Fálkinn - 29.01.1960, Page 11
FÁLKINN
11
☆☆☆ litla sagan
Olíufundur
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
SLIM GAMLI HILTON hafði litla
ánægju haft af sonum sínum þrem.
— Hvorki Andri, Pési eða Dabbi
höfðu nokkurn tíma unnið ærlegt
handtak að því að halda búinu í
horfi, og eftir að móðirin sálaðist
höfðu þeir flýtt sér að ná sér í
vinnu inni í bæ, og látið Slim einan
um allt amstrið af búskapnum.
Gamli maðurinn hafði stritað
VÍtið þér ...?
að nú er auðvelt að fi'nna
æxli, hvar sem þau eru í
líkamanum?
Það er gert með tæki, svipuðu
því, sem sést á myndinni. Rússnesk-
ir eðlisfræðingar hafa símað þetta
tæki og er farið að nota það í sjúkra-
húsum í Moskva með góðum á-
rangri. Það eru radíóvirkir geislar,
sem segja til um hvar æxlið sé.
að „tsunami“ hreyfist með 800
km. hraða á klukkustund?
Tsunami er alþjóðlegt orð og
táknar flóðöldur, sem myndast við
eldgos neðansjávar eða jarðskjálfta
á hafsbotni. — Aldan er lág úti í
rúmsjó, en þegar hún rekst á strönd
eða grynningar, verður hún, vegna
hraðans, 25—35 metra há og getur
valdið stórslysum. Kemur þetta oft
fyrir við Kyrrahafsstrendur.
>f £itt ajf húerju >f
YAEL DAYAN - unga
stúlkan alvarlega
eins og hann gat, og búið var ekki
verr hirt en meðan strákarnir voru.
heima, en þetta var lýjandi og Slim
kominn yfir sextugt.
Það voru nær 5 ár síðan hann
hafði frétt nokkuð af strákunum,
en nú kom allt í einu bréf, undir-
ritað af öllum þremur. Þeir sögðust
ætla að koma í heimsókn eftir þrjár
vikur, allir 3.
Slim marglas bréfið. Hann átti
erfiða helgi í vændum. Hann vissi
hvernig Andri, Pési og Dabbi hög-
uðu sér, og hlakkaði ekkert til.
Tiltekinn laugardag rann bíll í
hlaðið, ekki beinlínis af nýjustu
gerð, og út stigu Andri, Pési og
Dabbi, sparibúnir og með mikil-
mennskuskip. Slim reyndi að brosa
til þeirra, en ekki brostu þeir á
móti.
Þeir hámuðu í sig matinn, en ekki
þökkuðu þeir fyrir hann. Á eftir
svipuðust þeir um og settu út á allt
sem þeir gátu, og Slim leið illa.
Sagðist ætla að leggja sig um stund.
Andri, Pési og Dabbi sátu í stof-
unni og létu sér leiðast. Þeir heyrðu
hroturnar í gamla Slim ofan af
loftinu.
— Það er bezt að athuga hvernig
lessið stendur hjá gamla mannin-
um, sagði Andri og dró út skrif-
borðsskúffuna.
Svo fóru þeir að skoða gömul
bréf og reikninga, og hvenær sem
eitthvað nýstárlegt kom í leitirnar,
las Andri upphátt.
Neðst í skúffunni fann Pési plagg,
sem hann las 3—4 sinnum áður en
hann rétti Andra það. — Líttu á,
sagði hann. Lestu!
Andri tók bréfið. Hann hleypti
brúnum.
— Olíulinda-skráning ríkisins,
las hann. — Hvað skyldi gamli mað-
urinn hafa saman við þá stofnun að
sælda?
— Lestu upphátt, sagði Pési. Og
Andri las:
— Moldarsýnishorn það, sem þér
senduð okkur, sýnist óvenju mikið
olíu-innihald, og verkfræðingar
okkar telja líklegt, að olíuæð muni
finnast á 8—10 metra dýpi.
