Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1957, Side 3

Fálkinn - 29.03.1957, Side 3
FÁLKINN 3 Cnroline kemur frnm Samkvæmt gamalli hefð sýndu þau Grace Kelly og Rainier fursti þegnum sínum hið nýfædda barn. Komu þau fram á svalir furstahallarinnar með Caroline litlu, sem svaf vært, meðan á athöfninni stóð. Annars er nú farið að kyrrast um í dvergríkinu Monaco eftir fagnaðarlætin, þegar litla og lang- þráða prinsessan fæddist. Sumir höfðu að vísu kosið heldur, að barnið hefði orðið drengur, en ekki verður á allt kosið. Það er því varla von á öðru, en fólk í öðrum löndum spyrji, hvernig móttökurnar hefðu orðið, ef sveinbarn hefði fæðst, því að tæpast er hægt að hugsa sér meiri hátíðahöld en kringum fæðingu Caroline litlu. PHILIP HERTOGI MEÐ ALSKEGG. Hertoginn af Edinburgh hefir nú safnað alskeggi, og nú eru Portúgal- ar að gera hið sama, því að Philip kom þangað í opinbera heimsókn nýlega. Þessi mynd er síðan hann var á Malta, því að þá gekk hann með skegg líka. GLÖÐ KVIKMYNDADÍS. — Hér sést Marta Thorén vera að veifa til fjöld- ans á flugvellinum í London. Það er skiljanlegt að stúlkan sé glöð, því að hún er á leið til Edinburgh til að sækja gull-heiðurspeninginn, sem hún fékk fyrir leik sinn í ítölsku mynd- inni „Maddalena". IvVIKMYND UM ROALD AMUND- SEN. — Franskt og norskt félag eru í samvinnu um að gera kvikmynd af ævi Roalds Amundsens. Handritið að myndinni er samið af franska rithöf- undinum Edouard Calic, sem á sín- um tíma skrifaði bók um Amundsen, er hann nefndi „Síðasti Víking- urinn“. IIANN FÉKK UPPREISN. — Eftir- hreitur uppþotsins í Posnan í Pól- landi hafa komið fram í víðtækri hreinsun innan pólsku stjórnarinnar. Og Gomulka, fyrrv. form. kommún- istaflokksins pólska, sem var sviptur völdum og settur í tugthúsið, sakaður um „tít'oisma“ hefir verið úrskurðaður sýkn saka, fengið fulla uppreisn og tekið við stjórnartaumunum. MAO OG NASSEIl. — Mao Tse Tung, forseti kínverska lýðveldisins hefir látið hafa það eftir sér, að hann sé algerlega á sama máli og Egyptar, eða Nasser, í Súes-deilunni, og sé mótfallinn öllum hernaðaraðgerðum gagnvart Egyptalandi. Þessi ummæli hafði hann á flokksþingi kommún- ista í Peking, og mun enginn hafa búist við þeim öðruvísi. LENI RIEFENSTEIN uppáhald Ilitl- ers í kvikmyndaheiminum í gamla daga, og einkum er kunn fyrir kvik- mynd sína af Olympíuleikunum 1936, hefir nú gert nýja kvikmynd, sem heitir „Svartur farmur". FRÁ CANNES. — Unga stúlkan sem síingur vindlingnum í munninn er ný kvikmyndadís frönsk, sem heitir Brigitte Bardot. Hún var ein þeirra mörgu sem fór á kvikmyndahátíðina í Cannes til að reyna að láta taka eftir sér. ANTONIN ZAPOTOCKY forseti Tékkóslóvakíu fór nýlega til Moskva með stóra scndinefnd til þess að ræða um ýms fjárhags- og við- skiptamál. Við komu sína sagði hann: „Við skulum standa við hlið Sovét- samveldisríkjanna til eilífðar!" Hann er svo sem ekki í vafa um að Sovét- lýðveldið verði eilíft.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.