Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1957, Side 13

Fálkinn - 29.03.1957, Side 13
FÁLKINN 13 það er óþarfi að þú ímyndir þér að eitthvað sé á milli herra Florians og mín.“ „Jæja þá . ..“ Mikael létti. „Ég trúi auð- vitað því sem þú segir. Fyrirgefðu mér, hafi ég tortryggt þig.“ Hafir þú? hugsaði Agneta með sér. Þú tortryggðir mig! En hún lét það ekki fara út fyrir varnirar, og upphátt sagði hún: „Þetta er blátt áfram ótrúleg saga, og ég skil þó ýmsum finnist hún skrítin. En ef þig langar til, skal ég segja þér hana frá byrjun.“ Og svo sagði hún enn einu sinni frá því hvernig hún hafði breytst úr óverunni henni Agnetu Malmfelt í sýnistúlkuna madem- oiselle Gabrielle. „Ég get þakkað forsjóninni fyrir að ég fékk þetta starf,“ hélt hún áfram þurrum rómi. „Ég átti fimm hundruð franka þegar það gerðist. Frú Moisant kom eins og engill af himnum sendur, en þeir eru vist ekki margir, sem hún hefir komið þannig fyrir sjónir.“ „Agneta!“ Mikael ofbauð hvernig hún hafði alvarlega hluti í flimtingum. „Getur það hafa verið alvara þin, að þú hafir ekki haft neina peninga? Varstu alveg peningalaus? Hvers vegna fórstu ekki heim? Hann faðir þinn getur að vísu verið hugsunarlaus stund- um, en þú mundir vera velkomin heim til hans.“ „Já, til hans, en ekki Mildred," svaraði Agneta lágt. „Nei, Mikael, þá vil ég heldur reyna að standa á eigin fótum i París.“ Hann beit á vörina. Ef til vill sá hann það fyrst nú, hve miklum raunum svik hans höfðu valdið henni. „Ég gleymdi Mildred,“ sagði hann. Agneta brosti. „En þetta fór nú allt vel! Það er í rauninni alveg óviðkomandi honum. Ég er óháð og get unnið fyrir mér sjálf.“ Hún var uppleit og hin hróðugasta. Hana langaði til að bæta því við, að þetta væri óviðkomandi Mikael líka, en hún vildi ekki reita hann til reiði, eins og á stóð. „Mér fellur nú samt ekki, að þú skulir hafa nokkuð saman við þenna náunga að sælda,“ sagði Mikael drungalega. „Þú veist ekkert um hann. Það fer alls ekki gott orð af hon- um, skal ég segja þér. Hér einu sinni skrif- uðu blöðin öll um hann og einhverja óperu- söngkonu frá ítalíu, Belloni held ég að hún hafi heitið, og nú er farið að tengja nafnið þitt við nafn hans. Þú ættir að gæta sóma þins vel.“ „Góði minn, herra Florian sagði sjálfur, að engin manneskja mundi geta hugsað sér, að hann ætti vingott við stúlku, sem gengi í kápu er hún hefði keypt tilbúna í búð!“ svaraði Agneta létt og langaði til að hlæja meira þegar hún hugsaði til þessa. En svo Iivar er veiðiþjófurimi? fann hún að hún hafði reynt fullmikið á geðs- muni Mikaels. „Þú skilur sjálfsagt að hann var að gera að gamni sínu!“ sagði hún. „Þú ættir að vita hve algerlega honum stendur á sama um mig sem manneskju. Ég hefði eins vel getað verið vaxbrúða í sýningarglugga. Það er fallega hugsað af þér að hafa áhyggj- ur af mér, en þess þarf í rauninni ekki með. Og nú verð ég víst að fara.