Fálkinn - 07.08.1959, Qupperneq 4
4
FALKINN
Maria Gabriella prinsessa og „biSill“ hennar, sjahinn af Persíu,
Mohammed Reza Pahlevi.
MARÍA JOSÉ, síðasta drottning
ítala býr í útlegð í Merlinge-þorpi
skammt frá Genéve, með börnum
sínum tveim: Mariu Gabriellu og
Vittorio Emanuele. Hjá þeim bar
að garði í desember s.l. óvæntan
gest: spjálfan sjahinn af Persíu.
Hann hafði ekki gert boð á undan
sér og Maria fyrrum drottning var
alveg óviðbúin að taka á móti hon-
um. Það kom fum á hana og hún var
vandræðaleg er hún sá sjahinn
koma inn í stofuna. En grunað mun
hana hafað hvert erindi hann ætti.
Því að blöðin höfðu verið að hafa orð
á því nokkra mánuði á undan, að
sjahinum litist vel á Mariu Gabri-
ellu dóttur hennar. Þó hafði hún
ekki tekið neitt mark á þeim frétt-
um fyrr en hún sá sjahinn koma inn
í stofuna.
Hvernig átti hún að snúa sér í
þessu? Hverju átti hún að svara?
Sjahinn Mohammed Reza Pav-
levi er heillandi og býður af sér
góðan þokka — og það veit hann
sjálfur. Það er sagt að hann hafi svo
mikið persónulegt aðdráttarafl, að
enginn geti staðist það ef hann vill
beita því. Hann er siðmenntur í
bezta lagi og jafnframt mjög um-
svifalaus og blátt áfram. Þúsundir
ungra stúlkna um allan heim elska
hann, þó aldrei hafi þær séð nema
mynd af honum. Hvernig var því
varið með Mariu Gabriellu? Mundi
hún ekki verða örvita af ást á einu
aunabliki?
Og svo datt drottningunni fleira
i hug: Raunasaga sjahsins. Skilnað-
ur hans og Sorayu eftir sjö ára ást-
ríkt hjónaband, skilnaðurinn við
fyrri konuna, Fawsiu Farúkssystur,
sem nú var ekki annað en skuggi
og flestum gleymd. Tvívegis hafði
sjahinn orðið að fórna konunum
sínum vegna kröfu þeirrar, sem
konungstigninni fylgdi: að eignast
ríkiserfingja. Mundi hann ekki gera
það í þriðja skiptið ef nauðsyn
krefði?
Hjónaband múhameðsjátenda er
ekki eins heilagt og það er í ka-
þólskum sið. Það er ekkert sakra-
menti heldur aðeins athöfn, sem
gefur eiginmanninum rétt til að
þrælka konuna sína.
Tveim dögum síðar kom sjahinn
aftur til Mariu José, hélt síðan til
Geneve og 11. des. fór hann til Te-
heran án þess að hafa fengið úr-
slitasvar við bónorðinu. Auk allra
lúxusbílanna, sem höfðu tekið á
móti honum þegar hann kom til
Genéve var nú einn kominn í við-
bót þegar sjahinn ók á flugvöllinn.
Og í þeim bíl var hinn ungi prins
Vittorio Emanuele.
Þegar sjahinn kvaddi hann ítrek-
aði hann heimboð sitt: Prinsinn
yrði að koma til Teheran um nýjár-
ið og taka þátt í veiðiför ....
Nokkrum dögum síðar fór Maria
Gabriella til London til að hitta föð-
ur sinn, en Maria José og Vittorio
fóru til Bruxelles til þess að dvelja
um jólin hjá Elizabeth móður Mariu
José. Hín fyrrverandi Ítalíudrottn-
ing er sem sé dóttir Alberts Belga-
konungs, og systir Leopolds III.
Vitanlega var mikið rætt um
hvað lægi bak við för Vittorio prins
til Teheran. Átti hann að kynna sér
lífið í íran og segja systur sinni
álit sitt? En þegar hann kom heim
úr ferðinni sagði hann að þetta
hefði aðeins verið kurteisisheim-
sókn. Hann hafði verið gestur kon-
ungsins eina viku og tekið þátt í
vísundaveiðum. Sjahinn gaf honum
byssu og með henni skaut hann þrjú
dýr. Hann flaug einnig í þotu, sem
sjahinn stýrði sjálfur, og komst
alla leið upp að Kaspíahafi.
Maria Gabriella með ýmsum námsfélögum sínum í háskólanum í
Genevée.
Maria Gabriella með gítarinn sinn.
IJann var stórhrifinn af því sem
hann hafði séð í Persíu og hafði
komist að raun um að sjahinn væri
mjög vinsæll af þjóð sinni. Hann
kynntist allri fyjölskyldu sjahsins og
hún hafði verið honum einstaklega
geðþekk.
TVENN TRÚARBRÖGÐ.
Eftir nokkurra vikna umhugsun
félst Maria José á að veita blaða-
mönnum viðtal. Hún játaði að
sjahinn hefði beðið dóttur sinnar,
en það var auðheyrt að hún hafði
áhyggjur af þessu. Hún hafði lagt
af og elzt á nokkrum vikum.
Trúmálin voru erfiðasti þröskuld-
ur í málinu, sagði hún. Sjahinn var
múhameðssinni og Maria Gabriella
Þrátt fyrir tvö óláns-hjónabönd er Persasjah enn far-
inn á stúfana og biður sér konu, enda er þess krafizt
af honum, að hann sjái landinu fyrir ríkiserfmgja. Með
fyrri konunni átti hann dóttur, en sú síðari gat ekki fætt
honum barn. — Nú hefur hann beðið Maríu Gabriellu
José drottningar.
eaav'
S JA iíiAA
U MARÍU GABRIELU