Fálkinn


Fálkinn - 29.03.1957, Blaðsíða 8

Fálkinn - 29.03.1957, Blaðsíða 8
8 FÁLKINN — Það er hjúkrunarkona hérna, sagði Glenda rólega. Á KROSSGÖTUM Góða nótt, elskan mín! Meg kyssti dóttur sina, slökkti á kertinu og fór út. Hún gægðist út uni gluggann á ganginum. Þokan koiii eins og slæða ofan frá uppistöðunni. Meg gat ekki séð vatnið í henni, en hún heyrði gjálpa í öldunni við fyrirhleðsluna. Hún fór niður í hlýjuna í eldhús- inu og þar sat maðurinn liennar og var að lesa dagblaðið frá í gær. Um leið og hún kom inn braut hann sam- an blaðið óg stóð upp. — Ég held að ég megi til að skreppa upp að fyrirhleðslunni aft- ur, sagði hann. — í gær sluppu tveir kiðlingar út úr girðingunni. Mér er illa við að fleiri týnist út í þokuna. Meg liorfði ástaraugum eftir há- vöxnum manninum sínum er hann hvarf út úr dyrunum. Augun í Sam höfðu stundum ekki verið jafn ánægjuleg og þau voru núna. Fyrir þremur árurn missti hann stöðuna, og síðan tiafði verið erl'itt að fá nokk- uð að gera. Til allrar lukku hafði lionum boð- ist þetta starf, og hann var ánægður með að vera eftirlitsmaður við fyrir- hleðsluna. Ofurlítið býli fylgdi stöð- unni. Meg og Sam leið báðum vel. Hún var alin upp í sveit og kunni ekki við bæjarlifið. Að vísu óskaði hún þess stundum, að hún ætti vini og nágranna til að tala við, þegar Sam var úti að vinna og Tilly var í skólanum, en annars var hún ánægð. Á hverjum miðviku- degi gekk hún niður á vegamótin, fjóra kílómetra, og ók með almenn- ingsbílnum til Stakeley, sem var næsti bærinn og hún verslaði i. Hún heyrði að Sam var að koma inn aftur, jægar hún var að Ijúka við að stoppa í sokkinn. — Meg! Meg! hrópaði hann og hún flýtti sér að opna dyrnar. Hún tók öndina á lofti er hún leit út. Þarna stóð Sam og bak við hann þokan, hvít eins og vofa. Sam hélt á ungri stúlku í fanginu. Hún var meðvit- undarlaus og hárið hékk niður yfir andlitið. — Hvað hefir komið fyrir, Sam? spurði hún með öndina í hálsinum. — Ég fann hana hérna úti á bal- anum. Það er best að þú takir við henni og reynir að lifga hana. Meg benti á sófann meðfram lang- veggnum. — Leggðu hana þarna, Sam, sagði hún. — Og viltu hita mjólk meðan ég færi hana úr votu fötunum. Aumingja stúlkan, hún hlýtur að hafa verið lengi liti. Meðan hún var að ná fötunum af henni tók hún eftir að hún var með giftingarliring. Hún gat ekki verið eldri en tuttugu og eins til tuttugu og tveggja ára. Hún rumskaði og kippir fóru um hana meðan Meg var að vefja værðar- voðinni utan um hana, og loks opn- aði hún augun. — Hvar er ég? spurði hún mátt- farin. Meg tók við bollanum með heitu mjólkinni af Sam og hélt hon- um upp að vörunum á henni. Stúlk- an drakk mjólkina hægt og hallaði sér máttlaus upp að handleggnum á Meg. Svo ýtti hún bollanum frá sér. — Ég ... ég get ekki meira, muldr- aði hún og hallaði sér aftur niður á koddann. — Reyndu að sofa, sagði Meg al- úðlega. — Þér er óhætt núna. Þér líður betur þegar þú vaknar aftur. Stúlkan lokaði augunum og var steinsofnuð eftir stutta stund. Meg lcit á Sam. — Hvaðan skyldi hún koma? sagði hún. — Hér er enginn mannabústaður nálægt, og hún er ekki ferðaklædd. Þetta eru dýr l'öt, og skórnir hennar hæfa betur í sam- kvæmi en til að ganga vegleysur á þeim. — Hver veit nema liún hafi ætlað eilthvað stutt en villst í þokunni, sagði Sam, en Meg hristi höíuðið. — Nei, þetta mun eiga sér alvar- legri rætur, sagði hún og settist á stólinn hjá sófanum. SAM hafði farið að hátta, en Meg sat enn í stólnum þegar stúlkan vaknaði og horfði forviða á hana. — Hvernig líður þér núna, sagði Meg og stóð upp. — Mér liður miklu betur, svaraði stúlkan. — En, heyrið þér, hvar er ég? Ég man að ég datt og svo — svo hefir líklcga liðið yfir mig og ... — Og Sam, maðurinn niinn, fann yður, sagði Meg og brosti. — Ég heiti Meg Hallas og maðurinn minn er eftirlitsmaður hérna við stífluna. — Yður þykir sjálfsagt skrítið að ég skyldi villast þarna seint um kvöld, sagði stúlkan, og þegar Meg kinkaði kolli hélt luin áfram: — Ég heiti Glenda Sommer. Okkur mann- inum mínum lenti í alvarlegum svarra