— Þetta hefur hann aldrei finnzt
á við okkur, sagði Andri. — Við
skulum tala við hann. Og svo hlupu
þeir upp stigann.
— Hefurðu grafið eða borað eftir
olíu hérna? spurði Andri. Við sá-
um af tilviljun bréfið frá Olíulinda-
skrásetningunni.
Slim settist upp í bólinu, néri
augun og geispaði.
— Ég hef ekkert sinnt því, sagði
hann loksins. — Mig langar ekkert
til að býlið breytist í olíu-aursvað.
— Ertu band-sjóðandi hringavit-
laus! öskraði Pési. —- Hvar fannstu
sýnishornið?
Slim benti út um gluggann. —
Þarna í norðvesturhorninu á garð-
inum, milli stóra steinsins og aspar-
innar. En ykkur dettur varla í hug
að fara að umróta garðinum mín-
um?
Andri hló kuldahlátur. — Þú ætl-
ar varla að fara að neita sonum
þínum um að leita að olíu, þar sem
þeir eiga fullan rétt til að finna
hana. Komið þið strákar, fljótir nú!
Við læsum húsinu til vonar og vara.
Ef við gröfum duglega stöndum við
í olíu upp í hné um miðnætti.
Slim gamla hafði aldrei dottið í
hug, að svona mikil atorka væri í
> KVIKMYNDAÞINGIÐ í Cannes
? er mót, sem freistar ungra kvenna,
í sem vilja gera sér mat úr fegurð-
í inni og verða frægar. Og þær beita
Ív ýmsum brögðum til að vekja um-
tal og komast í blöðin, svo sem að
detta „óviljandi11 ofan í sundlaugar
eða missa niður um sig baðsloppinn,
þar sem blaðaljósmyndarar eru
nærri. „Margar heimsins girnis
■, glys.“
En á 6. hæð í Carlton Hótel í
* Cannes sat ung stúlka og furðaði
sig á þessu fávíslega háttalagi. Hún
hét Yeal Dayan, og komst fljótt að
raun um að þetta var alls ekki stað-
ur fyrir heilvita fólk.
Hún er rúmlega tvítug og hefur
í aldrei farðað sig. Hún er sólbökuð
Iog heilsugóð. Augun eru kvik og
eftirtektin næm, en drættirnir
kringum munninn sýna hvenær
henni mislíkar það, sem fyrir aug-
un ber. Hún er dóttir Moshe hins
eineygða, herstjóra í ísrael. Og það
er hún, sem hefur skrifað bókina
„Önnur ásjóna Ariel Rons“, sem
hefur verið prentuð í gífurlegum
eintakafjölda í New York, London
og París, og er nú að koma á mark-
aðinn sem kvikmynd. En í Jerú-
salem og Te! Aviv eru menn henni
sárgramir. Þeir líta svo á, að Yael
hafi óvirt ættjörð sína, fjölskyldu
sína og þá sérstaklega föður sinn —
hinn dáða hershöfðingja, sem er
þjóðhetja í ísrael.
Aðalpersóna sögunnar er kölluð
Ariel Ron, en engum dylst að það,
sem hún segir og reynir, á við Yael
\ sjálfa. Hún fæddist 1939 í Haifa. Þá
«J voru viðsjártímar í Landinu helga.
í[ Hún var ekki nema eins árs þegar
S móðir hennar var að fara með hana
[■ til fangelsis og láta hana klappa
föður sínum, sem var hnepptur þar
í inni. Þegar faðir hennar gerði at-
lögu að Egyptum við Sínai í októ-
í ber 1956 (út af Súez-deilunni), var
% hún aðeins 17 ára, og var stödd í
í Bandaríkjunum. Hún flaug strax
i, heim og gerðist sjálfboðaliði. Hún
strákunum. Hann stóð í glugganum
og sá hvernig þeir grófu dýpra og
dýpra, ataðir í for. Það fór að
dimma, en olíuleitarmennirnir settu
það ekki fyrir sig, en hömuðust á-
fram.
