Fálkinn - 21.09.1956, Side 3
FÁLKINN
Dr. $Í0urður Nordnl
heiðrnður á 70 úru nfmeelinu
Agúsla Quðmundsdóttir
kosin
3egurðardroHning Jslands
Föstudaginn 14. september átti dr.
SigurÖur Nordal, einn merkasti fræði-
maður íslensku þjóðarinnar, sjötiu
ára afmæli. í því tilefni gekkst Al-
menna bókafélagið fyrir Nordalshá-
tíð í Þjóðleikhúsinu, þar sem dr. Sig-
urSur var hylltur og sitt hvað flutt
úr verkum hans.
Dr. Þorkell Jóhannesson, rektor
Háskóla íslands, flutti i upphafi er-
indi um líf og starf dr. Sigurðar Nor-
dal, en síSan hófst upplestur leikara
úr verkum dr. SigurSar. Lárus Pálsson
flutti þulu, Haraldur Björnsson las
kafla um Þingvöll úr íslenskri menn-
ingu, Valur Gislason og Gestur Páls-
son fóru meS FerSin, sem aldrei var
farin, og einnig var fluttur kafli úr
Hel. AS þvi loknu var fluttur þáttur
úr 'leikritinu „Uppstigning" eftir af-
mælisbarniS.
AS lokum var dr. Sigurður Nordal
kallaður upp á sviðið og hylltur
ákaft. Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri ávarpaði hann nokkrum orSum,
en dr. Sigurður svaraði með ræðu.
Að hátíðinni lokinni var dr. Sigurði
Nordal og konu lians haldið hóf í
Þjóðleikhúsinu og var þar margt
manna. *
í síðasta tölublaði Fálkans var birt
mynd af stúlkunum tíu, sem tóku þátt
í fegurðarsamkeppninni i Tivoli,
þar sem velja átti fulltrúa íslands í
keppnina um „Miss World“ titilinn,
sem fer fram i Lundúnum í haust.
í úrslitakeppninni bar Ágústa GuS-
mundsdóttir sigur úr býtum, en að
öðru leyti var röðin þessi: 2. Ásdís
Steinþórsdóttir, 3. Esther GarSars-
dóttir, 4. Sigrún GuSmundsdóttir, 5.
Guðlaug Skagfjörð og (i. Lilja Hail-
grímsdóttir.
Hin nýkjörna fegurðardrottning,
sem er 19 ára gömul, gekk í heilagt
hjónaband síðastliðinn laugardag,
Foreldrar hennar eru GuSmundur
Árnason kaupmaður og Áslaug Sig-
urðardóttir, Þorfinnsgötu 2 i Reykja-
vík.
(Það kom i ljós, er talningu atkvæða
lauk, að dómnefndin hafði komist að
sömu niðurstöðu og valið Ágústu úr
hópnum.
Það féll í skaut Örnu Hjörleifsdótt-
ur, fegurðardrottningar íslands 1955,
að krýna Ágústu, sem á nú fyrir hönd-
um þátttöku í Miss World keppninni
eins og Arna í fyrra. Fylgja henni
góðar óskir héðan að heiman.
Stúlkurnar
sem komust
í úrslitakeppnina.
Mynd þessi er af þátttakendunum 6, sem kepptu
til úrslita í fegurðarsamkeppninni. Þær bera sömu
númer og þær höfðu i forkeppninni. Talið frá vinstri:
Esther Garðarsdóttir, Guðlaug Skagfjörð, Lilja Hall-
grímsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Ágústa Guð-
mundsdóttir (fegurðardrottning) og Ásdís Steinþórs-
dóttir.