Fálkinn - 17.08.1956, Page 3
FÁLKINN
3
Ófríiarbliha við Miðjarðarhaf
Mikil ófriðarblika er nú á lofti
við austanvert Miðjarðarhaf. Sú
ákvörðun Egypta, undir forystu
Nassers, forseta landsins, um að þjóð-
nýta Súez-skurðinn hefir orðið til
]>ess að skara eld að þeim glæðum,
sem ekki hefir kulnað í, við botn
Miðjarðarhafsins frá lokum síðustu
heimsstyrjaldar. — Myndin efst til
vinstri er af Benjamin Disraeli, hin-
um kunna breska stjórnvitring (1804—
1881), sem Bretar eiga að þakka þá
aðstöðu, sem þeir hafa liaft við Suez-
skurðinn frá öndverðu. Árið 1875
keypti Disraeli 177 þús. hlutabréf í
skurðfélaginu af Ismail kedíva, sem
var mjög fjár þurfi, fyrir fjórar inill-
jónir sterlingspundk, án þess að bera
það undir þingið. Disraeli gerði þetta
i óþökk landa sinna, sem voru því
mjög mótfallnir, að skurðurinn yrði
grafinn, en framsýni liins merka
stjórnmáiamanns bjargaði málinu við
fyrir komandi kynslóðir Breta. -— Að
ofan til hægri er mynd frá flotahöfn-
inni Valetta á Möltu, en þar hafa
Bretar eitt traustasta vígi sitt í Mið-
jarðarhafinu. Þýðing þessa herskipa-
lægis mun vaxa mjög, ef til tiðinda
dregur við austanvert Miðjarðarhaf,
ekki sist, þar sem aðstaða Breta á
Ivýprus er nú veik og þeir hafa yfir-
gefið Súez-svæðið. — Myndin til
vinstri er frá Kýprus, en fregnirnar
þaðan liafa fallið nokluið i skuggann
fyrir tíðindum frá Egyptalandi. Ný-
lega voru þó nokkrir menn teknir af
lifi ]>ar fyrir ódæðisverk. Á mynd-
inni sést lík Edwards Charies Benicci.
Hann var frá Möltu, en búsettur í
Nicosiu, höfuðborg Kýprus, þar sem
hann vann í stórverslun, en gegndi
auk þess þjónustu i lögregluliði borg-
arinnar. Hann var skotinn úr laun-
sátri, er hann var á gangi úti á götu
með unnustu sinni, sem sést einnig á
myndinni. Hún situr á hækjum og
starir sljóvum augum út í loftið. *
Hneði(e0t nómu-
slgs í Bel0iu
Eitt mesta námuslys siðari tima
varð í vikunni sem leið í Charleroi
í Belgíu. Þar iokuðust hátt á þriðja
hundrað manns niðri í námugöngum,
er eldur kom upp í námunni. Engin
von er talin til þess að námumenn-
irnir náist lifandi upp, þótt björg-
unarstarfinu sé haldið sleitulaust
áfram. Um síðustu helgi hafði nokkr-
um líkum verið náð og örfáum mönn-
um, sem voru með Iífsmarki, en mjög
limlestir. — Baudoin Belgíukonungur
kom á slysstaðinn til þess að taka þátt
í sorg íbúanna á staðnum. Hann sést
hér á sjúkrahúsi, þar sem líkunum,
sem náðst hafa, hefir verið komið
fyrir. Þjóðarsorg var í Belgíu s. 1.
mánudag.