Fálkinn - 20.02.1959, Side 14
14
FÁLKINN
»/ ^ tllÍ; " ^ **|f||bé
f7 Hjuíi7 ‘r* ■V'
TVEIR KARLMENN,
ÞRJÚ TÍGRISDÝR.
EIN KONA OG
Frh. af bls. 9.
Hún lét sig síga í höndum Steggins.
Hann linaði á takinu augnablik — en
þá slcit hún sig af honum, liörfaði
skref aftur á bak og lét svipuhöggin
dynja á andlitinu á hrottanum.
FALLBYSSUBÁTURINN Tuscona úr
ameriska flotanum hefir saumfarið
leitarsvæðið i tuttugu tíma án þess
að finna brak eða lifandi fólk úr
horfnu flugvélinni. Allt i einu sést
frá skipinu mjór reykjarstrókur út
við sjóndeildarhringinn. í kikinum
sést óljóst blettur, sem gæti verið
strönd — kórallarif eða smáhólmi.
Ómögulegt að segja hvað það er. Ekk-
ert nafn á kortinu i þessa átt. Best,
að athuga þetta samt. Þegar fer að
skyggja kemur í ljós bál í fjörunni.
Skipið færir sig varlega nær, best að
fara varlega ekki vert fyrir herskip
að ónáða einhverja villimenn þarna
að óþörfu. Bát cr skotið út, með leit-
arljósið kveikt. Og þá sést ýmislegt
merkilegt:
Skammt fyrir ofan fjöruna liggur
brak úr flugvél. Og tvö pálmablaða-
skýli skammt frá. Maður er á leiðinni
milli skýlanna. Hann nálgast stærra
skýlið og er alltaf að fleygja einhverju
frá sér úr stórri blikkdós. Á eftir
manninum koma þrjú stór tigrisdýr.
Þau glefsa eftir þvi, sem maðurinn
fleygir — líklega er það eitthvað mat-
arkyns. Um leið og kastljósið lendir
á manninum er svo að sjá sem honum
fallist hendur: hann fleygir blikk-
dósinni frá sér og tekur báðum hönd-
um fyrir andlitið. Tígrisdýrin koma
nær, i stórum stökkum. Kvendýrin
tvö éta það sem var í dósinni, en
karldýrið tekur stökk áfram og ræðst
á manninn, urrandi og öskrandi.
Einn liásetinn í bátnum miðar
byssu. f söinu svifum kemur stúlka
út úr skýlinu. Iíún er með skamm-
byssu í hendinni. Tveir sknthvellir
heyrast samtímis. Karldýrið rekur
upp öskur og sleppir takinu á limlest-
um manninum, sem einu sinni hét Art
Steggins.
Áður en hásetinn gctur skotið aft-
ur hafa hin tígrisdýrin horfið inn í
skóginn. Liðsforingi stekkur fyrir
borð við þriðja mann og veður í
land ...
Stúlkan rekur upp fagnaðaróp og
kallar inn í skýlið:
— Paul! kallar hún. — Paul, við
erum frelsuð!
JOHANNES XII. Frh. af bls. 3.
feril eigi liann að baki sér. Hann var
sendiherra páfa i Balkanlöndum og
við Miðjarðarhafsbotn í 20 ár og síð-
ar í Paris, þangað til hann varð
kardínáli og patríark árið 1953.
Almenna athygli vakti hann ekki
fyrr en 1956 að hann tók í lurginn á
ungum kaþólskum mönnum, sem
beittu sér fyrir því að kristilegi flokk-
urinn í Ítalíu tæki upp samvinnu við
Pietro Nenni og stjórnmálaflokk lians.
Nýi páfinn fæddist í koti í Bergano
í Norður-Ítalíu 25. nóv. 1881. Foreldr-
ar hans voru fátækt bændafólk. Hann
tók prestvígslu árið 1904 og varð svo
ritari biskupsins í Bergamo. í fyrri
heimsstyrjöldinni var hann lierprest-
ur. En árið 1925 hófst stjórnmálafer-
ill hans og hann var skipaður legáti
páfans í Búlgaríu og síðar í Hellas
og Tyrklandi. Hann talar búlgörsku,
frönsku, spönsku, ítölsku og latínu.
Þegar hann var gerður kardínáli
1923 þótti það viðburður að tyrkneska
stjórnin sendi honum heillaósk. Árið
1944 bað de Gaulle, sem þá var for-
Lárétt skýring:
1. sljóvga, 5. vömb, 10. ólifnaði, 11.
sæmdina, 12. tónn, 14. ljósker, 16. við-
bit, 17. tveir eins, 19. planta, 21. þrír
eins, 22. tónn, 23. nös, 24. málhelta,
26. kvenheiti, 28. gys, 29. trítlar, 31.
látbragð, 32. fiskur, 33. silln, 35. sama
og 15 lóðrétt, 37. hljóðst., 38. fanga-
mark, 40. snotur, 43. laun, 47. eftir-
læti, 49. gufu, 51. karlmannsnafn (ef.),
53. eign, 54. tindur, 56. tik, 57. þrír
eins, 58. flokkur, 59. mánuður, 61.
tímatákn, 02. samhljóðar, 63. drykkur,
64. umhúðir (útl.), 66. samhljóðar, 67.