“ Kveðja þeirra varð stutt og óviðfelldin og hugur beggja hvarflaði til heitra kossa um bjartar nætur. Agneta dró höndina að sér og flýtti sér burt. Hún iðraðist eftir að hún skyldi hafa hitt hann aftur. Það var ómögu- legt að vera kunningi manns, sem einu sinni hafði verið unnusti hennar, hugsaði hún ang- urvær. Agneta fékk von bráðar nýjar sannanir fyrir góðu gengi sínu og gladdi það hana mik- ið. Hún var beðin um að sýna á sér loðkáp- ur í ýmsum myndum fyrir afar vandað tíma- rit, og Florian féllst á það nauðugur að hún væri ljósmynduð í minka- og hermilinkáp- um, sem gerðu hana eins og hertogafrú. „Það verður spennandi að sjá blaðið þeg- ar það kemur út!“ sagði hún við Roger, er hún einu sinni sem oftar borðaði miðdegis- verð með honum eftir vinnutíma. „Ég er hissa á að húsbóndi þinn skyldi leyfa þetta,“ sagði Roger og brosti að hrifn- ingu hennar. „En í rauninni er það auglýsing fyrir hann líka. En þegar þú hefir náð fullri viðurkennnigu, mun hann vilja hafa einka- rétt á þér. Þá segir hann að það sé hann, sem hafi skapað þig!“ „Það hefir hann líka gert!“ „Hvaða bull! Hann gaf þér aðeins tækifæri, en gáfuna og fegurðina áttirðu sjálf. Þú skalt ekki verða feimin við að meta þig háu verði, ef hann vill fá einkaleyfi á þér. Florian er kaupsýslumaður. Ef hann fer fram á að fá einkaleyfið þá er það vottur þess að þú ert orðin svo kunn, að fólk klípur hvert annað í handlegginn þegar þú kemur fram og segir: „Sjáðu, þarna er Gabrielle!" Agneta hló tortryggin og hristi höfuðið. „Þú verður að láta sjá þig meira á almanna- færi en þú gerir,“ sagði Roger. „Eigum við ekki að koma á góðgerðadansleikinn hjá Crillon á miðvikudaginn kemur?“ „Það er svo hræðilega dýrt,“ sagði Agneta. „Ertu að koma mér í skilning um það, upp á sakleysislegan máta, að ég hafi ekki efni á að bjóða hinni frægu mademoiselle Gabri- elle?“ Roger brosti út undir eyru. „En í al- vöru talað, Agneta, langar mig hálfvegis til að sjá hvað þar fer fram, en maður getur tæplega komið á svoleiðis staði dömulaus.“ „En ég hefi ekkert til að fara í,“ sagði Agneta og með þeim orðum kom hún upp um sig, að hún hefði hugsað sér að afþakka boðið. Hún rifjaði upp fyrir sér hvað hún ætti fatakyns og datt í hug hvort hún gæti ekki dubbað upp hvíta chiffonkjólinn, sem faðir hennar hafði gefið henni í afmælisgjöf í vor. „Elsku Agneta, segðu ekki nei, það getur riðið mér að fullu.“ Röddin var létt og glettin að vanda, en Agnetu datt allt í einu í hug unga stúlkan, sem einu sinni hafði svarað honum nei-i, og hún þóttist skilja hvernig honum hefði fund- ist það. Brosandi lofaði hún honum því að hún skyldi koma, og undir eins og þetta var afráðið fór hún að hlakka til samkvæmisins. Það var orðið langt síðan hún hafði komið á mannamót til að skemmta sér, og núna, eftir að hún hafði fengið fótfestu aftur fannst henni mál til komið að gera sér einhvern dagamun. Hún var farin að verða heimavön í starf- inu núna. Hún hafði fengið æfinguna og kom sér vel við stallsystur sínar. Jafnvel Héloise hafði lagast og var farin að jafna sig eftir öfundarköstin í fyrstu, og Odette með raunalega brosið reyndist vera traustur og hjálpsamur félagi. Framhald í næsta blaði. FÁLKINN — VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. — Af- greiðsla: Bankastræti 3, Reykjavík. Opin kl. 10—13 og 1%—G. -— Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stj.' Svavar Hjaltested. — HERBERTSprent. HERBERTSprent. ADAMSON Adamson er þausætinn.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.