Fálkinn - 29.01.1960, Side 14
14
FÁLKINN
Adamson flytur stóra
kassann.
Geimflug
Framh. af bls. 6.
horn við miðjarðarbaug og með
þeim hraða, sem á hylkinu er breyt-
ir fljótt um útsýni. Von bráðar kem-
ur Afríka í ljós og svo Indlandshaf.
Svo kemur Ástralía, en eftir nokkr-
ar mínútur er geimfarinn kominn
framhjá henni. Eftir langt hopp yf-
ir Kyrrahafið, sem tekur 25 mínút-
ur, sést vesturströnd Ameríku og
bráðum kemur geimfarinn yfir Cap
Canaveral aftur, eftir að hafa farið
kringum jörðina á 90 mínútum.
En ferðin heldur áfram og geim-
farinn lætur nú til sín heyra með
loftskeytum og fær nýjar fyrir-
skipanir. í lok þriðju hringferðar-
innar, þegar hylkið er um 100 km.
fyrir vestan Californía byrjar geim-
farinn að nálgast jörðina aftur. Með
loftþrýstingi úr köfnunarefni hefur
hann snúið hylkinu þannig, að hann
snýr bakinu í áttina sem hann
stefnir í. Þetta er mikilsvert, því að
í þessum stellingum þolir hann bezt
það sem á reynir þegar hann er að
fara niður.
í glóandi hylki.
Nú er dregið úr hraðanum með
því að skjóta eldflaugum, sem verka
eins og hemlar. Hylkið sveigir úr
braut sinni og svífur í boga til jarð-
ar þegar hylkið er yfir Norður-Ame-
ríku. Flugið til jarðar reynir mest
á manninn og hylkið. Maðurinn
verður fyrir þrýstingi, sem nemur
fimmtánfaldri þyngd hans, þ. e. a.
s., hann vegur meir en eina lest,
og það er varla þægilegt. Hylkið
kringum hann verður rauðglóandi
af hita, svo að einangrunin innan
í hylkinu verður að vera í góðu lagi
til þess að maðurinn verði ekki að
ösku. Þegar hemlueldflaugurnar eru
útbrunnar á hraðinn á hylkinu að
vera kominn ofan í 1100 kílómetra
á klukkustund. — í 22 km. hæð yf-
ir jörðu er fallhlíf nr. 1 opnuð og
nú dregur úr hraðanum niður í 270
kílómetra. Og þegar komið er í
3000 metra hæð yfir sjó er fallhlíf
nr. 2 opnuð, og eftir áætlun á hylk-
ið svo að lenda í sjó 600 km. suð-
austur af Flórída, með 30 klíómetra
hraða. í sömu svifum kviknar á
reyksprengju og ljósum og þráðlaus
merki eru send til að leiðbeina um
lendingarstaðinn. Og von bráðar
tosar eitt hinna mörgu skipa, sem
send verða til að taka á móti geim-
faranum, hylkinu innanborðs!
Geim-hylkið Tilbúið.
Þetta er allt ofur auðvelt á papp-
írnum, en það er svo um það eins
og um fleira, að það er hægar ort
en gert. Það ræður að líkum að það
er vandasamt að framkvæma svona
áætlun, og það kostar margþættan
undirbúning. Því að það á svo að
heita, að geimfarinn verði ekki
sendur í ferðina, nema full vissa sé
fyrir því, að hann komi aftur hf-
andi! Full vissa? Allar þær mis-
heppnuðu tilraunir, sem gerðar
hafa verið með geimförin, freista
manns til að spyrja: — Hvenær
fæst sú fulla vissa?
Fjöldi geim-hylkja hefur þegar
verið smíðaður og prófaður á marg-
víslegan hátt. Sumum þeirra hefur
verið kastað úr flugvélum í mikilli
hæð til að reyna hvort fallhlífarnar
opnist á þann hátt sem ætlast er
til, og neyðarraketturnar með til-
heyrandi fallhlífum hafa líka verið
reyndar og árangurinn verið að ósk-
um.
— Discover-eldflaugarnar, sem
skotið hefur verið í nokkur ár, eru
liður í þessum undirbúningi Mer-
cury-áætlvmarinnar. Þar er reynt að
láta geim-hylki losna frá sjálfri rak-
ettunni og falla til jarðar óskemmt.
Þetta hefur ekki tekizt enn, þó að
stundum hafi gengið að óskum að
skjóta hylkinu. En það eru sjálf-
virku tækin á geimhylkinu, sem
hafa brugðízt, fallhlífarnar hafa
ekki opnazt. Er þetta talið stafa af
þeim miklu og snöggu hitabreyting-
um, sem verða á hylkinu. Það hef-
ur ekki tekizt að ráða bót á þessu
enn, og meðan það ekki tekst, er
það gambur og fimbulfamb að tala
um að senda menn út í geiminn. En
væntanlega tekst það, og þá er
Marcury-áætlunin komin nær
marki.
