Fálkinn - 07.08.1959, Page 3
FÁLKINN
3
é^itt lític) ópjaíl
ykkur dettur í hug hér syðra! Eg
las það í Mogganum í morgun, að
einhver hefði verið kominn með
kálf upp á fjórðu hæð hjá sér.
Já, ég sá það nú líka. Þetta þótti
nú líka í frásögur færandi.
Nei-nei, þið eruð öll meira og
minna klikkuð eins og gæinn mundi
hafa sagt.
Ekki segi ég það nú. Það er margt
ágætisfólk hér.
Já, ég veit um einn, aðeins einn.
Hann Kjartan brunamann, enda er
það maðurinn, sem ég ætlaði að
tala við. Eg hef nefnilega tillögu
fram að færa við hann, svo veiði-
bjallan hætti alveg við að pakka i
sig öndunum hans Kjartans á
Tjörninni.
Hans Kjartans á Tjörninni?
Nei, ég meinti auðvitað öndun-
um á Tjörninni, sem honum Kjart-
ani er svo annt um.
Já, nú skil ég þig. Og hvernig er
þessi tillaga?
Eg vil að hann Kjartan komi öll-
um öndunum í málaskóiann hans
Einars Pálssonar, þar sem þeim
verði kennt að segja Krunk-krunk
í staðinn fyrir bra-bra og vittu þá
til, veiðibjallan mun sko ekki þora
að snerta við þeim.
Heldurðu að þetta takist?
Ja, það drepur engann að reyna
það. Hann Kjartan ætlar að skreppa
hingað á eftir, þegar hann er bú-
inn að slökkva í einum eða tveim-
ur húsum eða svo.
Eg má ekki vera að þessu rabbi
lengur. Segðu mér áður en ég fer,
hvernig kanntu við að vera eini
hvíti hrafninn á íslandi?
Prýðilega, en ef ég á að segja
þér allan sannleikann, þá býst ég
ekki við að vera það mjög lengi
því ég er nefnilega ekki raunveru-
legur hrafn. Eg er kóngssonur í
álögum.
Ne, nei, er það satt?
Já, blákaldur sannleikur. Og ég
býst við að losna úr álögunum þá
og þegar.
Hvernig geturðu það?
Eg losna úr álögunum, ef að ung
stúlka horfist í augu við mig og
segir: Gvuð, mér finnst hann sætari
en Elvis Presley.
essg.
fi tyólenfiiftjuv ejjtir al Ceria keirnAfrœg koikmifnfiaótjatna ?
PÉTLR RÖGIMVALDSSON LEIKLR í HOLLYWOOD
Eg labbaði mig niður í bæ einn
morguninn og kíkti inn í Miðbæj-
arbarnaskólann til að hafa smávið-
tal við hvíta hrafninn, sem þar var
til sýnis.
Eg hélt að sjálfsögðu, að hann
mundi taka á móti mér með:
Krunk-krunk, en það var nú al-
deilis ekki. Um leið og ég kom
inn um dyrnar sagði hann: Hvaða
slúbert er nú þetta?
Slúbert? sagði ég alveg stein-
hissa. Hvar hefurðu lært þetta?
Það voru tveir gæjar hérna áð-
an, sagði þá krummi, og tvær fís-
ur með þeim, sem töluðu, maður!
Báðu mig að splæsa í kollu með
sér, hvort ég fengi ekki allt skæsis,
sem kæmi inn við innganginn.
Ja, þú ert svei mér hermikráka,
að læra reykvískuna á nokkrum
mínútum.
Þetta er enginn vandi blessaður
góði. Eg get lært hvað sem er, mað-
ur er svo sem ekki hvítur fyrir
ekki neitt. Þeir héldu hérna vestur
í Ólafsvík, að ég væri sofandi, þeg-
ar þeir gómuðu mig, en þar brást
þeim bogalistin, Ólsurunum, enda
aldrei verið sterkir í dýrafræðinni.
VIÐ
HVÍTA
HRAFNINN
Nú, varstu ekki sofandi?
Nei-nei, ég lygndi aðeins augum.
Eg var að ráða krossgátuna í Mánu-
dagsblaðinu og vantaði belju í þol-
falli með þremur stöfum.
En því reyndirðu ekki að fljúga
burtu, þegar þeir komu að þér?
Eg vissi ekki alveg hvað þeim
bjó í brjósti. Heldurðu, að ég hafi
ekki vitað að þeir mundu fara með
til Reykjavíkur og sýna mig fyrir
peninga. Það er ekki til sá skratti,
sem ekki er hægt að plata Reyk-
víkinga til að horfa á fyrir peninga.
Svo þig hefur langað til Reykja-
víkur?
Já, ég þurfti að hitta mann hér.
En af hverju flaugstu þá ekki
hingað fyrir löngu?
Eg nennti því skal ég segja þér
ekki, svo veit ég ekki nema hann
Lárus Salómonsson hefði skotið mig
í staðinn fyrir veiðibjöllu, ég er jú
hvítur eins og þú sérð.
Já, þess vegna er maðui' nú hér,
að horfa á þig.
Já, þú ert einn bjálfinn. Það, sem
Þær fregnir hafa borizt til lands-
ins, að Pétur Rögnvaldsson, sem var
landskunnur frjáls-íþróttamaður, sé
farinn að leika í kvikmyndum í
Hollywood.
Leikur hann eitt af aðalhlut-
verkunum í kvikmynd, sem verið
er að gera eftir hinni heimsfrægu
sögu Jules Verne, sem kom út á
íslenzku undir nafninu „Leyndar-
dómar Snæfellsjökuls".
Aðalleikarar myndarinnar eru
hinn brezki leikari James Mason,
kvikmyndadísin Arlen Dahl og
dægurlagasöngvarinn Pat Boone,
sem hefur leikið í nokkrum kvik-
myndum með allgóðum árangri.
Að sjálfsögðu varð Pétur að
skipta um nafn, því nöfn kvik-
myndaleikara verða auðvitað að
vera þjál í munni. Var reynt
að draga síðara nafn hans saman
og fyrra nafni hans var auðveld-
lega breytt yfir á ensku, þannig, að
hér eftir mun Pétur heita Peter
Ronson á kvikmyndatjaldinu. Hef-
ur Pétri verið boðinn kvikmynda-
samningur til nokkurra ára. Má
með sanni segja, að þetta sé mesti
frami, sem íslendingi hefur boðizt
á þessu sviði.
★
★
★
Hér sést atriði
úr mynd þeirri,
sem Pétur Rögn-
valdsson leikur í.
Eru þeir í iðrun
jarðar, hann og
Pat Boone. Pétur
er með önd í
henndinni og
mun önd þessi
koma nokkuð við
sögu í kvik-
myndinni.
★