeim myndum sínum, sem honum þóttu of veraldlegs efnis. Stóra
myndin sem hér sést er máluð árið 1500 og talin síðasta myndin sem hann
málaði. Þar sést María og Jesúbarnið en yfir þeim svífa dansandi englar
í hring. Neðar sjást fólk og englar kringum fæðingarstaðinh en neðst Savonar-
ola og prestarnir tveir sem voru brenndir á bálinu með honum, er þeir
koma til himnaríkis og englar taka fagnandi á móti þeim. Myndin er í
National Gallery í London.
BOTTICELLI. „Tilbeiðsla vitringanna" heitir þessi mynd, sem líka er
eftir Botticelli og sennilega máluð í Róm árið 1482. — Botticelli er skyggn
og raunsæismaður í senn. Hér lætur hann Maríu og Jósef sjást undir
rúst klassisks musteris, bak við eru grænar hæðir en fremst fólk í lit-
skrúðugum skikkjum. Mynd þessi er „veraldlegri“ en hin fyrri enda gerð
áður en Botticelli tók sinnaskiptum. Hún er í National Gallery of Art
i Washington.