Braut geimhylkisins verður að
reikna út með afar . mikilh ná-
kvæmni, því að örlítil skekkja get-
ur til dæmis orðið til þess að hylki,
sem átti að lenda við Florída, lendi
í belgiska Congo í staðinn! Þess má
minnast, að hylkið frá Discoverer II
lenti á Svalbarða, en átti að lenda
við Havaii! Ef braut geimfarsins er
reiknuð nógu nákvæmlega á að
vera hægt að reikna út hvar það
lendir. Fjöldi athuganastöðva hef-
ur verið settur upp víðsvegar á
hnettinum, til að mæla hvernig
geimförin halda áætlun.
Hvar er svo kjarninn í öllu þessu:
geimfarinn sjálfur? Fyrir rúmu ári
voru 7 valdir úr 110 manna hóp,
sem gaf sig fram, og síðan hafa
þessir 7 verið þjálfaðir á allan hugs-
anlegan hátt til að búa þá undir
KroAAqáta 'JálkanA
ii
LÁRÉTT SKÝRING:
1. Sori, 5. Einfaldur, 10. Frægð,
11. Álitin, 13. Hljóðst., 14. Háð, 16.
Spaka, 17. Tala, 19. Leiði, 21. Sam-
bandsheiti, 22. Karlmannsnafn, 23.
Tötra, 26. Þunnmeti, 27. Verkur, 28.
Á fiski, 30. Forsetning, 31. Álögu,
32. Bráð, 33. Fangamark, 34. íþrótta-
fél., 36. Rusl, 38. Busl, 41. Skvamp,
43. Beittar, 45. Kvenheiti, 47. Flúð,
48. Fálátar, 49. Snöggur, 50. Drykk-
ur, 53. Ötulleika, 54. Fangamark,
55. Fljóta, 57. Óhljóð, 60. Fanga-
mark, 61. Fyrirgefning, 63. Ópera,
65. Uppþot, 66. Þáttur.
LDÐRÉTT SKÝRING:
1. Samhlj., 2. Nöldur, 3. Eftir
bæn, 4. Grein, 6. Beita, 7. Skömm,
8. Vætla, 9. Tónn, 10. Fúi, 12. Men,
13. Gróði, 15. Smávik, 16. Karl-
mannsnafn, 18. Skekkja, 20. Storms,
21. Tómt, 23. Eyja í Eystrasalti, 24.
Tveir eins, 25. Vorkennir, 28.
Óþokka, 29. Óhreinkar, 35. Þungi,
36. Deyfð, 37. Þrábiðja 38. Gletta,
39. Geð, 40. Drepa, 42. Ofreyna,
44. Samhlj., 46. Tæpt, 51. Ljúffengi,
52. Bindi, 55 Kvikindi, 56. Stefna,
58. Skyldmenni, 59. Á litinn, 62.
Samhlj., 64. Tónn.
oCauón á Iroóóffátu t óí&aóta b(a$l.
LÁRÉTT RÁÐNING:
1. Harpa, 5. Klapp, 10. Vegar, 12.
Skúra, 14. Hangs, 15. Ást, 17. Klaks,
19. Arg, 20. Kastala, 23. Kal, 24.
Spik, 26. Þarfa, 27. Skrá, 28. Talna,
30. Ras, 31. Spann, 32. Mala, 34.
Stör, 35. Næpuna, 36. Skálar, 38.
Nart, 40. Ýlis, 42. Kauns, 44. Rum,
46. Inkar, 48. Alla, 49. Málug, 51.
Nafa, 52. Ske, 53. Víkinga, 55. Pat,
56. Saggi, 58. Unn, 59. Kvint, 61.
Nurta, 63. Hrína, 64. Róaði, 65.
Náinn.
LDÐRÉTT RÁÐNING :
1. Hengilmænulegur, 2. Agg, 3.
Rask, 4. PR, 6. LS, 7. Akka, 8. Púl,
9. Prakkaraskapinn, 10. Varpa, 11.
Ostran, 13. Akarn, 14. Hasta, 15.
Ásar, 16. Tafs, 18. Sláni, 21. AÞ, 22.
La, 25. Knapana, 27. Spölinn, 29.
Alurs, 31. Stáli, 33. Ant, 34. Ský,
37. Skass, 39. Hulinn, 41. Hratt, 43.
Álkan, 44. Ráku, 45. Munn, 47.
Afana, 49. Mí, 50. GG, 53. Vita, 54.
Akri, 57. Gró, 60. Vín, 62. Að. 63.
Há.