Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1952, Síða 32

Fálkinn - 12.12.1952, Síða 32
28 Jölablað fálkans 1952 Þegar Bagga bjargaði jólunum 1. Einn morguninn þrem vfkum fyrir jól vaknaði Bagga við hringinguna í vekjaraklukkunni við rúmið hennar mömmu sinnar. Móðir hennar var vön að fara fyrst á fætur til þess að hita á katlinum. „Eg get víst legið tíu mínútur enn,“ hugsaði Bagga með sér 3. „Eg má til með að segja þér nokk- uð, áður en ég fer á spítalann,“ sagði mamma Böggu. — „Við eigum sama og enga peninga. Það, sem hann pabbi þinn lét eftir sig nær skammt núna, þegar allt er orðið svona dýrt. Eg vissi ekki hvernig við ættum að halda 5. Heitt loft og góða lykt lagði á móti Böggu, þegar hún kom inn úr dyrunum á stóru versluninni. Þarna var mikið skraut að sjó. Ungu stúlk- urnar sem hjálpuðu afgreiðslufólk- inu voru allar klæddar eins og jóla- sveinar. En Böggu langaði ekkert til og sneri sér á hina hliðina. En þegar hún hafði legið dálitla stund fannst henni að eitthvað mundi öðruvísi en það átti að vera. Allt var svo kyrrt, og hún heyrði ekki fótatak mömmu sinnar og ekki heyrði hún hana raula hcldur, eins og hún var vön.— Bagga varð hrædd. Var mamma veik. Hún flýtti sér fram úr og hljóp berfætt að rúmi mömmu sinnar. 2. Mamma sat uppi í rúminu og þrýsti höndunum að hægri mjöðm- inni á sér. Hún brosti til Böggu. „Vertu ekki hrædd,“ sagði hún, „en það gengur víst eitthvað að mér, ég hefi verið með kvalir í alla nótt. Og svo er ég víst með hita.“ — Hún var með hita, og meira að segja mikinn hita, svo að Bagga fór undir eins til nágrannanna til þess að fá lánaðan síma og ná í lækninn. — „Þér verðið að fara á spitalann undir eins, sagði hann er hann hafði hlustað hana. „Það er botnlanginn. — En vonandi kemur mamma þín heim aftur fyrir jól,“ sagði hann við Böggu, sem varð hrædd. — „Það er ergilegt, að ég skyldi verða veik einmitt núna,“ sagði mamma Böggu, meðan þær voru að bíða eftir sjúkrabílnum. jólin í úr. Mig langaði svo til að gera þau svolítið hátíðleg og svo fékk ég mér vinnu í Bergs-verslun, meðan jóla- ösin væri sem mest. Eg átti að byrja þar í fyrramálið, en nú er úti um það. Þegar þú kemur úr skólanum í dag, verðurðu að fara þangað og segja að ég geti ekki komið.“ - Svo kom sjúkra- bifreiðin eftir dálitla stund. Bagga tók skólatöskuna og varð samferða að spítaladyrunum. „Þú getur komið hingað klukkan sjö í kvöld,“ sagði hjúkrunarkonan við hana. 4. Bagga hafði lítið gagn af skóla- tímanum þann daginn. Þeir voru svo skelfing lengi að líða og hún var alltaf að hugsa um mömmu sína. Hin börnin hugguðu hana eins og þau gátu og Jóa, besta vinstúlka hennar bauð henni að koma heim mcð sér eftir skóla- timann. — Mamma Jóu var ósköp góð við Böggu. „Þegar við crum búin að borða skreppum við hcim til þín eftir rúmfötunum þínum og svo skaltu vera hérna þangað til hún mamma þín kernst á fætur aftur,“ sagði hún. Bagga þakkaði fyrir það og það fór sem snöggvast að liggja betur á henni, en svo mundi hún að hún hafði lofað að