Slim fór að hátta og sofnaði von
bráðar.
Kl. 6 um morguninn vakti Andri
hann. Slim settist upp og horfði á
soninn, aurugan upp á haus.og renn-
votan.
— Það er ekki dropi af olíu
þarna, sagði hann. Þeir hafa logið
að þér, þessir verkfræðingar. Þarna
er bara vatn.
Slim geispaði. — Guði sé lof, sagði
hann. — Þá sleppur maður við ó-
dauninn af olíunni.
Andri, Péti og Dabbi fóru heim
til sín. Þeir vildu ekki staldra við
stundinni lengur.
Slim kveikti í pípunni sinni og
labbaði út að holunni.
reyndi að feta í fótspor föður síns,
en tókst það ekki. Eftir stranga
skólavist varð hún þó liðsforingi
og var látin þjálfa ungar stúlkur í
vopnaburði. En gamlir menn, sem
buðu sig fram, komust undir stjórn
hennar líka.
Eftir tveggja ára starf í hernum
var hún hreykin af afrekum sínum,
en skelfing einmana. Hún hafði í
rauninni liðið skipbrot. Henni
fannst hún mega til að skrifa opin-
berlega — skrifa um það, sem var
að brjótast og byltast í hug hennar.
í október 1958 fluttist hún á af-
skekktan stað í Bretagne, bjó þar
ein, matreiddi handa sér sjálf — og
skrifaði sí og æ. Þegar hún þráði
tilbreytingu hjólaði hún í næstu
verstöð og drakk glas af víni með
fiskimönnunum. í janúarlok hafði
hún lokið við bókina. Það var bók
um ungar stúlkur, sem höfðu horfzt
í augu við dauðann og lært að gráta.
Söguhetjan fer ekki dult með að
hún hatar herinn og hugsunarhátt
hermannanna. Hún hefur litið upp
til hins mikla herstjóra og þjóð-
hetju — föður síns — en hún fer
ekki í launkofa með, að hann hafi
aldrei talað vingjarnlegt orð við
sína nánustu. Hann var metnaðar-
fullur og þóttist meiri en aðrir
menn.
í Cannes seldi Yael Dayan kvik-
myndunarréttinn að bókinni ensku
félagi. Og svo flýtti hún sér á burt
úr þessari glysborg, sárgröm yfir
því, hve fólkið var heimskt og inn-
antómt.
Sjálf hefur hún fundið tilgang
lífsins, eins og síðasti kaflinn í sögu
hennar ber með sér. Eftir uppreisn-
ina gegn föður sínum, yfirvöldun-
um og þjóðremingnum í ísrael, ját-
ar hún í auðmýkt, að það, sem gefi
lífinu gildi sé jafn gamalt og grjót-
ið í Sínaí-fjalli.
LENGSTA MEÐVITUNAR-
LEYSI,
sem menn vita um, var yfirlið
Róberts Steger. Hann slasaðist í
verksmiðju í febrúar 1943 og lá á
Bethesda-spítala í Cincinnati og dó
þar í janúar 1952, án þess að hafa
fengið rænu aftur.
vvwwwwwwwwwwvwwwv
— Þetta er það sniðugasta, sem
mér hefur nokkurn tíma dottið í
hug, kumraði hann. — Að vísu
hafði ég talsvert fyrir því að ná í
brésefnið frá Olíulinda-skrásetn-
ingu ríkisins en það margborgaði
sig samt. Annars hefði ég aldrei
fengið þennan brunn.
-x
Hæverska
Frúin við gestinn: — Má ég ekki
bjóða yður kaffi?
— Ekki neitt kaffi.
— En eina köku?
— Enga köku.
— En tebolla?
— Ekkert te.
— En viskí og sódavatn?
— Ekkert sódavatn.