ólátast, 09. spunatæki, 71. ákafir, 72.
ilmar.
Lóðrétt skýring:
1. tónn, 2. stafur, 3. velgja, 4. þukla,
6. lánsamir, 7. úrgangur, 8. kvenheiti,
9 fangamark, 10. myrkur, 12. kjass,
13. sópa, 15. röskun, 16. ópera, 18.
steinn, 20. þvaður, 23. mun, 25. virð-
ing, 27. ölíkir, 28. vörumerki, 30. korta,
32. sóði, 34. sambandslieiti, 36.
almanak, 39. á lykli, 40. hjarta, 41.
skjálfa, 42. útbúnaður, 43. lagfæring,
44. sarg, 45. örlagadis, 46. yfirbragð,
48. spranga, 50. fangamark, 52. gas-
tegundir, 54. men, 55. skögardýr, 58.
löngun, 60. ílát, 63. þvaður, 65. ferð-
ast, 68. upphafsst., 70. ijiróttafél.
LAUSN Á SÍÐUSTU IÝROSSGÁTU.
Lárétt ráðning:
1. krapi, 5. Hekla, 10. þvala, 11.
iþrótt, 13. sú, 14. sina, 16. skúm, 17.
RS, 19. ess, 21. NNN, 22. KAS, 23. fet,
24. stór, 26. Agnar, 28. lóga, 29. sakka,
31. rót, 32. kúrir, 33. níska, 35. tólin,
37. IY, 38. SA, 40. fenna, 43. skurk,
47. alinn, 49. nöp, 51. firra, 53. Bern,
54. snark, 56. Fíat, 57. úið, 58. Áki,
59. eir, 61. ana, 62. IT, 63. ýriir, 64.
krón, 66. GR, 67. illar, 69. Nanna, 71.
varna, 72. barna.
Lóðrétt ráðning:
1. KV, 2. ras, 3. alin, 4. panna, 6.
eikar, 7. krús, 8. lóm, 9. AT, 10. þústa,
12. tregi, 13. sessa, 15. angra, 16. skatt,
18. stara, 20. sókn, 23. fórn, 25. RKÍ,
27. NÓ, 28. lúi, 30. asinn, 32. klauf,
34. kyn, 36. ósk, 39. nábúi, 40. firð,
41. enn, 42. annir, 43. sprek, 44. rif,
45. kría, 46. latar, 48. leiti, 50. ÖA, 52.
ranga, 54. skurn, 55. kirna, 58. árar,
60. róar, 63. ýla, 65. NNN, 68. LV, 70.
NA.
sætisráðherra frjálsra Frakka, um að
legáti páfans í Frakklandi yrði kall
aður heim. Það var gert og Roncalli
sendur í staðinn.
Hann varð vinsæll í Frakklandi og
varð mikill vinur Vincent Auriol, sem
síðar varð forseti.
Síðan 1334 hefir enginn páfi notað
Jóhannesarnafnið. En þó er þaþ al-
gengasta páfanafnið í sögunni. Ekk
ert annað nafn hefir verið notað af
23 páfum. — Árið 1415 tók páfi einn
sér nafnið Jóhannes XXIII., en hann
var settur af og dó árið 1419. Hann
var aldrei viðurkenndur páfi og þess
vegna telst nafn lians ekki i páfa-
röðinni. Og síðan hefir enginn páfi
viljað taka sér Jóhannesarnafnið fyrr
en þessi.
Morguninn eftir kjörið talaði nýi
páfinn í útvarp til kaþólskra játenda,
þegna sinna um allan heim, en þeir
cru um 450 milljónir. Ræðan stóð 12
minútur og páfinn talaði aðallega um
eflingu friðarins. Páfinn flutti ræð-
una úr liásæti sínu í Sixtinsku kapell-
unni, en þar hafði hann gist nóttina
áður ásamt hinum 50 kardínálum.
Flutti hann ræðu sina á latinu og áð-
ur en athöfnin hófst kysstu allir
kardínálarnir hringinn á fingri hans.
Því er spáð að nýi páfinn verði ekki
til þess að marka nýja stefnu í stjórn-
málum. Kunnugir telja, að hann sé
eins konar „millibilspáfi“, kosinn út
úr vandræðtun. Þess vegna hafi
kardinálarnir valið svona gamlan
mann, til þess að fá frest til að koma
sér saman um kjör næsta páfa. Kvað
vera hreyfing fyrir þvi að brugðið
verði venju og kosinn páfi, sem ekki
er af ítölsku þjóðerni.
FÖGNUÐUR I BRIDGETOWN. — Dajinn eftir að hinir fjórir cnsku ævintýramenn, sein fóru í loftbelg vest-
ur yfir Atlantshaf, höfðu komist í land á Barbados við Venezuela, var þiim fagnað innilega í Bridgetown,
sem er stærsti bærinn á Barbados. Þeir höfðu látið í loft í farkosti sínum, sem hét’ „Þröngi heimur“, en ekki
komust þeir í lofti nema nokkurn liluta leiðarinnar frá Kanaríeyjum. Síðustu 2000 kilómetra sigldu þeir á haf-
inn. — Hér sjást ferðalangarnir í sigtrför um bæinn. Frá vinstri Colin Midie og Rosemary kona hans, Tim
Eiloart og faðir hans, Arnold Eiloart, sem var fararstjóri.