Fálkinn - 14.08.1953, Page 3
FÁLKINN
3
Margrét (Meg) prinsessa
Ástarævintýri
Síðustu vikurnar hafa ástamál inn-
an bresku konungsfjölskyldunnar
verið eitt aðalumræðuefni fólks í
Bretlandi og víðar um heim. I því
sambandi hefir verið rifjað upp
mál Játvarðar VIII. og konunnar,
sem hann afsalaði sér konungdómi
fyrir, en tíðindi þau, sem þá gerð-
ust, eru öllum, sem komnir eru á
legg, enn í fersku minni. Nú er það
Margrét prinsessa, 22 ára gömul,
sem hefir fellt ástarhug til 38 ára
gamals fráskilins kapteins úr breska
flughernum, Peters Townsend að
nafni. — Hvernig byrjaði þetta
ástarævintýri? Hversu alvarlegum
augum er það litið innan konungs-
fjölskyldunnar? Er nokkur von til
þess, að Margrét fái að giftast elsk-
huga sínum, einni af hetjum loftsins
úr orrustunni um Bretland 1940?
FYRIR níu árum kynntust Margrét
prinsessa og Peter Townsend
innan vébanda bresku Iiirðarinnar, en
það var 'ekki fyrr en vorið 1952, að
Margrét fór að gefa sig að hinum
snotra e,-' skemmtilega starfsmanni
við hirðina. Faðir liennar var jiá ný-
lega dáinn og Margrét mun hafa leit-
að athvarfs og huggunar hjá Towns-
end öðrum fremur, enda er hann
sagður þannig skapi farinn, að lion-
um fylgi hressandi blær. Peter
Townsend skildi við konu sína i
desember 1952, en liún var uppvís að
því að hafa verið honum ótrú. Um
helgar í fyrrasumar sáust þau oft
saman ríðandi í Windsor-garðinum.
Var ekki sérstaklega til þess tekið
þar í nágrenninu, þvi að Townsend
var skoðaður sem hver annar starfs-
maður hirðarinnar.
Sumar fregnir herma, að prinsess-
an og Townsend liafi átt stefnumót
hjá vinafóiki í Belgraviá hverfinu.
Margrét var sögð hafa látið aka sér
þangað i Daiiriler bifreið síðdegis,
sent bifrciðina burt, en Játið sækja
sig aftur eftir 2 klukkustundir. Síðan
kom Townsend og ók með prinsess-
una upp í sveit.
Konungsfjölskyldan og nánustu vin-
ir munu ekki hafa tekið þetta alvar-
lega, þegar þau komust á snoðir um
það, sem um var að vera. Þetta var
einungis talið saklaust gaman. Towns-
end var langlaglegastur af fylgisvein-
um prinsessunnar við hirðina og auk
þess stóð af honum ljómi flughetj-
unnar úr styrjöldinni. Eins og komist
hefir verið að orði, þá var hann einn
Peter Townselid
Vegleg bankabygging á Selfossi
Landsbankahúsið nýja á Selfossi. Lj ósmynd: Thomsen.
prmsessunnar
af þeim fáu, seiii liún var samvistum
við, er hafði bein í nefinu. Auk þess
liafði faðir hennar mikið dálæti á
honum og hafði verið skírnarvottur
yngri sonar hans.
IJtið var hugsað út í hinar leyndu
hættur þessa „saklausa gamans“. 1
vor var jafnvel ákveðið að flytja
Townsend frá Buckingham Palace til
Clarence House, aðalseturs Margrét-
ar prinsessu og móður hennar. Ilafði
hann þó þegar verið skráður sem
aðalráðsmaður á heimili drottningar-
móðurinnar. Sú útnefning hlaut þó
aldrei staðfestingu.
Hámarki náði þetta mál snemma í
sumar, sennilega strax eftir að krýn-
ingin var um garð gengin. Þá er sagt
að Margrét hafi fitjað upp á giftingu
við móður sína og systur. Skotið var
á ráðstefnu innan fjölskyldunnar.