fara í Bergs-verslun með skilaboðin frá mömmu sinni. Bara að það væri nú ekki orðið of seint í dag. Hún flýtti sér í kápuna sína og flýtti sér að komast til Bergs fyrir lokunartíma. að sjá jólasýningarnar. Hún flýtti sér inn marmaragólfið að lyftunni til þess að ljúka erindinu eins fljótt og hún gæti. Hún tók ekkert eftir jólastúlk- unni, sem kom varlega með stóran hlaða af öskjum í fanginu. Þær rák- ust á og duttu báðar á glerhálu gólf- inu og öskjurnar tættust í allar áttir. „Klaufinn þinn!“ sagði jólastúlkan í hálfkæringi .... en svo fóru þær báð- ar að hlæja. 6. Fóikið þyrptist saman kringum þær og gerði að gamni sínu og telp- urnar flýttu sér að taka saman öskj- urnar. „Þú verður að afsaka þetta,“ sagði Bagga við jólatclpuna. — „Það gerir ekkert til,“ sagði jólatelpan, „en flýtir þú þér alltaf svona rnikið?" Bagga mundi í hvaða erindum hún var og henni var ekki gleði í hug, en svo datt henni nokkuð í hug! „Hve gömul ertu?“ spurði hún jólatelpuna. „Á fimmtánda árinu.“ „Og ég varð fimm- tán í síðasta mánuði,“ sagði Bagga. Hún hljóp upp stigann og beið ekki eftir lyftunni. Hún var lafmóð, þegar hún kom til yfirmannsins. „Mér þyk- ir leitt að hún mamma þín er veik,“ sagði hann, en viltu skila til hennar, að hún sé velkominn eftir nýárið, þegar við höldum útsölurnar." 7. Vertu sæl, væna min, sagði deild- arstjórinn. En Bagga fór ekki, hún stóð og tvísteig: „Já, en ég meina — þurfið þér ekki eina jólatelpu í við- bót?“ Deildarstjórinn leit á hana og brosti. „Komdu þegar skólinn er úti ú morgun,“ sagði hann, „hún ungfrú Petersen skal þá hafa tilbúin jóla- telpuföt handa þér, og segja þér hvað þú átt að gera.“ Hún þakkaði fyrir sig og flýtti sér heim til Jóu. Hún var svo upp með sér, er hún sagði frá atvinn- unni, sem hún hafði fengið. Og svo flýtti hún sér ú spítalann til mömmu sinnar. — Uppskurðurinn hafði tek- ist vel. „Eg kem heim eftir hálfan mánuð, sagði mamma hennar.“ Bagga mátti ekki vera þarna nema tíu mín- útur en gat þó sagt frá hve góð mamma Jóu væri við sig og að deildarstjór- inn í versluninni hefði sagt að mamma hennar gæti komið eftir nýár ef hún vildi. En hún minntist ekkert ’á at- vinnuna sína. Mamma hennar átti ekki að frétta um hana fyrr en heim kæmi. 8. Mamma Böggu hresstist dag frá degi og tíminn flaug áfram hjá Böggu, eftir að hún hafði fengið atvinnuna. Áður en hún vissi af var það „ekki á morgun, heldur hinn“, sem mamma átti að koma heim. Sunnudaginn hjálp- uðust þær Jóa og hún að gera ibúðina hreina og mánudag sótti hún miimmu sína. Hún hafði keypt blóm og kóti- lettur og kökur með kaffinu. „Þetta er nú ofrausn,“ sagði mamma hennar, „við höfum ekki efni ú því. Huddan mín hlýtur að vera tóm!“ — „Já, það er víst um það — réttar tvær krónur eftir,“ sagði Bagga. En svo dró hún upp budduna sína: „Hérna eru fyrstu vikulaunin mín, og annað eins fæ ég í næstu viku. Og svo sagði hún mömmu sinni alla söguna um það hvernig hún hefði unnið sér inn peningana. *

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.