Fálkinn - 07.08.1959, Blaðsíða 2
2
FÁLKINN
tfukin Atarfoemi /.cýtleiía
Við samanburð á niðurstöðutöl-
um fyrstu sex mánaða ársins 1959
og sama tíma í fyrra, kemur í ljós,
að starísemi Loftleiða hefur farið
mjög vaxandi. Farþegaflutningar
hafa aukizt um 34.5% og reyndist
fjöldi farþega nú 15.037, en í fyrra
11.181. Vöru- og póstflutningar
hafa einnig aukizt og sætanýtingin
reyndist nú betri en í fyrra, eða
71,7% í stað 64,5% fyrstu sex mán-
uði ársins 1958.
Loftleiðir halda nú uppi áætlun-
arferðum milli New York og 10
borga í Evrópu, Reykjavík, Staf-
angurs, Oslóar, Gautaborgar, Kaup-
mannahafnar, Hamborgar, Lux-
emborgar, Amsterdam, Glasgow og
Lundúna.
Mjög annríkt er nú hjá félaginu
um þessar mundir og flugvélar þess
þéttsetnar á öllum leiðum.
ísleifur Sumarliðason skógarvörður í Vaglaskógi sést hér með
einn af girðingarstaurunum, sem skógarhöggið þar hefur gef-
ið af sér.
Sigríður Þorvaldsdóttir, sem kos-
in var fegurðardrottning íslands á
síðasta ári, fór til Ameríku í júlí
s.l. og tók þátt í úrslitunum um tit-
ilinn „Miss Universe“. Úrslita-
keppnin íór fram á Long Beach,
eða svonefndum Langasandi í Kali-
forníu.
Sigríður var ein í hópi þeirra
fimmtán stúlkna frá ýmsum lönd-
um, er þátt tóku í úrslitunum, en
ekki er að öðru leyti getið um hvar
í röðinni af þessum fimmtán hún
er, enda ekki gefin upp röðin í
nema fyrstu fimm sætunum. Það
var ungfrú Japan, sem fór með sig-
ur af hólmi. ,
Þess má að sjálfsögðu geta, að
Sigríður kom fram í ýmsum út-
varps- og sjónvarpsþáttum sem
fulltrúi íslands og við ýmis önnur
tækifæri. Var það rómur allra, að
framkoma Sigríðar hefði verið með
ágætum, og hún landi sínu til hins
mesta sóma.
Einar Jónsson framkvæmdastjóri
fegurðarsamkeppnanna hér á landi,
fylgdi Sigríði til New York og var
henni til leiðbeiningar þar. Gat Ein-
ar þess, þegar hann kom til baka,
að hann hefði náð samkomulagi
um, að keppnin um titilinn „Ung-
frú Evrópa“ fari fram hér á landi
á næsta éri. Ef af því verður, þarf
vart að fara í grafgötur með, að fátt
annað mun vekja meiri athygli á
hinni fámennu þjóð vorri.
Hér sést Sigríður Þorvaldsdóttir stíga út úr flugvélinni, klædd
íslenzkum skautbúningi, er komið var til Langasands. — Og
þrátt fyrir „12 mílurnar" þá hafa forlögin hagað því þannig,
að það er ungfrú England, sem er með henni á myndinni.
Skógrœká liér á lan<li íler^ir niikiá frain
Þeim íslendingar fjölgar með ári
hverju, sem vinna að því að klæða
landið skógi. íslendingar framtíð-
arinnar eiga eftir að lifa þá stund,
að landið verði á ný skógi klætt,
og ekki aðeins að skógar þessir
verði til fegurðar og yndisauka, á-
samt skjóli fyrir annan gróður.
Heldur munu framtíðarskógar ís-
lands geat gefið af sér þær tekjur,
sem ræktaðir skógar eru öðrum
þjóðum.
Verður brautriðjendum skóg-
ræktar á ísiandi aldrei ofþakkað
það starf, sem þeii hafa lagt af
mörkum. Þó munu þessir menn
vart eiga aðra þakklætisósk en þá,
að enn bætist við hóp þann, er vill
leggja skógræktinni eitthvað af
mörkum, því vinnukraft vantar til
að nýta allar þær plöntur, sem nú
eru ræktaðar í skógræktarstöðvum.
SIGRÍÐUR ÞORVALDSDÓTTIR,
FEGURÐARDRDTTNING
kotnst i úrslit ú Lanyasantii
Kópurinn á myndinni er glettinn á svipinn og líklega er það
af því að hann þykist viss um að ungu mennirnir öfundi hann
af atlætinu, sem hann á hjá ungu stúlkunni.