Fálkinn - 14.08.1953, Síða 11
FÁLKINN
11
Arfleiðsluskráin.
— og svo vil ég minna ykkur á
mjög áríðandi guðsþakkargjafir, sem
eiga að ganga tii viðgerðar á kirkju-
þakinu ....
— Viltu að hún mamma rétti þér
eitthvað?
— Hann er að skrifa hunda-sögur.
Dularfulli
SÖNN
FYRSTI stýrimaður á skipinu Vest-
ris árið 1828 hét Röbert Bruce,
og var afkomandi einnar frægustu
frelsishetju Skotlands. Skipið var á
leið til St. Johns i N'ew Bruns-
wick, þegar þessi saga gerðist. Um
hádegi dag einn var hann uppi á þil-
fari ásamt skipstjórahum, og voru
iþeir að ihuga sólarganginn. Siðan
fóru þeir báðir til klefa sinna til að
reikna út stefnu skipsins.
Stýrimaðurinn glámdi lengi við út-
reikning sinn, en fór síðan til klefa
skipstjórans. „Mér þykir fyrir því
herra,“ sagði liann. „Mér er ómögu-
legt að fá útreikninginn réttan.“
Maðurinn, sem sat við skrifborðið,
sneri sér hægt við, og Bruce brá mjög
í brún. Það var ekki andlit skipstjór-
ans, sem hann sá, heldur var það
andlit ókunnugs manns, sem var ekki
líkur neinum af skipshöfninni. Bruce
mætti starandi augnaráði mannsins
með óttablandinni þögn, síðan hljóp
hann út úr klefanum.
Uppi á þilfari liitti hann skipstjór-
ann. „Herra skipstjóri, það er ókunn-
ur maður í káetu yðar,“ hrópaði liann.
„Ókunnur maður? Það hlýtur að
vera annað hvort þjónninn eða annar
stýrimaður. Enginn annar fer inn i
káetu mína í heimildarleysi?"
„Nei herra,“ fullyrti Bruce. „And-
lit þessa manns hefi ég aldrei séð
áður.“
„Farið niður og skoðið liann bet-
ur,“ sagði skipstjórinn.
„Eg er engin skræfa," svaraði
Bruce, „en þrátt fyrir það vildi ég
ógjarnan fara einn niður aftur.“
Þegar þeir komu inn i klefann aft-
ur, var hann mannlaus.
Mannsins var leitað um allt skipið,
en án árangurs. Bruce hélt samt fast
við frásögn siína. „Eg vildi leggja árs-
launin niin i veð fyrir þvi, að ég sá
manninn þann arna sitja og skrifa
eitthvað á spjaldið yðar!“ sagði hann
einbeitnislega.
„Þá ætti að standa eittlivað á
spjaldinu,“ sagði skipstjórinn og
andartaki siðar var spjaldið í hönd-
sjMurinn
SAGA.
um lians. Og það stóð eitthvað skrifað
á það!
„Þetta lilýtur að vera rithönd yðar,
Bruce,“ sagði skipstjórinn. Á spjald-
inu stóð skrifað, skýrum stöfum:
Stýrið í norðvestur.
„Heyrið þér, eruð þér að reyna að
gabba mig? Skrifið þessi orð fyrir
mig.“
Rithönd Bruce var borin saman
við rithöndina á spj'aldinu en reynd-
ist gerólík. Sama var að segja um rit-
handir allra annarra á skipinu. Loks
tók skipstjórinn ákvörðun sína.
„Eg er guðhræddur maður,“ sagði
hann. „Þessi dularfullu skilaboð
liljóta að merkja eitthvað, einhver
hulin öfl forsjónarinnar hljóta að
vera lrér að verki. Við skulum taka
stefnu i norðvestur og sjá hvað setur.“
Skömniu síðar sáu þeir ísjaka fram
undan. Þegar Vestris kom nær lion-
um, gaf að líta annað skip, sem var
strandað og frosið fast við ísinn, og
öldurnar gengu yfir þilfar þess.
Vestris fór að skipinu og þeim af s'kip-
brotsmönnunum, sem enn voru á lífi,
var bjargað. Meðan á björguninni
stóð, tók Bruce sérstaklega eftir ein-
um skipbrotsmannanna. Hann var
lifandi eftirmynd mannsins, sem hann
hafði séð í káetu skipstjórans.
Að björguninni lokinni sagði Bruce
skipstjóranum frá uppgötvun sinni.
Síðan töluðu þeir við skipstjóra hins
strandaða skips. „Já, ég veit hvað
þið eigið við,“ sagði liann. „Þessi
maður spáði því að okkur yrði bjarg-
að þennan sama dag.“
Sjómaðurinn var kallaður tH við-
tals niður í skipstjóraklefann, og
skýrði hann þá frá því að fám klukku-
stundum fyrir björgunina hefði sig
dreymt að liann væri um borð í öðru
skipi og það væri á leiðinni til að
bjarga skipbrotsmönnunum.
Skipstjórinn ó Vestris tók spjaldið
og fékk sjómanninum það. „Skrifið
þessi orð,“ skipaði hann.
Sjómaðurinn skrifaði: „Stýrið i
norðvestur“. Og rithönd lians var sú
sama og verið hafði á spjaldinu. *
Vitið þér...?
að til 1927 varðaði það lífláti í
Kína að fara fram úr lögleyfðum
ökuhraða bíla?
Bílstjóragarmurinn, sem gerði sig
sekan um að aka með meiri hraða en
15 mílur (24 km.) hraða, sem var há-
markið, missti ekki aðeins hausinn,
heldur var hann líka hafður til sýnis
öðruin til aðvörunar. Hvort þessi
ströngu ákvæði liafa haft tilætluð
álirif veit maður ekki, en hitt er víst
að sami bílstjórinn hefir ekki orðið
sekur um brot nema einu sinni.
að til eru vörubílar, sem hægt
er að aka undir vatnsyfirborði?
Vagnar þessir eru notaðir við
landgögnu í liernaði. Vagnstjórinn
er útbúinn með sérstakri súrefnis-
grímu, en loftpápa liggur frá and-
rúmsloftinu niður í vélina, sem þarf
ó lofti að halda og blandast bensin-
inu. Útblásturspípur liggja upp á
yfirborðið.
að SAS-flugfélagið gefur út d-
dýrustu flugfarseðla í heimi?
Þessir seðlar gilda á leiðinni Kaup-
mannahöfn—Málmey, þ. e. yfir
Eyrarsund. Fargjaldið á þessari
stuttu leið kostar aðeins 13 krónur,
en þar sem fargjöld eru aðeins 10%
fyrir fanþega undir 2ja ára aldri,
neniur það 1,30 kr. á umræddri leið.
Hvergi mun vera hægt að kaupa
ódýrari flugfarseðil í víðri veröld.
DREKKIÐ EBILS