Prinsessunni var sagt það, sem venja
er að óánægðir foreldrar segi við slík-
ar aðstæður: Að ástin sé hverful á
þessum árunj. Hún kynni að breyta
úm skoðun og niundi þá sjá eftir fljót-
ræðinu. Hún var minnt á skyldur sin-
ar og sennilega hefir hún verið að-
vöruð um það, að því kynni að verða
tekið illa, að hún gengi að eiga frá-
skildan mann, jafnvel þótt hann hefði
verið sakláusi aðilinn. Slikt hæfði ekki
strangasta konunglega velsæmi.
Breskir ráðherrar staðhæfa, að
málið liafi aldrei borið á góma innan
rikisstjórnarinnar. Forsætisráðherrar
samveldislandanna, sem liefðu þá átt
að fá vitneskju um málið, neita því
einnig að hafa fengið opinbera til-
kynningu um það. Hitt virðist liggja
ljóst fyrir, að málinu hefir verið
hreyft við Winston Churchill og Sir
Alan Lascelles, aðaleinkaritara drottn-
ingarinnar. Það er líka augljóst mál,
að ákvörðun hefir verið tekin um það
að stia þeim Margréti og Townscnd
sundur til þess að reyna, hvort tím-
inn og fjarlægðin breyttu ekki til-
finningum þeirra hyors til annars.
Prinsessan fór lil Rhodesiu með m<jð-
ur sinni, en á meðan var kapteinninn
útnefndur sendifulltrúi í Brussel.
Hann er sagður hafa beðið um út-
nefninguna sjálfur.
Margrét kom aftur frá Suður-Afríku
seint í júlí, tveim dögum eftir brott-
för Peters Townsend frá London. Þá
var það, að 90,8% af 70.000 lesendum
Daily Mirros, sem tóku þátt í skoð-
anakönnun um afstöðu i málinu, töldu
Framhald á bls. 14.
Útibú Landsbanka íslands á Sel-
fossi flutti i nýja og veglega bygg-
ingu s.I. laugardag og i tilefni þess
var allmörgum gestum boðið að skoða
hin nýju húsakynni. Meðal gesta var
viðskiptamálaráðherra.
Við þetta tækifæri tók fyrstur til
máls Magnús Jónsson, formaður
bankaráðs Landsbanka íslands. Rakti
hann sögu bankaútibúsins á Selfossi,
sem var stofnseU haustið 1918. Árn-
aði hann héraðsbúum, viðskiptamönn-
Narriman Sadck.
um og starfsmönnum bankans allra
heilla. Því næst flutti Einar Pálsson
bankaútibússtjóri ræðu og lýsti gangi
mála við byggingu hússins og húsinu
sjálfu.
Þá skoðuðu gestir bygginguna. Að
því loknu tók viðskiptamálaráðherra
til máls og síðan margir aðrir, m. a.
þingmen.n Suðurlandsundirlendisins,
Jón Árnason bankastjóri og ýmsir
liéraðsbúar.
Byggingaframkvæmdir bófust sum-
Framhald á bls. 14.
Narriman, fyrrverandi drottning
Egypta, stendur ekki alveg á sama
uni Zaki Hashem, fyrrverandi unn-
usta sinn, að því er nýjustu fregnir
lierma. Farúk yrði liklega að láta sér
það lynda, að-hún trúlofaðist Iionum
áftur, þó að sárt muni honum þykja
að sæta þeirri niðurlægingu.
Zaki Hashem hefir oft sést heima
hjá Sadek-fjölskyldunni undanfarið.
Narriman býr hjá móður sinni og ekki
cins ríkulega og meðan hún var
„fremsta kona Egyptalands“. Enginn
vafi er á því, að gifting Narriman
og Zaki Iiashem mundi mælast vel
fvrir í Egyptalandi, og er þess nú
beðið með óþreyju, iivort þau geri
alvöru úr hinum endurnýjuðu kynn-
um.
Narriman er aðeins tvítug að aldri.
Hún er í holdugra lagi, og um þcssar
mundir stundar hún daglega íþróttir
Og megrunaræfingar til þess að bæta
útlit sitt.
Myndin er úr anddyri hússins, sem er glæsilegt að frágangi, eins og
byggingin öll. Ljósmynd: Thomsen.
Giftist \arriiiian Nadek affnr ?