Fálkinn - 13.01.1956, Side 15
FÁLKINN
15
ÁSKON/rt!
Já. reynið þan ðll og: niður
staða yðar mnn rerða s
0M0 SKILAR VOUR
HEIMSINS HVÍnsm
ÞVOTTI í
Áskorun til allra kvenna í landinu. Gerið tilraunir
með hin ýmsu þvottaefni sem á markaðinum eru og
takið vel eftir árangrinum. Þvoið siðan með Omo,
hinu ilmandi 'bláa bvottadufti. Og skiljið ekkert eftir,
tínið til óhreinustu fötin, sem hægt er að finna, og
dembið þeim í hina glitrandi froðu Omo-þvotta-
efnisins.
Þegar komið er að því að strauja þvottinn, þá gerið
samanburð, og þá munuð þér reiðubúin að fallast á,
að Omo gerir hvítara en þér hafið nokkurn tíma áður
séð. Hvort heldur sem Omo fæst við venjuleg óhrein-
indi eða bletti, þá er eitt vist, að það skilar þér hvít-
asta þvotti í heimi.
X-OMO 8/4-1725-50
VARÚÐARRÁÐSTÖFUN. — Margir
leggja heilann í bleyti til þess að geta
fundið óbrigðult ráð til að afstýra
bílaþjófnaði, en hann er nú orðinn
landplága, jafnvel á íslandi. Hér er
ein tillagan: Þegar maður yfirgefur
bílinn sinn losar hann stýrishjólið af
honum og tekur það með sér. Þá get
ur enginn stolið bílnum, nema ef vera
skyldi að þjófarnir hafi með sér vara-
stýri. En annars hlýtur það að geta
verið óþægilegt fyrir bíleigandann að
ganga um með stýrið í hendinni.
SEM NÁMUMAÐUR. — Þessi námu-
maður, sem er áleiðinni ofan í kola-
námuna, er enginn annar en sir Anth-
ony Eden forsætisráðherra, sem ný-
lega skoðaði vandlega kolanámuna í
Tynemouth í Norðymbralandi. Er hún
talin rekin með fullkomnustu lagi allra
náma í Englandi.
I---------
Vilduð þér FITNA um 10, 20,
30 pund eða meira? Loks er
leiðin fundin. Skrifið eftir
ókeypis upplýsingum (með 2
sliillinga breskri póstávísun)
um uppbyggingu magurs
líkama.
Activities, Kingsway
(T 827) Delhi-9, India
- ____________________________I
RÁÐ VIÐ SVEFNLEYSI.
Nú hefir tekist að búa til áhald,
sem svæfir fólk með liljóð- og ijós-
bylgjum. Hugvitsmaðurinn ,scm smíð-
að hefir þetta tæki, Neil Satter, segisl
ætla að ljá læknum og tannlæknum
það til þess að fá sem mesta reynslu
um það. En það hefir þegar verið
reynt með góðum árangri á sjúkrahúsi
í Cliicago. — Aðferðin er einföld:
Sjúklingurinn situr í stól, 3—4 metra
frá tækinu og horfir á grænt ljós á
þvi miðju. Ljósið dvínar og slokknar
og kviknar aftur með ákveðnu milli-
bili og samtímis heyrast tveir tónar,
c og es á víxl. Ljósið og tónarnir
breytast jafnhratt og maðurinn dreg-
ur andann. Hraðinn á Ijós- og tón-
breytingunni lækkar hægt og hægt.
úr 18—20 sinnum á mínútu niður i
tólf sinnum á mínútu, cn það er jafn-
oft og sofandi maður dregur andann.
Sjúklingurinn heldur að tækið hagi
hraðanum eftir andardrætti sinum, cn
það er öfugt. Það er áhaldið, sem fær
manninn til að anda hægar og sofna.
FEGURÐ ÓNAUÐSYNLEG —.
Árið 1855 stóð þessi auglýsing í
amerísku blaði: „Bóndi, 33 ára,
óskar bréfaskipta við netta, unga
stúlku. Fegurð ekki nauðsynleg, and-
ríki óskast ekki, möguleiki á lijóna-
bandi.“ Ung stútka, Meg Charlton
svaraði bréfinu: „Ég er ekki falleg,
og enginn hefir sagt að ég sé andrík.
Ég er ung og vön stritvinnu, kæri mig
ckki um samkvæmislíf og dans og
þættist sæl ef ég fengi að eiga heima
á litlu sveitaheimili."
Hálfum mánuði siðar fékk hún þetta
svar: „Ég er liræddur um, að þér sé-
uð að blekkja mig, og að þér elskið
sveitasæluna og stritið jafn lítið, og’
dansinn og glauminn jafn mikið og
ég. Eins og stendur rek ég kolaverst-
un i Chicago. Ef þér viljið skuluð
þér koma til Meadowville. Yðar Ul-
ysses Granth.
Meg Charlton fór til Mcadowvillc
og tveimur vikum siðar giftist hún
Grant. Ilann varð forseti Bandaríkj-
anna árið 1868. En þessi bréf, scm
fóru á milli forsetahjónanna tilvon
andi, eru enn geymd í Hvíta lnisinu i
Washington.
Lítitl drengur kom heim úr skól-
anum og hnipraði sig út í horni. —
Þetta lærði ég i skólanum i dag, sagði
hann.
STÆ KKIÐ
um 2—C þumlunga með hinni
nýju aðferð okkar, sem hæfir
bæði körlum og konum.
Ábyrgjumst árangur eða end-
urgreiðum afgjaldið eins og
það teggur sig. Góðfúslega
sendið 30 shillinga póst-
banka- eða ferðaávísun, sem
greiða má með á Indlandi, í
Englandi eða Ameríku.
Activities (Dept. 927)
Kingsway, Delhi-9, India.