Fálkinn - 29.01.1960, Síða 9
FÁLKINN
9
hrollköld. — Er það mögulegt að
þér hafi eitt einasta augnablik dott-
ið í hug að ég. . .. að ég væri i
þingum við Jan Howland? Ég neyð-
ist til að benda þér á að ég er eng-
in.... götustelpa!
— Þú ert vafalaust ekki svo
heimsk að þú skiljir ekki hálf-
kveðna vísu, sagði Peter Morris, —
og þú verður að fara snemma á
fætur ef þú átt að hugsa til að snúa
á mig. En það er eitt enn, sem ég
verð að fá svar við. Segðu mér —
kemur Jan Howland hingað og
heimsækir þig, þegar eg er ekki
heima?
Annabel brosti vorkunnsamlega.
— Eiginlega ætti ég alls ekki að
svara þér, sagði hún, — því að þú
talar við mig eins og ég væri glæpa-
maður. En ég fyrirgef þér, vegna
þess að ég sé að þú ert blátt áfram
afbrýðisamur. En ég skil ekki hvers
vegna þú hefur orðið það, því að
ég hef ekki gefið neina ástæðu til
þess. Peter, þegar við stóðum
frammi fyrir prestinum, gaf ég lof-
orð, sem mér hefur aldrei komið til
hugar að svíkja. Og ég hef aldrei
svikið það, þó að þú hafir síðustu
árin farið með mig eins og. . . . eig-
um við að segja: eins og þér hefur
þóknast. Ef þú ert að reyna að
finna ástæðu til að skilja við mig,
þýðir þér ekki að leita hennar hjá
mér. Ég skal fúslega gefa þér eftir
skilnað, ef þér er það áhugamál,
en þá verður þú að taka á þig sök-
ina einn. En reyndu nú að halda-
þér við jörðina! Jan Howland hefur
aldrei komið á þetta heimili, og ég
hef ekkert aðhafst á bak við þig,
sem ég þarf að skarpmast mín fyrir.
Annabel lagðist út af. Hún var
alveg róleg er hún rétti út höndina
til að slökkva á náttborðslampan-
um.
— Viltu nú ekki gera svo vel að
fara, mig langar til að sofa, sagði
hún.
Peter snerist á hæli án þess að
segja orð, og lokaði hurðinni á eftir
sér. Hún hristi höfuðið er hún
horfði á eftir honum, slökkti ljósið
og innan skamms svaf hún svefni
hinna réttlátu.
Peter Morris fór aftur niður í
bókastofuna. Hann titraði af æs-
ingi. Annabel laug, er hún sagði að
Jan Howland hefði aldrei komið
þar á heimilið! Hún hlaut að halda
að hann væri blindur! Hún skyldi
verða að láta í minni pokann þegar
hann léti þjóninn vitna á móti
henni. Hann skyldi auðmýkja hana
svo um munaði! Hann skyldi sparka
henni út úr húsinu án þess 'að láta
hana fá nokkurn eyri í bætur. Og
Jan Howland. . . .
Peter Morris reyndi að halda
aftur af hugarofsanum. Nei, hann
ætlaði ekki að fara svona að þessu.
Hann ætlaði að hefna sín með öðru
móti. Það skyldi verða grimmileg
hefnd! Jan Howland skyldi fá að
týna lífinu, því að á þann hátt varð
hefndin á Annabel enn sárari....
Peter Morris opnaði vínskápinn
og tók koníaksflöskuna og setti
hana á skrifborðið. Glott lék um
varir hans meðan hann var að leita
í skrifborðsskúffunni. Hann leitaði
lengi, en loks fann hann það, sem
hann var að leita að. Hann horfði
íhugull á fjögur smáglös í pappa-
öskju. Þau voru með tappa og
gúmmíhettu yfir. Hann opnaði eitt
glasið og súra gufu lagði úr því að
vitum hans.
Hann brosti aftur. Þetta mundi
verða síðasta koníaksglasið sem
Jan Howland drykki hérna á heim-
ilinu cg. . . . annarsstaðar.