í dag. Við eigum hús skammt frá Stakeley, og ég rauk út og vissi eiginlega ekki hvað ég gerði. En svo kom þokan yfir mig og ég vilitist og ráfaði um þangað til leið yfir mig. — En þetta er meira en heil míla! sagði ég. Þér hljótið að liafa verið orðin uppgefin. Unga stúlkan settist upp og setti fæturna fram á gólfið. — Ætli ég verði ekki að fara að hypja mig hcim. Meg ýtti lienni niður á koddann aftur. — Þér megið ekki fara strax, sagði hún. — Það er hánótt. En nú skal ég segja yðtir hvað við skulum gera. Ég get símað til mannsins yð- ar, svo að hann geti komið og sótt yður. Hann er eflaust dauðhræddur um yður. Það kom harðneskjusvipur á stúlk- una og hún hristi höfuðið. — Lofum honum að vera hræddur, sagði hún reið. — Það verður þá kannske til þess að hann liugsi um mig, í fyrsta skipti í sex mánuði. Við vorum að rífast um ]iað. Ég sagði honum að hann hugsaði meira um starfið sitt en um mig. Hann er læknir og hefir aldrei tíma til að sinna mér. Alan hélt að ég yrði ánægð ef hann gæfi mér mikið af falleguin fötum og bif- reið. Hann skilur ekki að ég er cin- mana eins og hornreka þegar hann er burtu allan daginn og ég hefi ekk- ert til að taka mér fyrir hendur. Ég cr vön að hafa eitthvað fyrir stafni. Ég var hjúkrunarkona áður en ég giftist. En Alan vill hafa konuna sína eins og hverja aðra stofuprýði. Hún ieit til Meg og þreif i höndina á henni. — Viljið ])ér hjálpa mér, frú Hallas? spurði hún biðjandi. — Ég liefði gaman af að eiga lieima á svona stað um tíma — ef þér viljið þá hafa mig. Ég — ég skal borga yðnr vel. Þá gæti ég kannske áttað mig á hvað er að gerast. — Það er ómögulegt að þetta sé svo alvarlegt, sagði Meg. — Þér eruð bara rcið manninum yðar ennþá — við erum það allar, við og við — en svo lagast ]>að alltaf þegar frá liður. Unga stúlkan hristi höfuðið og brosti ofurlítið. — Ég hefi heyrt það fyrr, sagði hún. — En við Alan erum komin að krossgötum núna. Starfið hans — sjúkrahúsið — er honum fyr- ir öllu. Ég skil það núna, og mig langar til að verða hérna um stund og átta mig á þessu öllu. Viljið þér lofa mér að vera? Meg hugsaði sig um. Var það rangt af henni að taka afstöðu í þessu máli? Það var erfitt að standast þetta biðj- andi augnaráð. -— Já, vitanlega vilj- um við lofa yður að vera, sagði hún. — Við skulum reyna að láta fara vel um yður, en ég er hrædd um að yður leiðist hérna, því að þér eruð betra vön. Mér fyrir mitt leyti finnst gaman að hafa einhvern félagsskap. —• Hjartans þakkir! Unga stúlkan þrýsti að hendinni á henni. — Þér eruð prýðis manneskja, sagði hún lágt. NÆSTU dagana féll Glendu betur og betur þarna á bænum. Hún neitaði að hafa samband við manninn sinn, og það líkaði Meg illa, en að öðru leyti þótti henni vænt um að hafa Glendu. Bæði Sam og Tilly litla voru hrifin af lienni. Meg stóð í dyrunum og varp öndinni er hún sá Glendu og Tilly vera að leiðast úti í móa. Ef Glenda hefði átt barn mundi lífið hafa orðið henni miklu léttara. Meg var að reyna að gera sér grein fyrir hvers konar maður Alan Sommer eiginlega væri. Það eina sem Glenda hafði sagt lienni um hann, var að •hann væri níu árum eldri en hún. Meg óskaði að hún mætti sima til hans og segja honum hvar Glenda væri, og að hún væri í tryggum hönd- um, en hún hafði gefið Glendu dreng- skaparorð og hún nnindi aldrei fyrir- gefa henni ef maðurinn hennar kæmi allt í einu til að sækja hana. Einn morguninn þegar Meg kom upp til að vekja Tilly, var barnið hágrátandi. — Mér er svo illt i mag- anum, mamma, sagði telpan og bar sig illa. — Þá skaltu liggja i rúminu, væna mín, sagði Meg hughreystandi. En það var kviðasvipur á henni er hún kom niður aftur. — Tilly er eitthvað veik, sagði hún við Glendu og Sam. — Ég vona að það sé ekki neitt alvarlegt. — Líklega ekki nema kvef, sagði Sam. En Glenda stóð strax upp. — Ég skal líta upp til hennar, sagði hún. — Kannske ég geti sagt þér hvað þú átt að gera við hana. Meg fór með henni, og þótti gotl að Glenda skyldi vera hjúkrunarkona. Býlið var afskekkt og ef Tilly væri

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.