Peter Morris helti úr glasinu í
koníaksflöskuna og hristi hana
rækilega. Vatnstær vökvinn breytti
ekki litnum á koníakinu, og bragðið
mundi ekki finnast heldur. Tóma
glasið lét hann í öskjuna og stakk
henni í vasann. A morgun ætlaði
hann að skiija öskjuna eftir í efna-
rannsóknarstofu verksmiðjunnar.
Jan Howland mundi fá hægan
dauðdaga. Hann mundi sofna
tveimur mínútum eftir að hann
drykki úr koníaksgiasinu, og eftir
tvær mítútur þar frá, mundi hjartað
hætta að slá. Læknirinn mundi úr-
skurða að hann hefði fengið hjarta-
slag.
Peter Morris stóð upp, setti
koníaksflöskuna inn í vínskápinn
og læsti honum vandiega. Svo sett-
ist hann við skrifborðið aftur og
hringdi bjöllu, til að kalla á þjón-
inn.
Peter Morris stóð með gleiða fæt-
ur og höndurnar fyrir aftan bak
fyrir framan arininn. Það var leyfi-
legt að tryggja sig gegn þjófum,
hugsaði hann með sér og hló kald-
ranalega. Kannske mundi grunur-
inn falla á Annabel, ef eitrið upp-
götvaðist í koníaksflöskunni, en
ekki kom honum það við. Hann
var öruggur fyiúr öilum grun.
Þungur vörubíll brunaði fram
hjá á fullri ferð, og Peter Morris
fann hvernig góJfið skalf undir fót-
um hans. En í sömu svifum heyrðist
ískrandi hljóð, líkt og þegar langur
nagli er dreginn út úr seigum eik-
arplanka.
Peter Morris fann ósjálfrátt að
hætta var á ferðum og vatt sér til
hliðar. En liann var ekki nógu
fljótur. Þungi riddaraskjöldurinn,
sem hékk yfir arninum datt ofan og
lenti á Imaltkanum á honum. Hann
hröltic áfram, datt á hrammana á
gólfið og missti meðvitundina. .. .
Þjónninn kom inn i stofuna að
vörmu spoi'i. Hann liorfði með
skelfingu á Peter Morris og hélt
fyrst í stað að hann væri dauður.
En svo kom hann auga á skjöldinn
og skildi þá hvernig í öllu lá. Hann
hljóp til Morris og lyfti honum upp
í sófann. Og svo hljóp hann að vín-
skápnum, dró lyklakippuna upp úr
vasanum og tók fram koníaksflösku
og las. Hann hellti fullt glasið og
liellti því ofan í Peter Morris.
Roði kom í fölar kinnar Morris
og hann þreifaði að hnakkanum á
sér. Þar hafði komið stór kúla eftir
skjöldinn.
Nú fór þjónninn að flýta sér. —
Hann setti flöskuna á sinn stað, og
læsti slíápnum. Og svo dró hann
varlega lyklakippu Morris upp
úr vasa hans og lagði hana á skrif-
borðið. Svo að nú gat hann svarað
spurningunni um hvernig hann
liefði komist í skápinn.
Þjónninn fór út með tómt kon-
íaksglasið í hendinni. Hann ætlaði
að ná í bakstur til að leggja við
kúluna á höfði húsbónda síns.
En Peter Morris þurfti aldrei á
bakstrinum að halda.
*
Dómarinn: — Hvað er skírnar-
nafnið yðar?
Stúlkan: — Anna-bríet, Carmen-
dáðfríð.
Dómarinn: — Og hvað eruð þér
kölluð dags daglega?
Stúlkan: — Stafrófið.
ERFITT AÐ STELA. — A bók-
fræðasafninu í Zdar-höll í Praha
er til sýnis bókasafn frá liðnum
dögum. Þar voru hinar dýru lat-
nesku bækur festar við hillurn-
ar með keðjum, svo að erfiðara
væri að stela þeim.
Það er stundum gott að fá ís.
DROTTNING HELDUR HEIM. — Corinne Roctschaefer, sýningarstúlka frá Amsterdam, sem
var kjörin „Miss World“ í London, sést hér koma á Schiphol-flugvöllinn, klyfjuð blómum og
með silfurbikarinn mikla, sem hún fékk í verðlaun. Það eru systkin hennar, Jan 10 ára og
Liesje 13 ára, sem dást að bikarnum.